Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 10
Engar fúgur – ekkert mál Flísaplötur frá Barker eru hentugar á bað, eldhús, þvottahús og hvar sem vatnsálag er mikið. Fáanlegar í ýmsum litum H im in n o g h af / S ÍA - 9 0 7 1 2 4 2 Aseta ehf Tunguháls 17 110 Reykjavík sími: 533 1600 aseta@aseta.is Rofni stíflur sem Lands- virkjun hyggst reisa vegna virkj- ana í neðri hluta Þjórsár í jarð- skjálftum gætu stórflóð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi valdið manntjóni. Þessu er haldið fram í þingsálykt- unartillögu sem Atli Gíslason, þing- maður Vinstri grænna, mun flytja á Alþingi ásamt þremur öðrum þing- mönnum VG. Þeir vilja að óháðir aðilar verði fengnir til að vinna áhættumat vegna fyrirhugaðra virkjana. Í greinargerð með tillögunni er tekið fram að Landsvirkjun hafi þegar látið vinna áhættumat vegna þriggja virkjana í Þjórsá. Sá bögg- ull fylgi þó skammrifi að áhættu- matið sé unnið af sömu aðilum og hafi eftirlit með framkvæmdum og komi að hönnun mannvirkjanna. Slíkt fyrirkomulag sé til þess fall- ið að draga megi í efa að það sé fag- lega unnið. Sami háttur hafi verið hafður á við gerð áhættumats vegna Kárahnjúkavirkjunar, og það hafi sætt harðri gagnrýni. Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir áhættumat órjúfanlegan hluta af hönnunarferli mannvirkja. Svo geti menn haft skoðanir á því hvort rétt sé að fá óháða aðila, til dæmis á for- ræði skipulagsyfirvalda, til að fara yfir niðurstöður áhættumatsins. Áhættumatið hefur verið unnið, og verður kynnt fyrir íbúum í Flóa- hreppi á fimmtudagskvöld, og í kjölfarið gert opinbert. Rof gætu valdið manntjóni Danski menningarmála- ráðherrann Brian Mikkelsen hefur hvatt dönsk bæjarfélög til að bjóða stjórnmálakonunni og rithöfundinum Ayaan Hirsi Ali, sem er frá Sómalíu en er hollenskur ríkisborgari, að setjast að í Danmörku. Mikkelsen sér þennan mögu- leika bjóðast í tengslum við lagafrumvarp um „örugga bæi“ fyrir ofsótta rithöfunda, sem danska stjórnin vinnur nú að. Hirsi Ali hefur notið lögreglu- verndar frá árinu 2004, þegar hún var meðhöfundur að kvikmynd um kúgun múslima- kvenna. Hirsi Ali verði boðið hæli „Í allri hreinskilni sagt, þá er kominn tími til þess að stofna Palestínuríki,“ sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að loknum fundi sínum með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna á mánudag. Hún hélt ferð sinni um Miðausturlönd áfram í gær og hitti ráðamenn í Egyptalandi, sem lengi hafa gegnt mikilvægu hlutverki í að miðla málum milli Ísraela og Palestínumanna. Rice segir að George W. Bush Bandaríkjaforseti ætli að leggja mikla áherslu á að finna varanlega lausn á deilu Palestínumanna og Ísraela, enda sé það í hag Bandaríkjamanna að átökum þar ljúki. Þess vegna leggi Bandaríkjastjórn nú svo mikla áherslu á að stefna deiluaðilum saman á friðarráðstefnu sem halda á í Annapolis í Maryland. Ahmed Aboul Gheit, utanríkisráðherra Egypta- lands, hafði á mánudag talað um að réttast væri að fresta ráðstefnunni þar sem horfur væru ekki nógu góðar á að áþreifanlegur árangur næðist þar. Í gær hét Gheit hins vegar Rice stuðningi Egypta við ráðstefnuna. Rice og Gheit sögðu tímasetningu hennar vera undir því komna að samningamenn Ísraela og Palestínumanna kæmu sér saman um samningsgrundvöll, sem síðan mætti ganga frá á ráðstefnunni. Meðal erfiðustu deilumálanna er skipting Jerúsal- emborgar, en Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, gaf á mánudag í fyrsta sinn í skyn opinber- lega að Ísraelar gætu sætt sig við að austurhluti borgarinnar verði undir yfirráðum Palestínumanna. Eftir viðræður sínar í Kaíró hélt Rice aftur til fundar við Olmert í Jerúsalem í gær. Palestínumenn leggja mikla áherslu á að í hinum sameiginlega samningsgrundvelli verði nákvæm- lega gerð grein fyrir tímasetningum um stofnun Palestínuríkis, en Ísraelar segja nægilegt að sú yfirlýsing verði almennt orðuð. Tími kominn til að stofna Palestínuríki Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er á ferð um Miðaustur- lönd til að undirbúa fyrirhugaða friðarráðstefnu. Hún segir tíma kominn til að stofna sjálfstætt Palestínuríki. Egyptalandsstjórn heitir stuðningi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.