Fréttablaðið - 17.10.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 17.10.2007, Síða 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Rauði krossinn kynnir innanlandsstarf sitt í þess- ari viku. Flestir Íslendingar telja að Rauði krossinn starfi mestmegnis erlendis, en sú er ekki raunin. Um 1.700 sjálfboðaliðar vinna að verkefnum á vegum félagsins innanlands. Rauði krossinn stendur fyrir umfangsmiklu kynningarátaki um þessar mundir. Verið er að kynna verkefni félagsins innanlands og þá sérstaklega þau verkefni sem stuðla að því að rjúfa félagslega einangrun. „Við höfum rekið okkur á það að fólk veit ekki almennilega hvað við gerum,“ segir Sólveig Ólafs- dóttir, sviðsstjóri útbreiðslusviðs hjá Rauða krossinum. „Í viðhorfs- könnun sem við létum gera í vor kom í ljós að 74 prósent fólks tengja okkur við hjálparstarf erlendis. Samt er það svo að yfir 70 prósent af verkefnum Rauða krossins eru unnin af sjálfboðalið- um okkar innanlands.“ Sjálfboðaliðarnir eru um 1.700 talsins og á öllum aldri. „Það eru áberandi flestir á aldrinum 50 til 80 ára, en annars er nokkuð jöfn skipting í hinum aldurshópunum.“ Markmiðið með átakinu er skýrt. „Við erum að leita eftir því að fólk sem vill gerast sjálfboðaliðar viti hvar okkur er að finna. Við viljum einnig að fólk viti hvaða þjónustu það getur fengið frá okkur, hvort sem það er vegna tímabundinna eða langvarandi erfiðleika eða aðstæðna,“ segir Sólveig. Sigrún Tinna Sveinsdóttir er meðal yngstu sjálfboðaliðanna, rétt rúmlega tvítug. Hún starfar í athvarfinu Vin, sem er athvarf fyrir geðfatlaða í Reykjavík. „Ég byrjaði sem sjálfboðaliði í ung- mennastarfinu í fyrrahaust,“ segir hún. „Þar var svo talað um önnur verkefni sem hægt væri að taka þátt í og mér þótti þetta mjög spennandi.“ Sjálfboðaliðar í Vin mæta á sunnudögum og bjóða gestum athvarfsins upp á kaffi og með- læti. „Fólk kemur þangað og við sitjum og spjöllum saman. Það er ákveðinn kjarni af fólki sem kemur alltaf en svo koma oft einhverjir sem maður hefur ekki séð áður.“ Sigrún segist hafa kynnst breið- um og góðum hópi af fólki í sjálf- boðastarfinu. „Það er gaman að koma inn á stað þar sem það eru öðruvísi umræður og önnur sýn á lífið og tilveruna en maður er vanur. Þetta hefur verið mjög þroskandi og gefandi fyrir mig.“ Þroskandi og gefandi Hættulegur Halldór Ekki nennt Eurovision Kátir karlar að skemmta sér Engir alvöru valkostir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.