Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 24
María Guðrún Gunnlaugsdóttir dvaldi í Gambíu í sumar í sex vikur á vegum vinadeildar- starfs Rauða krossins og hefur frá mörgu að segja. „Mannlífið í Gambíu er skrautlegt og skemmtilegt. Þar býr ótrúlega lífsglatt fólk og vinalegt þótt land- ið sé meðal þeirra tíu fátækustu í heiminum. Krakkarnir elska tón- list og eru alltaf dansandi og hlæj- andi og maður dansar ósjálfrátt með,“ byrjar María Guðrún frá- sögn sína. María Guðrún er 22 ára guð- fræðinemi og kveðst hafa kynnst Rauða krossinum í gegnum sjálf- boðaliðastarf. „Ég sótti um að verða partur af vinadeildarsam- starfi og var valin til að fara út til Gambíu í ungmennaskipti, ásamt strák sem heitir Bryan Allan Smith. Við bjuggum hjá gambískri fjölskyldu og unnum í sumarbúð- um á vegum Rauða krossins. Það var mjög gaman að kenna krökk- unum íslenska söngva og bralla fleira skemmtilegt með þeim. Svo sagði ég þeim frá Íslandi og hélt kynningar á landinu mínu.“ María Guðrún segir flesta krakkana í Gambíu kunna ágæta ensku en hún hafi líka komist tals- vert inn í tungumál innfæddra. „Ég komst fljótt upp á lag með að segja einfaldar setningar eins og „ég er svöng“ „takk fyrir“ og fleira. En maður má ekki ruglast. „Mangimar“ þýðir til dæmis ég er þyrst en „mangimer“ þýðir ég er reið! Þótt skordýrin skríði um allt í Gambíu segir María metnað lagð- an í hreinlæti. „Það er allur þvott- ur handþveginn og mikið lagt upp úr því að allt sé straujað. Ef mann- eskja er úti á götu í óstraujaðri flík þá er það mikill ósómi,“ lýsir hún. Síðan bregður hún upp mynd úr heimilislífinu þar sem systkin- in voru fimmtán og ávallt nokkur nágrannabörn í heimsókn. „Ég sat einu sinni uppi í rúminu mínu með stelpurnar allar í kringum mig og var að syngja fyrir þær Krummi krunkar úti. Þá spurðu þær hvort ég kynni ekki lög úr myndinni The Princess Diaries og fóru að syngja þau fyrir mig. Þær eru múslimar og eru alltaf með blæjur. Mér fannst fyndið að þær kynnu lögin úr þessari vestrænu mynd en ekki ég.“ Regntíminn gekk yfir á meðan María Guðrún var úti og segir hún stundum hafa hellst hressilega úr loftinu. „Það flæddi yfir allt. Þá var steinum hlaðið upp með veggj- unum til að labba á.“ Að lokum lýsir hún komu sinni til James-eyjar sem hún segir sögulegan stað og mikilvægan í þrælastríðinu. „Allir þrælarnir sem voru fluttir frá Afríku stopp- uðu þar og á eynni er safn sem lýsir þeirri sögu. Maður fékk í magann. Þarna voru krakkar hlaupandi á eftir mér hrópandi „tu bab“ sem þýðir „hvíti maður“ því það er mjög sjaldgæft að sjá hvíta manneskju þarna úti. Ég hrökk í kút því ég mundi oft ekki sjálf að ég væri hvít. Fólkið tók mér svo opnum örmum að ég gleymdi að ég var öðruvísi en það.“ Að ganga í óstraujaðri flík er ósómi í Gambíu 20.500 Vika í Bretlandi kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. Ford Fiesta eða sambærilegur 522 44 00 • www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta frá ÍS L E N S K A /S IA .I S /H E R 3 69 19 0 4/ 07 Ferðaskrifstofa Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.