Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 24
María Guðrún Gunnlaugsdóttir
dvaldi í Gambíu í sumar í sex
vikur á vegum vinadeildar-
starfs Rauða krossins og hefur
frá mörgu að segja.
„Mannlífið í Gambíu er skrautlegt
og skemmtilegt. Þar býr ótrúlega
lífsglatt fólk og vinalegt þótt land-
ið sé meðal þeirra tíu fátækustu í
heiminum. Krakkarnir elska tón-
list og eru alltaf dansandi og hlæj-
andi og maður dansar ósjálfrátt
með,“ byrjar María Guðrún frá-
sögn sína.
María Guðrún er 22 ára guð-
fræðinemi og kveðst hafa kynnst
Rauða krossinum í gegnum sjálf-
boðaliðastarf. „Ég sótti um að
verða partur af vinadeildarsam-
starfi og var valin til að fara út til
Gambíu í ungmennaskipti, ásamt
strák sem heitir Bryan Allan
Smith. Við bjuggum hjá gambískri
fjölskyldu og unnum í sumarbúð-
um á vegum Rauða krossins. Það
var mjög gaman að kenna krökk-
unum íslenska söngva og bralla
fleira skemmtilegt með þeim. Svo
sagði ég þeim frá Íslandi og hélt
kynningar á landinu mínu.“
María Guðrún segir flesta
krakkana í Gambíu kunna ágæta
ensku en hún hafi líka komist tals-
vert inn í tungumál innfæddra.
„Ég komst fljótt upp á lag með að
segja einfaldar setningar eins og
„ég er svöng“ „takk fyrir“ og
fleira. En maður má ekki ruglast.
„Mangimar“ þýðir til dæmis ég er
þyrst en „mangimer“ þýðir ég er
reið!
Þótt skordýrin skríði um allt í
Gambíu segir María metnað lagð-
an í hreinlæti. „Það er allur þvott-
ur handþveginn og mikið lagt upp
úr því að allt sé straujað. Ef mann-
eskja er úti á götu í óstraujaðri
flík þá er það mikill ósómi,“ lýsir
hún. Síðan bregður hún upp mynd
úr heimilislífinu þar sem systkin-
in voru fimmtán og ávallt nokkur
nágrannabörn í heimsókn. „Ég sat
einu sinni uppi í rúminu mínu með
stelpurnar allar í kringum mig og
var að syngja fyrir þær Krummi
krunkar úti. Þá spurðu þær hvort
ég kynni ekki lög úr myndinni The
Princess Diaries og fóru að syngja
þau fyrir mig. Þær eru múslimar
og eru alltaf með blæjur. Mér
fannst fyndið að þær kynnu lögin
úr þessari vestrænu mynd en ekki
ég.“
Regntíminn gekk yfir á meðan
María Guðrún var úti og segir hún
stundum hafa hellst hressilega úr
loftinu. „Það flæddi yfir allt. Þá
var steinum hlaðið upp með veggj-
unum til að labba á.“
Að lokum lýsir hún komu sinni
til James-eyjar sem hún segir
sögulegan stað og mikilvægan í
þrælastríðinu. „Allir þrælarnir
sem voru fluttir frá Afríku stopp-
uðu þar og á eynni er safn sem
lýsir þeirri sögu. Maður fékk í
magann. Þarna voru krakkar
hlaupandi á eftir mér hrópandi „tu
bab“ sem þýðir „hvíti maður“ því
það er mjög sjaldgæft að sjá hvíta
manneskju þarna úti. Ég hrökk í
kút því ég mundi oft ekki sjálf að
ég væri hvít. Fólkið tók mér svo
opnum örmum að ég gleymdi að
ég var öðruvísi en það.“
Að ganga í óstraujaðri
flík er ósómi í Gambíu
20.500
Vika í Bretlandi
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
Ford Fiesta eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07
Ferðaskrifstofa
Auglýsingasími
– Mest lesið