Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 39
Ljósmyndasýningin Iceland Airwa- ves: So Far/Til þessa, hóf göngu sína fyrir skömmu í Norræna hús- inu. Við opnunina var einnig kynnt sérstök hátíðardagskrá sem fer fram í Norræna húsinu í tengslum Airwaves. Iceland Airwaves: So Far/Til þessa er haldin af Iceland Airwaves í samstarfi við Norræna húsið og þann stóra hóp ljósmyndara sem fylgt hefur hátíðinni eftir af elju frá upphafi og tekið fjöldann allan af áhugaverðum ljósmyndum. Ljós- myndarinn Árni Torfason er umsjónarmaður sýningarinnar. Áhugaverðar ljósmyndir Írska hljómsveitin U2 ætlar að endurútgefa plötuna Joshua Tree í tilefni af tuttugu ára útgáfuaf- mæli hennar. Platan kemur út í fjórum mismunandi útgáfum; sem hefðbundinn geisladiskur, tvöfald- ur geisladiskur, tvöfaldur geisla- diskur og DVD-mynddiskabox og í vinylútgáfu. Á mynddisknum verður heimildarmyndin Outside It´s America auk tónleikaefnis. Joshua Tree kom U2 rækilega á kortið víðsvegar um heim með smáskífulögunum vinsælu I Still Haven´t Found What I´m Looking For, Where The Streets Have No Name og With Or Without You. Liðsmenn U2 eru með fleira á teikniborðinu því þeir ætla að reisa skýjakljúf í Dublin í heima- landi sínu. Mun byggingin nefnast U2 Tower og ætlar hljómsveitin að flytja upptökuver sitt á efstu hæð hennar þegar hún verður tilbúin árið 2011. Endurútgefa Joshua Tónlistarmaðurinn Steve Sampling hefur gefið út sína aðra sólóplötu, Borrowed & Blue. Á plötunni eru fimmtán lög, öll án söngs nema eitt sem skartar bandaríska rapparanum Keyote. Fyrsta sólóplata Steves, sem áður kallaði sig Mezzías MC, kom út á síðasta ári. „Þetta er það sem maður gerir á hverjum degi. Maður verður að koma því frá sér svo maður geti gleymt því og snúið sér að einhverju nýju,“ segir Steve. „Þessi plata er í svipuðum dúr og hin nema að það er ekki danstónlist á þessari. Nú er þetta bara í „chillout-“ og hiphop-fílingi.“ Steve seldi hinum heimsfræga Dangermouse nokkur lög fyrr á árinu en þau hafa ekki verið gefin út ennþá. „Lögfræðingar hans eru að vinna í því að fá leyfi fyrir sömplunum en hann er með mörg verkefni í gangi í einu.“ Platan fæst í Smekkleysu, 12 Tónum og hjá höfundinum sjálfum, steves- ampling@gmail.com. Kostar hún 1.500 krónur. Afkastamikill Steve Friðartónleikum með Bryan Adams í fararbroddi sem halda átti næstkomandi fimmtudag hefur verið aflýst. Tónleikarnir áttu að styðja lausn deilu Ísraela og Palestínumanna og áttu þeir að fara samtímis fram í borginni Tel Avív í Ísrael og í Jeríkó á Vesturbakkanum. Eftir að palestínskum þátttak- endum í tónleikunum var hótað öllu illu var ákveðið að hætta við allt saman. „Öfgamenn hafa hótað þátttakendum okkar í Jeríkó og við vildum ekki leika okkur með líf þeirra,“ sagði skipuleggjandi á vegum samtakanna One Voice. Aflýst vegna hótana Radisson SAS Saga Hotel Sími: 525 9900 hotelsaga@hotelsaga.is www.hotelsaga.isPIP A R • S ÍA • 7 20 20 söngstjörnur á Sögu Hemmi Gunn og Upplifðu ógleymanlegt kvöld í Súlnasal Hótel Sögu með aðal skemmtikröftum landsins. Fullkomin blanda af söng, gleði og gríni með Hemma Gunn, Ragga Bjarna, Guðrúnu Gunnars, Bjarna Ara og Hara systrum. Að lokinni skemmtidagskrá gerir stuðbandið Saga Class allt brjálað á dansgólfinu. Ógleymanlegt kvöld í Súlnasal Hótel Sögu. Pantaðu borð núna í síma 525 9900. 20.10 3ja rétta örfá sæti laus 26.10 uppselt 27.10 uppselt 02.11 uppselt 03.11 uppselt 09.11 3ja rétta 24.11 jólahlaðborð örfá sæti laus 30.11 jólahlaðborð 01.12 jólahlaðborð örfá sæti laus 07.12 jólahlaðborð 08.12 jólahlaðborð örfá sæti laus 14.12 jólahlaðborð 15.12 jólahlaðborð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.