Fréttablaðið - 17.10.2007, Side 40
WEST HAM
BOLTON
W W W. I C E L A N DA I R . I S
3.–5.
NÓVEMBER
52.800KR.
Verð á mann í tvíbýli
Icelandair er samstarfsaðili West Ham og býður ferðir
á alla heimaleiki liðsins í vetur. Fjölmargir leikir framundan,
s.s. á móti Tottenham, Everton og Manchester United.
+ Nánari upplýsingar:
www.icelandair.is/ithrottaferdir
KR-ingar hafa verið í
mikilli naflaskoðun síðustu vikur
og eru að taka innra starfið í gegn
hjá sér. Liður í því er sköpun nýs
starfs sem ber heitið yfirmaður
knattspyrnumála eða „director of
football“ en slík staða er alþekkt
hjá knattspyrnufélögum erlendis.
Sá sem fær það verkefni að
móta starfið er Rúnar Kristinsson
en hann mun gegna starfinu næstu
tvö árin hið minnsta. Rúnar mun
hafa umsjón með öllu faglegu
starfi knattspyrnunnar í KR og
bera ábyrgð á ráðningu allra þjálf-
ara og aðstoðarmanna KR. Hann
mun einnig hafa yfirumsjón með
sérþjálfun leikmanna meistara-
flokks og stýra faglegu starfi KR-
akademíunnar að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá KR.
„Það hefur blundað í KR-Sport
að taka þetta skref og þeir ákváðu
að taka það. Ég verð ákveðin teng-
ing á milli stjórnarinnar og þjálf-
arateymisins. Þetta er spennandi
verkefni og mikil áskorun sem
leggst mjög vel í mig. Þetta er frá-
bært tækifæri fyrir mig sem og
félagið. Ég tel mig hafa það sem til
þarf í starfið sem er þekking á
knattspyrnu og ég á þess utan
mjög auðvelt með að umgangast
og tala við fólk,“ sagði Rúnar en
næstu mánuðir hjá honum fara í
að þróa starfið.
Logi Ólafsson var á sama tíma
ráðinn þjálfari meistaraflokks til
næstu þriggja ára og Rúnar segir
að hann muni vinna mjög náið með
Loga. Starfið er þó ekki bara dans
á rósum enda fellur það væntan-
lega á Rúnar að segja þjálfurum
upp ef ástæða þykir til en þjálfar-
ar hafa fengið að fjúka nokkuð oft
vestur í bæ síðustu ár.
„Það getur vissulega lent á
mínum herðum að taka erfiðar
ákvarðanir en það er bara hluti af
starfinu. Það er eitthvað sem
maður tekur bara á þegar slíkt
kemur upp. Vonandi tekst okkur
samt vel að halda á þjálfurum en
vissulega vilja menn árangur og
það oft sem fyrst,“ sagði Rúnar
sem telur starfið vera skref í rétta
átt hjá KR. „Það vantar menn í
félögin sem hafa skoðun og virki-
lega reynslu af hlutunum. Þar
liggur minn styrkleiki að mörgu
leyti og vonandi skilar það sér í
árangri fyrir KR. Ég hef fulla trú
á því að ég geti hjálpað félaginu.“
Rúnar Kristinsson tók við nýju starfi hjá KR í gær sem yfirmaður knattspyrnumála en það er ný staða hjá
félaginu. Logi Ólafsson hefur gert þriggja ára samning við KR og Sigursteinn Gíslason aðstoðar Loga.
Íslenska U-21 árs lands-
liðið olli enn og aftur vonbrigð-
um í gær þegar liðið gerði 1-1
jafntefli gegn Austurríki í
Grindavík. Íslenska liðið var
manni yfir í 50 mínútur og hafði
mikla yfirburði lengstum en náði
þrátt fyrir það ekki að skora
nema eitt mark. Það gerði Rúrik
Gíslason en Austurríkismenn
höfðu áður komist yfir þrátt
fyrir að vera manni undir.
„Mér fannst við spila vel í
fyrri hálfleik og við áttum að
nýta okkur það. Síðan skora þeir
algert draumamark og það sló
okkur smá út af laginu, en sem
betur fer náðum við að koma til
baka og jafna leikinn, en við
áttum að klára þetta með sigri,“
sagði Bjarni Þór Viðarsson fyrir-
liði en Lúkas Kostic þjálfari var
einnig svekktur.
„Ég er ekki sáttur með jafn-
tefli, því eins og leikurinn var
spilaður þá áttum við meira skil-
ið að vinna en þeir. Okkar spila-
mennska var alveg ágæt og mér
fannst við gera hlutina vel með
því að spila boltanum með jörð-
inni við þessar erfiðu aðstæður.
Það var lykilatvik í leiknum
þegar við náðum ekki að klára
dauðafærið í fyrri hálfleik. Ég er
ánægður með strákana og ég er
dapur yfir því að þeir hafa ekki
fengið jafnmörg stig í þessum
riðli og þeir eiga skilið,“ sagði
Lúkas.
Enn ein vonbrigðin
Harka af mér og bryð bólgueyðandi inn á milli
Varnarmaðurinn
Kristján Hauksson gengur í raðir
Valsmanna frá Fram í dag og mun
að öllum líkindum skrifa undir
tveggja ára samning við félagið.
„Þetta var erfið ákvörðun fyrir
mig þar sem Fram er mitt
æskufélag en ég held að þetta sé
samt rétta ákvörðunin,“ sagði
Kristján við Fréttablaðið.
„Ákvörðunin er ekki tekin út af
peningalegum aðstæðum, það er
alveg klárt, heldur eingöngu
fótboltalegum aðstæðum. Ég er
spenntur fyrir Val og því tæki-
færi að spila í Evrópukeppni og
spila með öflugum leikmönnum
og undir góðum þjálfara. Ég var
orðinn þreyttur á því að vera í
fallbaráttu og endalausum
þjálfaraskiptum hjá Fram,“ sagði
Kristján.
Orðinn þreytt-
ur á fallbaráttu
Valsstúlkur töpuðu 3-1
fyrir enska liðinu Everton í Evr-
ópukeppni félagsliða í gær og eru
því úr leik eftir að þýska liðið
Frankfurt og belgíska liðið Wez-
emaal gerðu 1-1 jafntefli.
Valsstúlkur lentu 3-0 undir gegn
Everton í gær og til að bæta gráu
ofan á svart fór helsti markaskor-
ari liðsins, Margrét Lára Viðars-
dóttir, meidd út af í fyrri hálfleik.
Í seinni hálfleik náði Katrín Jóns-
dóttir hins vegar að minnka mun-
inn fyrir Val og urðu það lokatölur
leiksins. En fyrir leikinn var
reyndar talið að Valsstúlkur
mættu í raun tapa leiknum með
tveimur mörkum og myndu þá
samt lenda í öðru sæti riðilsins og
fara áfram í 8-liða úrslit, þar sem
þýska stórliðið Frankfurt væri lík-
legt til þess að vinna belgíska liðið
Wezemaal. En leikur liðanna end-
aði með 1-1 jafntefli.
Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari
Vals, var að vonum sár yfir því að
Valsstúlkur hafi ekki gert nóg til
þess að komast áfram. „Það var
synd hvað við vöknuðum seint á
móti Everton og við hefðum getað
bætt við fleiri mörkum í lokin á
leiknum,“ sagði Elísabet sem var
einnig ósátt með framgöngu Frank-
furt í leiknum gegn Wezemaal.
„Þær voru náttúrulega ekki með
sitt sterkasta lið og nokkrar af
þeirra leikmönnum voru farnar
heim til Þýskalands og þær sem
eftir voru spiluðu á 50 prósenta
keyrslu í leiknum. Við erum nátt-
úrulega hundfúlar að fara ekki
lengra,“ sagði Elísabet svekkt.
Hundfúlar að fara ekki áfram