Fréttablaðið - 17.10.2007, Síða 42

Fréttablaðið - 17.10.2007, Síða 42
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Rafmagnstalíur Keðjutalíur og víratalíur Aflið nánari upplýsinga hjá sölumönnum. DEMAG Hermann Hreiðarsson var ekki með í tapinu á móti Lett- um á laugardaginn og var sárt saknað í íslensku vörninni. Hann vildi lítið tjá sig um þann leik á blaðamannafundi í gær. „Sá leikur er bara búinn. Við erum hundsvekktir með úrslitin en nú er bara kominn nýr leikur og það er gott að fá tækifæri til að leiðrétta þetta strax. Það er ekkert hægt annað en að fara fram á sigur hérna og við spilum líka til sigurs og ekkert annað. Við ætlum að einbeita okkur að okkar leik og ef við spilum vel þá vinnum við þennan leik,“ segir Hermann. Hermann var fyrst í byrjunar- liði íslenska landsliðsins í keppni þegar Ísland vann 4-0 í Liechten- stein fyrir tíu árum. „Það var mjög góður sigur þegar maður var hérna síðast. Þeir hafa tekið mikl- um framförum síðan en það hefur við kannski gert líka,“ segir Her- mann sem telur vera mjög mikil- vægt að byrja vel. „Við förum jákvæðir og vel undirbúnir inn í þennan leik. Við ætlum ekki að gefa nein færi á okkur. Við ætlum að koma sterkir inn í leikinn og sýna það strax frá fyrstu mínútu hverjir það eru sem ætla að stjórna þessum leik,“ segir Her- mann og bætir við „Við erum með miklu sterkara lið á pappírnum og ef við náum að skila því sem hægt er að ætlast til þá eigum við að vinna svona leiki,“ segir Hermann sem hefur engar áhyggjur af því að Ísland skori í kvöld en mestu skipti að vörnin verði í lagi. Þar hefur Hermann mikið að segja og það skiptir liðið mjög miklu máli að hann sé kominn aftur úr leik- banninu. „Hermann er meirihátt- ar leikmaður og kemur með mik- inn anda inn í liðið,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrir- liði. Ekki hægt annað en að fara fram á sigur Íslenska knattspyrnu- landsliðið flaug í tveimur hlutum til Liechtenstein og náði með því æfingu á mánudaginn og að koma í veg fyrir að leikmenn rugluðu hjá sér sólarhringnum. „Ég held að þetta hafi verið eina lausnin til þess að ná æfingu í gær og þetta var ágætislausn. Ferða- lagið sat aðeins í mönnum í gær- kvöldi og við erum því bara búnir að vera rólegir í dag. Það er ágætt að það var ekki nema ein æfing þannig að við náum að hvíla okkur vel fyrir hana,“ sagði landsliðsfyr- irliðinn Eiður Smári Guðjohnsen fyrir síðustu æfingu fyrir leikinn í gær. Íslenski hópurinn lagði af stað á sunnudaginn og flaug þá til Lond- on þar sem að liðið gisti eina nótt og fékk síðan að æfa á æfinga- svæði Queens Park Rangers í Harlington sem er rétt við Heathrow-flugvöllinn. Landsliðsfyrirliðinn kannaðist vel við sig á æfingasvæðinu sem er gamla æfingasvæði Chelsea. „Ég var búinn að vera þarna dag- lega í fjögur ár þannig að þessi æfing vakti upp gamlar minning- ar,“ sagði Eiður Smári. Æfingin í London rifjaði upp gaml- ar minningar hjá Eiði Smára Íslenska landsliðið í knattspyrnu er mætt til Liechten- stein þar sem liðið spilar næstsíð- asta leik sinn í undankeppni EM. Leikurinn hefst klukkan 18.00 í dag að íslenskum tíma og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Sýn. Íslenska liðið náði aðeins jafn- tefli í fyrri leik þjóðanna á Laug- ardalsvellinum í júní og það voru allt önnur úrslit en þegar Ísland vann tvo 4-0 sigra á Liechtenstein fyrir áratug síðan. Skellurinn gegn Lettum var mikil afturför frá því að liðið tók fjögur stig út úr leikjum á móti Spánverjum og Norður-Írum í síðasta mánuði. „Íslenska landsliðinu síðustu fimm til sex árin hefur vantað stöðugleikann. Við viljum fá hann og erum að reyna að vinna í því. Við viljum forðast það að halda áfram að vera þetta jó-jó lið,“ segir Eyjólfur Sverrisson lands- liðsþjálfari. Eiður Smári Guðjohnsen lands- liðsfyrirliði veit vel að það er pressa á liðinu að vinna Liechten- stein. „Ég held að við séum búnir að bjóða upp á þessa pressu sérstak- lega með því að hafa gert jafntefli við þá á heimavelli og síðan enn- fremur eftir slæmt tap gegn Lett- um á laugardaginn. Við erum því búnir að bjóða pressunni heim og það er kannski ágætt að við lærum að lifa með þessari pressu og náum að standa undir vænting- um. Það er eitthvað sem hefur vant- að í okkur sem knattspyrnuþjóð undanfarin ár. Þetta er ekkert í fyrsta skiptið sem Ísland tapar þegar allir búast við því að liðið vinni. Þegar pressan er engin þá náum við oftast bestu úrslitinum en því þarf að breyta líka því við náum aldrei neinum árangri ef við vinnum ekki leikina sem við eigum að vinna,“ sagði Eiður Smári á blaðamannafundi í gær. Landsliðsþjálfarinn heimtar meiri einbeitingu hjá sínum mönn- um. „Það sem við þurfum fyrst og fremst að bæta frá því úr síðasta leik er einbeiting í föstum leik- atriðum. Hún verður að vera til staðar því það var það sem var að brjóta okkar leik gegn Lettum. Við vorum engan veginn á tánum og skutum okkur sjálfa í fótinn,“ segir Eyjólfur sem leggur mesta áherslu á varnarleikinn í undir- búningi liðsins. „Varnarvinnan verður að vera í lagi. Ég hef engar áhyggjur af sóknarleiknum en hef meiri áhyggjur af varnarleikn- um,” segir Eyjólfur sem gerir breytingar á liðinu fyrir leikinn í kvöld. „Hermann Hreiðarsson kemur inn og hann er gríðarlega mikil- vægur karakter fyrir þetta lið. Þegar koma tímar í leikinn þegar þetta er ekki að ganga upp þá er hann maðurinn inni á vellinum sem getur séð til þess að allt fari í rétta átt. Ég veit ekki hvað verður með Grétar en þetta lítur ekki vel út,“ segir landsliðsþjálfarinn en hann vildi eins og áður ekkert gefa upp um byrjunarliðið eða hópinn en 21 leikmaður er staddur út í Liechtenstein. Veigar Páll Gunn- arsson meiddist á æfingu og kom ekki með út. Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari vill sjá meiri stöðugleika hjá landsliðinu en hefur engar áhyggjur af sóknarleiknum. Eiður Smári Guðjohnsen segir tíma kominn til að vinna leik sem liðið á að vinna. Það er óvissa með hvort Grétar Rafn Steinsson geti verið með í leiknum í kvöld en hann fór út af eftir aðeins 25 mínútna leik í leiknum gegn Lettum eftir að hafa fengið hné í mjöðmina. Grétar Rafn er enn sárþjáður og bólginn en er þó ekkert á því að gefa frá sér leikinn. Í samtali við Fréttablaðið í gær sagðist hann setja stefnuna á að spila leikinn en Grétar Rafn er ásamt Ívari Ingimarssyni og Emil Hallfreðssyni eini leikmaður íslenska landsliðsins sem hefur byrjað inn á í öllum sjö lands- leikjum ársins. Ætlar sér að vera með Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur unnið 40 af 48 landsleikjum gegn smáríkjum Evrópu og aðeins tapað tveimur. Í þessari tölfræði eru 20 leikir við Færeyjar og tveir við Grænland taldir með. Ísland tapaði leikjunum tveimur á móti Möltu, þeim fyrri í undankeppni EM 1984 sem fram fór á Sikley og þeim síðari í febrúar 1992 en þar var um vináttuleik á Valettu að ræða. Ísland hefur mætt smáríkjunum sjö sinnum á útivelli á alvöru keppnisleik. Hinn fyrsti tapaðist árið 1982 en síðan hefur íslenska liðið unnið fjóra og gert tvö jafntefli. Síðasti útileikurinn gegn smáríki fyrir leikinn í kvöld var 0-0 jafnteflis- leikur við Möltu á Valettu 9. október 2004 en Ísland hafði þá unnið fjóra útileiki í röð gegn smáríkjum með markatölunni 12- 2. Aðeins tvö töp í 48 leikjum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.