Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 46

Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 46
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Það er rétt, bókinni hefur verið frestað um ár,“ segir útgefandinn Jóhann Páll Valdimarsson hjá Forlaginu. Stefnt hafði verið að því að gefa út ævisögu forseta Íslands, Ólafs Ragn- ars Grímssonar, nú fyrir jólin. Að sögn Jóhanns var tekin ákvörðun um þetta nýverið þrátt fyrir að handritið frá höfundinum Guð- jóni Friðrikssyni væri nánast klárt. „Eftir frekari skoðun var ákveð- ið að gera forsetafrúnni Dorrit Moussaieff eilítið hærra undir höfði í bókinni,“ segir Jóhann en Guðjón fer að öllum líkindum með Dorrit til London í haust og dvelst þar með henni til að komast betur inn í það umhverfi sem hún kemur frá og jafnframt til að kynnast persónu forsetafrúarinnar ögn nánar fyrir bókina. „Við töldum einfaldlega að þetta myndi gera bókina enn betri en hún er,“ segir Jóhann. Væntanlega eru þeir marg- ir sem bíða spenntir eftir ævisögu Ólafs Ragnars. Hann var umdeildur sem stjórn- málamaður og sum verk hans í for- setaembættinu hafa verið afar umdeild. Því má vel búast við því að einhverjum sprengjum verði varpað þegar bókin loks kemur út á næsta ári. Dorrit fær aukið vægi í ævisögu forsetans „Auðvitað snjóar stundum inn á sál- ina en maður verður bara að taka því,“ segir leikarinn Arnar Jónsson sem liggur á sjúkrahúsi að jafna sig eftir aðgerð þar sem skipt var um hálft vinstra hné hans. Áður hafði hann gengist undir sams konar aðgerð hægra megin. „Þetta má rekja til þessa mikla slyss sem ég lenti í árið 1984 þegar ég hrundi niður af stillans og maskaði báða hæla og ökkla,“ segir Arnar. „Ég lenti beint á hælunum og kannski byrjar þá „prósess“ sem heldur síðan bara áfram. Ég get leikið lækni og hef leikið þá marga en ég myndi ekki geta útfært nákvæmlega hvað gerist.“ Arnar liggur á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, rétt eins og fyrir nokkrum árum þegar fest var hliðarhreyf- ing í ökklum hans. „Ég var búinn að vera með þennan fjárans sársauka á hverjum degi í sautján ár,“ segir Arnar, sem tekur þó veikindunum með jafnaðargeði. „Eins og stendur í gömlu afmælisdagbók- inni: Glaðlyndi, fjör og áhyggjuleysi eru aðalþættir skapgerðarinnar og ég hef ákveðið að halda mig við það,“ segir hann og hyggur á skjóta endur- komu. „Ég er svo ljónheppinn að búa á fjórðu hæð án þess að það sé lyfta þannig að ég fæ mjög góða hreyfingu og verð vonandi farinn að taka þátt í grindahlaupi fyrr en varir.“ Næsta hlutverk hins endurbætta Arnars verður í leikritinu Heiður eftir Bjarna Hauk Þórsson sem verður frumsýnt í Iðnó 12. janúar. Þar verða María Ellingsen og dóttir hans Sól- veig á meðal mótleikara. Eftir það tekur við hlutverk í Þjóðleikhúsinu í verki sem eiginkona hans Þórhildur Þorleifsdóttir setur upp. Arnar Jónsson fékk nýtt hné „Þetta er mikill myndarskapur og við kunnum honum bestu þakkir fyrir þetta,“ segir Gunnar Valur Jóns- son, fangavörður í Hegningarhúsinu við Skólavörðu- stíg. Fangelsið fékk heldur óvænta gjöf nýverið. Þingmaður Sunnlendinga, Árni John- sen, kom færandi hendi og gaf fangelsinu tíu litla flatskjái. Sjónvörp hafa ekki verið sjálfsagður hlutur í vistar- verum Hegningarhússins og segir Gunnar að þetta eigi eftir að breyta heilm- iklu fyrir andrúmsloftið. „Svona gjöf nýtist okkur mjög vel,“ segir Gunnar en í fangelsinu hafa einungis verið tvö til þrjú sjónvörp til afnota og svo hafa fangar komið með sjónvarpstæki heiman frá sér. Jafnframt bendir hann á að minni eld- hætta stafi af flatskjám þannig að þetta sé allt hið besta mál. „Og fangarnir hérna voru auðvitað himin- lifandi með þetta,“ bætir hann við. Árni sjálfur vildi sem minnst um gjöfina segja þegar Fréttablaðið náði tali af honum en vonaðist að sjálfsögðu til að hún myndi nýtast vel. „Auðvitað er ótrúlegt að mikið af þessum mönnum skuli ekki hafa þennan „glugga“ út í samfélagið,“ segir Árni. Hann vildi hins vegar lítið gefa upp um hverjir hefðu verið með honum í þessari gjöf, sagðist bara hafa frétt af þessu og í kjölfarið ákveðið að vinna í þessu. „Og þegar margir leggjast á eitt þá er hægt að gera ýmis- legt,“ segir Árni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Árni Johnsen lætur til sín taka í málefnum fanga. Þegar hann sat sjálfur á Kvíabryggju fyrir nokkrum árum gekk hann hart fram í því að skipt yrði um rúm í fangelsinu. Það hafðist í gegn en þá höfðu fangar notast við sömu beddana í sautján ár. Eftir að Árni kom til sögunnar voru hins vegar fengin ný og þægilegri rúm frá Ragnari Björnssyni. Gnoðarvogi 44, s. 588 8686. Opið 10-18:15 laugardaga 11-14. Þú færð aðeins það besta hjá okkur úrv sk, kinnar, gellur signa grásleppu, reykt ýsa og mar eira Það er þannig með mig að ég dett stundum inn í tískuna og svo út úr henni, en ég fylgi meira mínum eigin straumum. Svo hef ég haft mjög gott fólk, Simba og hans fólk, sem hugsar um höfuðið á mér, það er að segja ytra byrðið. Ég hef sjálf séð um innvolsið.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.