Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 4

Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 4
MARKAÐURINN 17. OKTÓBER 2007 MIÐVIKUDAGUR4 H A U S Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Formúlukeppnin verður tekju- hæsta íþróttagrein í heimi í ár ef allt gengur eftir áætlun um næstu helgi þegar flaggið fellur í síðasta sinn á þessu tímabili. Reiknað er með að tekjurnar nemi 4,3 millj- örðum dala, jafnvirði 260 millj- arða króna á tímabilinu. Þetta er 300 milljónum dala meira en í fyrra. Akstursíþróttin, sem fer fram víða um heim, er ein af vin- sælustu íþróttagreinum í heimi en talið er að tæplega sex hundr- uð milljónir manna fylgist með henni á hverju ári. Mestar líkur eru á að McLaren- liðið verði það ríkasta þegar yfir- standandi mótaröð lýkur, en það hefur tekið tæpa 27 milljarða króna í kassann á keppnistímabil- inu. Fast á hæla McLaren kemur Toyota-liðið, sem tók inn 84 millj- ónum krónum minna. Spyker- liðið, sem í síðasta mánuði var selt til indverska kaupsýslumannsins Vijay Mallya, rekur lestina með rétt rúma 3,2 milljarða króna. Til samanburðar námu tekjur Real Madrid, ríkasta knattspyrnu- félags í heimi, 292,2 milljónum evra, jafnvirði 25 milljarða ís- lenskra króna, á síðasta ári. Af einstökum ökuþórum er Finninn Kimi Räikkönen tekju- hæstur en reiknað er með að hann fái á bilinu 32 til 40 milljónir dala, jafnvirði rúmra 1,9 til 2,4 milljarða íslenskra króna, í vas- ann á keppnistímabilinu. Gangi björtustu vonir hans eftir verð- ur hann þrátt fyrir það hálfdrætt- ingur á við sjöfalda heimsmeist- arann, Michael Schumacher, sem tók inn áttatíu milljónir dala á ári áður en hann dró sig í hlé frá frekari keppni í Formúlunni í fyrra. Räikkönen launahæstur Formúlumótaröðinni lýkur um helgina. Allt stefnir í að McLaren-liðið verði það tekjuhæsta við keppnislok. Forsvarsmenn Baugs Group í Bretlandi eru sagðir bera ví- urnar í Jurek Piasecki, stofn- anda og fyrrum forstjóra skart- gripakeðjunnar Goldsmiths, næststærstu skartgripakeðju Bretlands í aldarfjórðung, um kaup á hlutum hans í keðjunni. Baugur festi sér meirihluta í Goldsmiths í félagi við Kaldbak hf., Feng hf., sem nú heitir Fons og þeir Pálmi Haraldsson og Jó- hannes Kristinsson fara fyrir, og Bank of Scotland fyrir þrem- ur árum og greiddi fyrir 110 milljónir punda, jafnvirði 14,4 milljarða króna, að þávirði. Baugur sagði Piasecki óvænt upp störfum seint í september og setti nýjan forstjóra í hans stað. Forstjórinn fyrrverandi situr enn á 15 prósenta hlut í Goldsmiths, sem verðlagður er á um 12 milljónir punda, jafn- virði 1,5 milljarða króna. Breska dagblaðið The Obser- ver segir litlar líkur á að Pias- ecki gangi fús að boði Baugs enda sé hann sterkefnaður og eigi Baugi litlar þakkir fyrir. - jab Baugur vill hluti fyrrverandi forstjóra Heimsmarkaðsverð á hráolíu snarhækkaði á fjármálamörk- uðum í Bandaríkjunum á mánu- dag. Það fór í hæstu hæðir sam- hliða vaxandi spennu í Tyrk- landi og kulda í Bandaríkjunum, sem eykur alla jafna eftirspurn eftir olíu til húshitunar. Þetta olli því að olíutunnan fór í rúma 86 dali, sem er hæsta verð sem nokkru sinni hefur verið greitt fyrir svartagullið og stóð það enn í methæðum í gær. Aukin eftirspurn eftir olíu og eldsneyti á nýmörkuðum, svo sem á Indlandi og Kína, hefur keyrt verðið upp síðastliðin sex ár og hefur verð á olíutunnu fjórfaldast á sama tímabili. Fréttastofa Reuters hafði eftir fjármálasérfræðingi hjá bandaríska bankanum Citi- group á mánudag að hann sæi ekki fram á mikla lækkun í bráð og útilokaði ekki að olían gæti farið í allt að 90 dali á tunnu á næstunni. - jab Olíuverð aldrei hærra Hagnaður bandaríska leikfangaframleiðandans Mattel nam 236,8 milljónum dala, jafnvirði tæpra 14,3 milljarða ís- lenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta er eins prósents samdráttur frá sama tíma í fyrra þrátt fyrir þriggja prósenta söluaukningu. Samdrátturinn skrifast að mestu á kostnað vegna innkallana á tuttugu milljónum leikfanga sem framleidd voru undir merkjum Mattel í Kína. Of mikið af blýi var í málningu þeirra auk þess sem litlir seglar voru í einhverjum þeirra, sem geta reynst smábörnum lífshættulegir. Þótt fyrirtækið telji sig hafa brugðist of harkalega við fréttunum á sínum tíma hafi öryggisreglur verktaka þess í austurvegi verið hertar til muna. Reiknað er með að kostnaður Mattel vegna þessa hlaupi á 40 milljónum dala, jafnvirði rúmra 2,4 milljarða íslenskra króna. - jab Innköllun var Mattel dýr Svo getur farið að fólk af er- lendu bergi brotið sem býr í Bretlandi og greiðir enga skatta vegna tekna af fjárfestingum utan landsteina þurfi að greiða 30 þúsund pund, 3,7 milljón- ir íslenskra króna, frá og með apríl á næsta ári. Tillögur þessa efnis voru kynntar í drögum að fjár- lagafrumvarpi bresku ríkisstjórnarinn- ar í síðustu viku. Breska blaðið Sunday Times tekur dæmi af auðkýf- ingum á borð við rússneska olígarkann Roman Abramovich, eiganda knattspyrnuliðsins Chelsea, og indverska stálkónginn Lakshmi Mittal, einn ríkasta mann sem búsettur er í Bretlandi. Þeir greiða ekki skatta í Bret- landi enda tekjuhliðar þeirra að mestu utan land- steinanna. Tekið er fram upp í frum- varpinu að erlendir atvinnu- rekendur þurfi að hafa verið búsettir í Bret- landi í sjö ár og geta sýnt fram á hagsmuni sína erlendis áður en nefskatturinn er sett- ur á þá í stað almennr- ar skattlagningar. - jab Nefskattur vofir yfir erlendum fjárfestum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.