Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN 17. OKTÓBER 2007 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A S K Ý R I N G é litið yfir feril Ólafs Ragnar fyrstu tíu mánuði þessa árs sést að hann hefur beitt sér mjög fyrir því að opna dyr íslenskra athafna- manna víðs vegar um heiminn. Af samtölum við forystumenn íslenskra fyr- irtækja sem starfa á erlendum vettvangi er ljóst að framlag forsetans hefur oft skipt máli. Pólitísk kænska forsetans gerir honum líka kleift að nýta sér fundi, eins og með forseta Kína, til að hvetja embættis- menn, þar sem afstaða ráðamanna skiptir miklu máli, til að beita sér í þágu íslenskra fyrirtækja. Á fundum vitnar hann iðulega í samtöl sín við háttsetta ráðamenn til að sannfæra viðstadda um tækifærin sem liggja í samstarfi við Íslendinga. Forsetinn hefur verið gagnrýndur fyrir að nota embættið með þessum hætti. Séu þessi verk hans hins vegar skoðuð í víðu samhengi má sjá að að þessi áhersla hans er aðeins einn þáttur í starfi forset- ans. Iðulega tengir hann saman uppákomur á vegum fyr- irtækja erlendis við aðrar heimsóknir þar sem rætt er um menntun, forvarnir, menningarmál eða samfélagsmál. Ólafur Ragnar Grímsson hefur á fundum og í ræðum lagt mesta áherslu á orku- og loftslags- mál. Þar telur hann Íslendinga eiga sókn- arfæri á al- þjóðlegum vettvangi og fyrir því vill hann beita sér í embætti. Forsetinn talar fyrir atvinnulífið Utanlandsferðir forseta Íslands á árinu 2007 3. maí 2007 K A U P M A N N A H Ö F N D A N M Ö R K Ólafur Ragnar Grímsson opnar nýja skrifstofu FL Group í Kaupmannahöfn og ræðir nýja áfanga í útrás íslenskra fyrirtækja. Þá ræðir hann um mikla möguleika sem felast í nýtingu á hreinni orku. 27. apríl 2007 M A N I T O B A K A N A D A Ólafur Ragnar fer yfir sameiginleg viðskipta- tækifæri sem eru til staðar fyrir Íslendinga og Kanadamenn. Þar eru einnig Halldór J. Kristjánsson frá Landsbankanum og Magnús Þorsteinsson frá Eimskip. 4. júní 2007 M O N T E - C A R L O M Ó N A K O Forseti Íslands situr samráðsfund leiðtoga evr- ópskra smáríkja um umhverfismál þar sem rætt er um hættur sem yfirvofandi loftslagsbreytingar skapa mannkyninu. 28. júní 2007 I S T A N B Ú L T Y R K L A N D Ólafur Ragnar Grímsson fjallar á þingi OECD um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og þann lær- dóm sem draga má af nýtingu Íslendinga á endur- nýjanlegum orkugjöfum eins og jarðhita. 5. september 2007 N E W Y O R K B A N D A R Í K I N Ólafur Ragnar opnar skrifstofu Glitnis í New York. Sagt frá því að Iceland American Energy sé að hefja boranir í þjóðgarði Kaliforníu og ætli að leggja hitaveitu á skíðasvæði ríkisins. 11. september 2007 L E E D S E N G L A N D Forseti Íslands opnar skrifstofu Eimskips í Leeds sem sögð er sú umhverfisvænasta í Bretlandi. Leggur áherslu á orkusparnað á viðskiptalegum forsendum. 19. september 2007 B Ú K A R E S T R Ú M E N Í A Forsetinn fer í opinbera heimsókn til Rúmeníu og viðskiptasendinefnd fulltrúa 25 fyrirtækja fylgir honum. Lýsir vilja þarlendra ráðamanna til að eiga samstarf við Íslendinga um orkumál. Viðstaddur opnun starfsstöðva Lýsis, íslenskra byggingaverktaka og Askar Capital. 25. september 2007 W A S H I N G T O N B A N D A R Í K I N Forseti Íslands flytur ræðu í Harvard háskóla í fyrirlestraröð um framtíð orkunnar. Í sömu ferð kom hann fyrir orkunefnd öldungardeildar Bandaríkjaþings og ræddi nýtingu jarðhita. 28. september kynnir hann Bill Clinton, ásamt Guðmundi Þóroddssyni, áform REI að fjárfesta í jarðvarmaverkefni í Afríku. 2. október 2007 P E K I N G K Í N A Ólafur Ragnar fundar með forseta Kína og ræðir víðtækt samstarf á mörgum sviðum. Hann opnar frystigeymslu í Qingdao og er viðstaddur undirrit- un samnings ORF-líftækni við kínverskt lyfjafyrir- tæki, Þá heimsækir hann Landsbankann í Hong Kong og er viðstaddur opnun skrifstofu Össurar í Sjanghæ. 13. október 2007 L O S A N G E L E S B A N D A R Í K I N Ólafur Ragnar Grímsson opnar höfuðstöðvar Iceland America Energy, sem er dótturfélag Enex, í Los Angeles. Félagið vinnur að bygg- ingu gufuaflsvirkjana í Kaliforníu. 22. janúar 2007 N Ý J A - D E L Í I N D L A N D Forseti Íslands flytur ræðu á alþjóðlegri ráðsetefnu um sjálfbæra þróun og tekur sæti í Þróunarráði Indlands. 30. janúar 2007 E D I N B O R G S K O T L A N D Ólafur Ragnar Grímsson fundar með Bill Gates og ræðir meðal annars viðskiptatækifæri á íslandi. 9. febrúar 2007 K A U P M A N N A H Ö F N D A N M Ö R K Ólafur Ragnar flytur ræðu á málþingi Dansk Industri og Dansk-íslenska verslunarráðinu í Kaupmannahöfn ásamt Hannesi Smárasyni, for- stjóra FL Group, og Herði Arnarsyni forstjóra Marel. 23. febrúar 2007 O S L Ó N O R E G U R Forseti Íslands heimsækir höfuðstöðvar ýmissa fyrirtækja í Noregi eins og Glitnis, BNBank, Kaupþings, Norsk Hydro og Actavis. 29. mars 2007 W A S H I N G T O N B A N D A R Í K I N Forsetinn ræðir við bandaríska ráðamenn um sam- starfsverkefni um endurnýjanlega orku og baráttu gegn loftlagsbreytingum. Einnig er hann með fyrir- lestur í Harvard. 15 7 5 13 10 2 11 4 3 6 8 12 9 1 14 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 Efni funda forseta Íslands Forseti Íslands hefur átt um 150 fundi með hinu og þessu fólki það sem af er þessu ári. Fundirnir hafa bæði verið hér- lendis og erlendis. Greint er frá helstu umræðuefnum fundanna á heimasíðu forsetaembættisins. Þau skiptast í þá meginflokka sem sjást hér til hliðar. Inni í þessari flokkun eru ekki þau fjölmörgu erindi og ávörp sem forsetinn hefur haldið á árinu við ýmis tækifæri. Umræðuefni Tíðni Orkumál/loftslagsmál 42 Viðskipti milli landa 34 Vísinda- og menntamál 24 Samfélagsmál 18 Menningarmál 12 Íþróttir og forvarnir 8 Þróunarstarf 7 Alþjóðamál 6 Ólafur Ragnar Grímsson segir að þjóðin verði að gera það upp við sig hvort hún vilji að forseti Íslands beiti sér fyrir því að styrkja stöðu Íslands á heimsvettvangi, hvort sem er á sviðum viðskipta, vísinda, tækni eða menningar, eða sé fyrst og fremst til heimabrúks. Björgvin Guðmundsson fór yfir verkefni forseta Íslands það sem af er þessu ári.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.