Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 25
H A U S MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 Ú T T E K T etja sig í stellingar ingar hjá hjá tveimur stærstu félögunum á því sviði. Nýherji sækir fram með son kynnti sér breytingarnar, en hluti af Teymisfléttunni er sala á Opnum Í síbreytilegu umhverfi upp- lýsingatækninnar skiptir höfuð- máli fyrir fyrirtæki sem í þeim geira starfa að skilgreina starf- semi sína rétt, segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja. Félagið hefur síðustu ár gengið í gegnum markvisst breytinga- ferli og er nú stærsta upplýs- ingatæknifélag landsins, með veltu upp á 13 milljarða króna, með um 70 prósent af starf- semi sinni í dótturfyrirtækj- um. Þórður bendir á að fyrir ör- fáum árum hafi stór fyrirtæki á upplýsingatæknimarkaði hér byggt starfsemi sína á ákveðn- um vörumerkjum og varningi. Þar var Nýherji engin undan- tekning í samstarfi við IBM, en einnig mætti nefna í því samhengi Tæknival, Streng með Navision, EJS með Dell og Teymi hið eldra sem byggði á Oracle lausnum. „Við höfum breikkað okkur og flust úr því að selja vörur og þjónusta þær yfir í lausnafyrirtæki þar sem við horfum til þarfa og óska viðskiptavinarins. Hlutverk- ið er að þekkja þarfir hans og koma fram með lausnir sem uppfylla þær,“ segir Þórður. Hluti af þessu segir hann aukið framboð af ráðgjöf og mark- viss uppbygging sérhæfðrar þekkingar innan Nýherjasam- stæðunnar. Þórður segir miklu hafa verið kostað til á ári hverju í að byggja upp þessa þekkingu innan fyrirtækisins, tugum og jafnvel hundruðum milljóna króna á ári. Um leið hefur Nýherji tekið þann pól í hæðina að fara var- lega í útrás og einbeita sér þar að þeim sviðum þar sem styrk- leiki fyrirtækisins liggur hér heima. „Við ákváðum til dæmis að fara ekki út í vörusölu í út- löndum heldur fórum við í að byggja upp SAP ráðgjöf undir nafni AppliCon. Svo keyptum við lítið danskt fyrirtæki sem er meira í ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsinga- og fjar- skiptatækni. Það er svona 20 til 30 manna fyrirtækið í Óðins- véum, en svo höfum við líka opnað skrifstofu í Kaupmanna- höfn og Kolling í Jótlandi. Þar fetum við okkur áfram á þess- ari braut sem kjarnastarfsemi Nýherja er í.“ Núna kann hins vegar að vera að því komið að uppskera í hlutfalli við það sem til hefur verið sáð. Um leið vill Þórður fara varlega í yfirlýsingar í þeim efnum, enda sé umbreyt- ing fyrirtækisins stöðugt og áframhaldandi verkefni í sí- kviku umhverfi upplýsinga- tækninnar. „En ég held það sé alveg tilefni til ákveðinnar bjartsýni.“ Mikilvægi þess að staðsetja sig rétt og skilgreina starfsem- ina segir Þórður endurspegl- ast í því hversu tækniþróun sé ör og starfsumhverfið því stöðugt að taka breytingum. „Og það sér ekkert fyrir end- ann á þeirri þróun,“ segir hann og gantast með að sjá megi samsvörun í sölu á bæði vél- og hugbúnaði og öðrum iðnaði sem Íslendingar þekki vel til. „Ef bara er horft til fartölva sést að ný útgáfa kemur fram á þriggja til sex mánaða fresti og líftíminn því eins og salt- fiskur, en hann hafði líftíma í þrjá til sex mánuði og það var sá rammi sem menn höfðu til að selja hann. Þessu er svipað farið með tölvurnar.“ Hluti af breytingum sem Nýherji hefur gengið í gegn- um síðustu ár er uppbygging viðskiptahugbúnaðareining- ar í AppliCon. „Þá höfum við byggt upp viðskiptaráðgjafar- einingu í ParX og hýsingar- og rekstrarþjónustueiningu í Umsjá sem er vörumerki hér innanhúss.“ Aukinheldur hefur Nýherji byggt upp „digital living“ verslun Sense í Kópa- vogi. „Þar byggjum við upp stafrænar lausnir sem við setj- um upp bæði í fyrirtækjum og heimilum. Dæmi er sýning- in í Þjóðminjasafninu þar sem að baki liggur geysilega flók- inn og viðamikill tölvubúnað- ur sem okkar fólk hefur sett upp. En í þessum efnum er sjón sögu ríkari og virkilega gaman að koma í verslunina.“ Þórður segir vörusölu þó vitan- lega enn stóran hluta af starf- semi Nýherja þótt áherslan sé á lausnirnar. „Með kaupunum á TM Software kemur náttúr- lega rekstrarþjónusta, svo sem með Skyggni sem er stærsta rekstrarþjónustufyrirtæki landsins. Svo er Origo mjög sterkt í samþættingu og vef- lausnum,“ segir hann og bendir á að eftir kaupin á TM Software verði um 65 prósent af tekjum Nýherja á sviði þjónusturáð- gjafar og hugbúnaðar, en 55 prósent af vörusölu. „Breyting- in er mjög mikil því vörusalan hefur aukist mjög mikið. Hitt hefur bara vaxið hraðar.“ Þórður vill ógjarnan tala um að víglínur hafi skerpst við breytingarnar á eignarhaldi fyrirtækja á upplýsingatækni- markaði hér síðustu daga. Enda sé það þannig að þótt fyrirtæki keppi hér á einstökum sviðum þá hafi þau kannski samstarf á öðrum. „Hér eru fáir á markaði og samstarf við símafyrirtæk- in og fleiri. Menn vinna bæði saman og keppa og það gengur allt eðlilega fyrir sig, gjarnan nefnt co-opetition. En lands- lagið hefur verið að breytast mjög hratt, rétt eins og gerst hefur erlendis.“ Miklu kostað til í umbreytingarferli íma bæði fyrirtækjakaup og trás og hefur ávallt skilað sínu il eigandans.“ Frosti segist líta dálítið á Opin kerfi sem barnið sitt, enda ann hann að stofnun HP á Ís- andi snemma á níunda áratug íðustu aldar. HP á Íslandi varð vo að Opnum kerfum. Síðla árs 004 gerði Kögun yfirtökutilboð Opin kerfi Group og fór undir amstæðu Teymis við skiptingu Dagsbrúnar í tvö félög undir ok síðasta árs. Frosti áréttar ó að aðkoma hans að félaginu é önnur núna. „Ég starfa sem járfestir og kem að félaginu em slíkur, en treysti stjórn- ndateymi félagsins fyrir dag- egum rekstri.“ Meðal annarra járfestingarverkefna Frosta r eignarhlutur í Heklu, lyfja- yrirtækið Invent Farma í Bar- elona og 40 prósenta hlutur Títan en þar á Síminn líka immtungshlut. Frosti segir hins vegar að reynslu sinnar vegna hafi hann viljað horfa til upplýsinga- tækniiðnaðarins áfram. „Ég hef áður sýnt Opnum kerfum áhuga án þess að það gengi eftir, en núna kom það upp að menn ætluðu að selja ís- lensku eininguna eina en hana þekki ég vel og lít á sem gott fjárfestingartækifæri. Fyrir- tækið er gott og hefur skilað góðum árangri í gegnum tíð- ina.“ Þá segist Frosti vonast til þess að Títan og Opin kerfi nái að vinna saman á mark- aðnum þar sem það á við. „En ég lít svo á að stærstu keppi- nautarnir séu Nýherji og EJS. Upplýsingatæknimarkaðurinn er hins vegar stór og pláss fyrir mörg fyrirtæki, sum sér- hæfð og önnur með mjög breitt úrval þjónustu. Upplýsinga- tækni snertir í dag eiginlega alla þætti í okkar lífi.“ ma með nýjum formerkjum ypt Opin kerfi ehf. og segir fjölda tækifæra í upplýsingatæknigeira.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.