Fréttablaðið - 17.10.2007, Page 14
17. OKTÓBER 2007 MIÐVIKUDAGUR6 skipulag&hönnun
Úrslit í hugmyndasamkeppni
Reykjavíkurborgar um upp-
byggingu í Kvosinni liggja
sem kunnugt er fyrir, en þar er
stefnt að því að sameina fortíð,
nútíð og framtíð.
„Ólík sjónarmið hafa einkennt
umræðuna um uppbyggingu í
Kvosinni. Sumir vilja helst sem
minnst gera, aðrir vilja endur-
byggja húsin sem brunnu og enn
aðrir rífa allt saman og byggja
upp á nýtt. Við teljum að hægt
sé að sameina allt þrennt, fortíð,
nútíð og framtíð.“
Þetta segir arkitektinn Steve
Crister frá Studio Granda, sem
ásamt arkitektastofunum Argos
og Gullinsnið stendur að verð-
launatillögu í hugmyndasam-
keppni Reykjavíkurborgar um
uppbyggingu í Kvosinni.
Samkvæmt tillögunni er geng-
ið út frá varðveislu húsa sem fyrir
eru og endurbyggingu þeirra sem
eyðilögðust í brunanum.
Steve bendir í því samhengi
á að það þurfi að ákvarða hvaða
tímapunkt menn vilji miða við,
þar sem húsin eigi sér mörg langa
sögu og hafi tekið miklum breyt-
ingum í tímans rás.
Þá er leitað aftur í fortíðina
með flutningi Lækjargötu 4 ofan
úr Árbæjarsafni og á sinn gamla
stað. Ráðgert er að byggja þar
fyrir aftan hús sem dregur dám
af Thorvaldsen Magasin, en það
þótti afar glæsilegt, og rífa skál-
ann á bak við Hressó til að endur-
skapa skrúðgarð Árna Thorsteins-
sonar.
„Loks horfum við til framtíðar
með því að bæta við nýjum bygg-
ingum og leyfa sumum þeirra
eldri að stækka og breytast eftir
þörfum,“ segir Steve.
„Götumyndin er þannig bætt og
húsin löguð að nútímaþörfum án
þess að rýra gildi þeirra.“
Að sögn Steves er síðan næsta
skref að ræða við borgaryfir-
völd og hagsmunaaðila til að sjá
hvernig best sé að þróa tillöguna
áfram, svo að úr verði heildar-
hugmynd sem þjóni hagsmunum
borgarbúa allra.
Hér til hliðar má sjá hönnuðina,
sem heiðurinn eiga að verðlaunatil-
lögunni, á góðri stundu ásamt mið-
bæjarskipulaginu eins og það liti út
frá þeirra hendi.
Kvosin í fortíð, nútíð og framtíð
Steve Christer, Stefán Örn Stefánsson
frá Argos, Margrét Harðardóttir frá
Studio Granda og Hjörleifur Stefánsson,
frá Gullinsniði eru á meðal þeirra sem
standa að baki verðlaunatillögunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Verðlaunatillagan gengur út frá varðveislu, að gamlar byggingar verði fluttar í mið-
bæinn og uppbyggingu nýrra.
Nýja bíó.
Húsgagnabólstrun Ragnars
Björnssonar ehf. var stofnuð
1943 og hefur framleitt
springdýnur og rúm í sextíu
ár. Fyrirtækið er meðlimur í
heimssamtökunum ISPA, sem
eru gæðasamtök fyrirtækja
sem sérhæfa sig í framleiðslu
og hönnun á springdýnum.
Markmiðið er að vera í farar-
broddi á þróun og framleiðslu
á springdýnum.
Springdýnurnar hjá RB
rúmum koma í öllum stærðum
og gerðum með mismunandi
stífleika sem fer eftir þyngd
þeirra sem hvíla á dýnunum.
Dýnurnar hafa verið fram-
leiddar hér á Íslandi í 60 ár og
hægt er að velja um fjórar teg-
undir. Þær eru RB venjulegar,
Ull-deluxe, Super-deluxe og
Grand-deluxe.
Fjórir stífleikar eru í boði
fyrir allar þessar fjórar tegund-
ir, mjúk, medíum, stíf og extra-
stíf, allt eftir óskum hvers og
eins. Fyrirtækið getur breytt
stífleika springdýnanna og er
eina þjónustufyrirtækið á sínu
sviði sem býður upp á endur-
hönnun á springdýnum eftir
áralanga notkun. Fyrirtækið
framleiðir einnig sérhannaðar
sjúkradýnur, dýnur fyrir hótel
og stofnanir.
Ásamt springdýnunum eru
einnig í boði lyfturúm, í ýmsum
stærðum sérhönnuð í rúmstæði
og einnig frístandandi. Bæði
springdýnur og þrýstijöfnunar-
dýnur þar sem ýmist er hægt
að lyfta höfðalagi og fótlagi
með fjarstýringu. Ásamt lyfti-
rúmunum er RB einnig með
Nolterúm í ýmsum stærð-
um, svokölluð sælurúm. Þau
eru auðstillanleg með þráð-
lausri fjarstýringu, nuddi og
minni fyrir hinar ýmsu still-
ingar og útfærslur. Hægt er
að velja um mismunandi stíf-
leika á springdýnurnar í sælu-
rúmunum.
Einnig sérhæfir fyrirtækið
sig í hönnun og bólstrun á rúm-
göflum, viðhaldi og viðgerðum
á springdýnum og eldri hús-
gögnum. RB rúm eru með sýn-
ingaraðstöðu að Dalshrauni 8 í
Hafnarfirði og að sögn starfs-
manna er leitast við að svara
öllum fyrirspurnum ljúflega
klukkan 9.00-18.00 alla virka
daga og milli klukkan 10.00 og
14.00 á laugardögum. Sími: 555
0397. Heimasíða: www.rbrum.
is - rh
Springdýnur í sextíu ár
Húsgagnabólstrun Ragnars Björnssonar ehf. hefur framleitt springdýnur í
sextíu ár.