Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 17.10.2007, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 13skipulag&hönnun fréttablaðið Byggingarlist í augnhæð er heiti nýrrar kennslubókar í byggingar- list fyrir grunnskóla landsins sem áætlað er að komi út fyrir næstu jól. „Ég hafði orðið vör við mikla þörf fyrir námsefni í byggingar- list fyrir börn og ungt fólk. Svo réði Arkitektafélag Íslands mig til að búa til slíka bók og hún hefur verið í þróun síðustu tvö ár,“ segir höfundurinn Guja Dögg Hauks- dóttir, sem starfar sem deildar- stjóri byggingarlistar á Listasafni Reykjavíkur. „Mig langaði þó ekki til að gera eitthvert skraufþurrt námsefni heldur kennslubók sem miðaði við „learning by doing“-aðferðina, þar sem skynjun og skilningur fara hönd í hönd,“ útskýrir hún og bætir við að Byggingarlist í augn- hæð skiptist í hlutana heima, inni og úti, þar sem tekið er á megin- þáttum byggingarlistar. „Fjallað er um grunnhugtök, sem tengjast vellíðan eða vitund um fegurð með tilvísun í heim- ili, skóla og nánasta umhverfi. Í hlutanum „inni“ er farið í megin- uppbyggingaraðferðir húsa sem tengjast rými. „Úti“ er loks helg- aður ytra formi húsa og mismun- andi stefnum í byggingarlist gegn- um tíðina.“ Guja segir bókina vera innlegg í vitundarvakninguna um mikil- vægi skapandi hugsunar, sem hefur orðið í Norður-Evrópu og hérlendis. „Ég hef ásamt fleirum mótað alþjóðlegt námsefni í bygg- ingarlist og sjónrænni hönnun, sem er víða kennt og innan ólíkra greina. Ég hafði það einmitt að leiðarljósi við gerð þessarar bókar að hana yrði hægt að kenna innan mismunandi greina, enda spannar hún breitt svið.“ Þess má geta að sýning með sömu yfirskrift stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum, en henni er ætlað að veita innsýn í meginviðfangs- efni bókarinnar. Skapandi hugsun er sett í stærra hlutverk Á sýningunni Byggingarlist í augnhæð gefst gestum meðal annars kostur á að taka virkan þátt í sýningunni með því að byggja líkan úr trélistum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Arkitektinn Guja Dögg stefnir á útgáfu kennslubókar í byggingarlist. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR Krakkarnir fá að brjóta saman gogg með spurningum um byggingarlist Kjarvalsstaða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Smiðjuvegur 74 – 200 Kópavogur – 5 400 600 Reykjalundur – 270 Mosfellsbær – 530 1700 Lónsbakki 2 – 601 Akureyri – 460 1760 A ug lý si ng as ím i – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.