Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 22
 17. OKTÓBER 2007 MIÐVIKUDAGUR14 skipulag&hönnun Reynir Sýrusson húsgagna- hönnuður hefur opnað hönn- unarstofu þar sem áhersla er lögð á fallega og frumlega íslenska hönnun. Reyni Sýrusson þekkja flestir sem fylgjast með íslenskri hönnun enda hefur hann látið til sín taka á nánast öllum sviðum húsgagna- hönnunar frá því hann kom heim úr hönnunarnámi í Danmörku árið 2000. Á dögunum lét þessi þúsund- þjalasmiður síðan gamlan draum rætast þegar hann opnaði hönn- unarstofuna Syrusson að Hamra- borg 5 í Kópavogi. „Ég hef verið að vinna að því að opna stofu frá því að ég kom heim úr námi,“ segir Reynir og eftir- væntingin leynir sér ekki. „Frá þeim tíma hefur húsgagna- hönnunin verið kvöld- og næturvinna. Ég hef aldrei leyft mér að vera sýnilegur þar sem ég var í annarri dag- vinnu. Á þessu ári kúplaði ég mig síðan frá öllu öðru til að geta opnað stofuna og sinnt hönn- uninni. Með þessu vil ég fá útrás fyrir mitt aðaláhugamál og koma íslenskri húsgagnahönnun á hærra plan.“ Hönnunarstofa af þessu tagi, þar sem algjörlega er einblínt á íslenska húsgagnahönnun með útstillingarrými fyrir viðskiptavini, telst til nýjunga á Íslandi að sögn Reynis. Starfsmenn stofunnar eru þrír að Reyni meðtöldum. Hann á í nánu samstarfi við íslenska framleið- endur um útfærslur á hugmynd- um sínum, sem þurfa að hafa notagildi, vera framleiðsluvænar á Íslandi og ekki síst flottar. Þessi þrjú atriði liggja til grundvallar allri hans sköpun. „Maður reynir að fara milliveginn, en stundum verður útlitið aðeins ofan á,“ viður- kennir hann. Þessa daga beinist sköpunar- kraftur Reynis mest að sýning- unni Hönnun + heimili 2007, þar sem hann mun sýna hluti sem hafa notið vinsælda og eins áður óséða hönnun. Þar á meðal eru nýir stólar, fatahengi, borð og fiskabúr, sem mun vafalaust vekja mikla at- hygli fyrir nýstárlegt útlit. Þeir sem vilja taka forskot á sæluna geta litið við á nýopnaðri stofu Reynis í Kópavogi eða kíkt á heimasíðuna www.syrusson.is. Flott og frumleg hönnun í fyrirrúmi Reynir Sýrusson húsgagna- hönnuður hefur opnað hönnunar- stofu með útstillingarrými. Framleiðsluvænt, notadrjúgt og flott eru þau þrjú orð sem lýsa hönnun Reynis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fiskabúrið varð til þegar Reynir og samstarfsmenn hans ákváðu að lífga upp á stof- una. Búrið er rörlaga og hangir á fíngerðum festingum. Reynir segir það tilraun til að gera fiskabúr að mublu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þjónusta sveitarfélagsins Árborg Sveitarfélagið Árborg mun sjá um alla almenna þjónustu við Byggðarhorn á sama hátt og aðra skipulagða byggð í sveitarfélaginu. Þar á meðal er skólaakstur, sorphirða, vatsnveita, hitaveita, viðhald vega, snjómokstur, tæming rotþróa ásamt annarri þjónustu og gæslu samkvæmt samþykkt- um sveitarfélagsins. Á Selfossi eru bæði grunnskólar og Fjölbrautaskóli Suðurlands. Þar er einnig heilbrigðisþjónusta. Sjá nánar undir www.arborg.is Vatnsveita Árborgar hefur umsjón með hönnun, lagningu og rekstri vatnsveitu á svæðinu. Selfossveitur annast hönnun, lagningu og rekst- ur hitaveitu að Byggðarhorni. FASTEIGNASÖLURNAR VEITA ALLAR UPPLÝSINGAR 17 19 56 54 52 50 13 15 11 9 7 5 3 24 28 34 32 3036 38 40 42 44 46 48 26 BYGGÐARHORN F= 6.4ha F= 7.4ha F= 7.7ha F= 7.5ha F= 7.7ha F= 7.2ha F= 7.5ha F= 7.9ha F= 6.9ha F= 6.7ha F= 7.3ha F= 7.2ha F= 7.3ha F= 1.9ha F= 1.8ha F= 3.6ha F= 3.8ha F= 4.0ha F= 3.4haF= 3.6ha F= 3.9ha F= 3.9ha F= 7.9ha F= 3.6ha F= 3.1ha F= 10.9ha Arkitektastofan ARKITEÓ hefur unnið hugmynda- vinnu í samstarfi við Byggðarhorn. Niðurstaða þeirrar vinnu er framandi og glæsileg í senn. Nánari upp- lýsingar, vinsamlegast hafið samband við ARKITEO www.arkiteo.is og netfang arkiteo@arkiteo.is eða söluaðila Byggðarhorns.is Atvinnusvæði höfuðborgarsvæðissins hefur á síðustu árum teygt út anga sína og á síðastliðnum árum hefur suðurlandið verið fjölsótt sem byggðarlag.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.