Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 17.10.2007, Qupperneq 32
4,5% 301 45,18%B A N K A H Ó L F I Ð Ölgerð Egils Skallagrímssonar virðist vera ágæt uppeldisstöð fyrir bankakerfið. Þannig hafa nokkrir millistjórnendur flutt sig af vettvangi gosdrykkjanna og bjórsins yfir í peningana. Sá sem hefur verið nokkuð í umræðunni út af REI-klúðrinu, Jón Diðrik Jónsson, var til dæmis forstjóri Ölgerðarinnar áður en hann varð framkvæmdastjóri og síðar forstjóri hjá Glitni. Björn Ársæll Pétursson hefur einnig starfað hjá Ölgerðinni sem sölustjóri. Hann var líka stjórnarformaður REI á undan Bjarna Ármannssyni. Nú hefur Landsbankinn til- kynnt að Björn Ársæll muni stýra skrifstofu bankans í Hong Kong sem öll Asía er undir. Góðir sölumenn eru gulls ígildi fyrir öll fyrir- tæki. Úr ölinu Alan Greenspan, fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefur oft þótt furðulegur fýr. Nú þeysist hann um til að kynna nýútkomna bók sína. Greenspan var þekktur fyrir að tala niður verðbólguna og BusinessWeek segir enga verðbólgu hafa hlaup- ið í egó kappans þrátt fyrir athyglina. Hann setur engin skilyrði fyrir viðtölum, mætir einn án nokkurs undirbúnings og þiggur ráðleggingar um klæða- burð frá konu sinni. Fyrir við- talið í 60 mínútum, sem sýnt var á Stöð 2 fyrir skömmu, skipulagði hann ferð og hótelgist- ingu sjálfur og greiddi fyrir. Hann h e i l l a ð i fjölmiðla- fólkið end- anlega við að þiggja „fréttastofu- kaffið“. Bólguegó Eftir því sem fjármálalíf og viðskiptagjörningar hafa orðið flóknari hafa bankar og aðrar fjármálastofnanir síðustu ár sóst í auknum mæli eftir hámennt- uðu starfsfólki með annan grunn að baki en í viðskiptum og hag- fræði. Eðlisfræðingar, stærð- fræðingar og verkfræðingar eru heitir. Til marks um það barst Markaðnum til eyrna á dögunum að bankarnir hefðu ráðið alla þá rafmagnsverkfræðinga sem útskrifuðust frá Háskóla Íslands í vor og enginn þeirra því farið í önnur störf utan fjármála- geirans. Varð einum heimildar- manna á orði að bankarnir hefðu hreinsað upp allt nýja blóðið á markaðnum. Allir ráðnir í bankana Gutenberg Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 545 4400 Fax 545 4401 www.gutenberg.is Gutenberg er leiðandi prentfyrirtæki á Íslandi. Við höfum yfir 100 ára reynslu í prentiðnaði og allan þann tíma höfum við lagt áherslu á að vera fremst á okkar sviði. Hver viðskiptavinur fær þá þjónustu sem hann þarfnast hjá Gutenberg. Þarfir hvers og eins eru mismunandi en þú getur verið viss um að fá úrlausn þinna mála hjá okkur. Sköpun þín verður áþreifanleg hjá Gutenberg Gerum það rétt, og gott betur H im in n o g h af / S ÍA - 9 0 7 1 0 1 2 SPRON Verðbréf Peningamarkaðssjóður SPRON 15,3% ávöxtun* Vegmúla 2 – 108 Reykjavík – 550 1310 – verdbref@spron.is – www.spronverdbref.is Safnaðu því sem skiptir máli *Nafnávöxtun miðast við 31. ágúst 2006 til 31. júlí 2007, uppreiknað á ársgrundvelli. Peningamarkaðssjóður SPRON er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is. Engar aukakrónur, engir punktar, bara alvöruávöxtun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.