Fréttablaðið - 26.11.2007, Side 6
6 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR
ATTRACTIVE RYKKÚSTUR
Afflurrkunarkústur sem afraf-
magnar. Langir flræ›ir sem ná í
afskekktustu afkima og skilja
ekkert eftir! Ótrúlega sni›ugt!
fiú flarft enga fötu, fyllir bara brúsann me›
vatni og hreinsiefni. Ótrúlega einfalt!
MOPPUSETT FLASH M/SPREYBRÚSA
Ármúla 23 • Reykjavík
Sími: 510 0000
Mi›ási 7 • Egilsstö›um
Sími: 470 0000
Brekkustíg 39 • Njar›vík
Sími: 420 0000
Grundargötu 61 • Grundarfir›i
Sími: 430 0000
- hrein fagmennska!
20% afsláttur
fiRIFIN VERÐA
LEIKUR EINN
ULTRAMAX MOPPUSETT
Blaut- og flurrmoppur fyrir allar
ger›ir gólfa. Fatan vindur fyrir
flig. Hrein snilld!
LÖGREGLUMÁL Annar litháískur
maður sem búsettur er hér á
landi var handtekinn á þriðju-
dag ásamt Tomasi Malakauskas,
sem dæmdur var fyrir aðild sína
að líkfundarmálinu svokallaða
árið 2004. Á manninum fundust
nokkrir tugir gramma af
amfetamíni.
Að sögn Friðriks Smára
Björgvinssonar, yfirlögreglu-
þjóns á höfuðborgarsvæðinu, er
ekki talið að mennirnir hafi hist
í þeim tilgangi að versla með
fíkniefni. Malakauskas var
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
30. nóvember og verður ákærð-
ur fyrir fíkniefnabrot og að
virða ekki endurkomubann.
Að sögn Friðriks Smára er
ekki vitað hvað honum gekk til
með komunni til landsins.
Maður tekinn með Malakauskas:
Fundu eiturlyf
á öðrum Litháa
Keyptir þú eitthvað á „kauptu
ekkert-deginum“?
Já 37,2%
Nei 62,8%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hyggstu dvelja á Íslandi yfir
jólin?
Segðu skoðun þína á visir.is
ORKA „Þetta fer ekkert gegn hvort
öðru og það er ekkert ósamræmi í
mínum orðum,“ segir Júlíus Vífill
Ingvarsson, borgarfulltrúi sjálf-
stæðismanna, spurður hvað valdi
stefnubreytingu þeirri sem má
greina hjá honum í Fréttablaðinu
í gær.
Júlíus sagði þá að sjálfstæðis-
menn hefðu aldrei verið á móti
því að REI væri í útrás. Borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
ályktuðu hins vegar hinn 7.
október að selja ætti hlut Orku-
veitu í REI. Opinber rekstur og
einkarekstur væri eins og olía og
vatn.
Nú segir Júlíus að REI, í fullri
eigu Orkuveitunnar, megi í fram-
tíðinni fara í útrás og með öðrum
einkafyrirtækj-
um í framtíð-
inni.
„Málið snýst
um að Orku-
veitan sjálf eigi
ekki að vera í
útrás. REI má
alveg vera í
henni, til þess
var hún
stofnuð,“ segir
hann. Ekkert
ósamræmi sé í framsögu hans
milli mánaða. Afstaða sjálfstæðis-
manna þá hafi ekki markast af
andúð í garð REI, heldur út í
ferlið sjálft, mikla hlutafjáraukn-
ingu og skort á upplýsingum.
Hinn 15. október var einnig
haft eftir Júlíusi í Fréttablaðinu
að Orkuveitan ætti ekki að taka
þátt í útrásarverkefnum. Til
umræðu var skoðanakönnun
blaðsins sem sýndi að meirihluti
Reykvíkinga væri sammála þeirri
skoðun hans. Þá sagði Júlíus ljóst
að Reykvíkingar væru að taka
undir með sjálfstæðismönnum
um að OR ætti fyrst og fremst að
tryggja borgar búum heitt og kalt
vatn og fráveitu.
Júlíus hélt sömu skoðun fram í
útvarpsfréttum 7. október, þegar
hann sagði að rétt væri að selja 35
prósenta hlut Orkuveitunnar í
REI hið fyrsta. „Ef Orkuveitan er
aflögufær í sínum rekstri, þá á
auðvitað hagnaður félagsins að
renna í þágu borgarbúa og þá
myndi ég fyrst og fremst vilja sjá
það renna til gjaldskrárgreiðenda,
það er að segja til neytenda Orku-
veitu Reykjavíkur, með lækkaðri
gjaldskrá,“ sagði Júlíus þá.
Einnig má benda á ummæli
Gísla Marteins Baldurssonar,
borgarfulltrúa sjálfstæðismanna,
þegar hann sagði eftirfarandi á
sáttafundi sjálfstæðismanna hinn
7. október: „Við töldum að þetta
væri rekstur sem borgin ætti ekki
að vera í.“
klemens@frettabladid.is
Júlíus Vífill vildi
enga útrás í október
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna, sagði í fjölmiðlum í
október að OR ætti ekki að taka þátt í útrás. Hún ætti því að selja hlut sinn í
REI. Í gær sagði Júlíus að hann hefði aldrei sagt að REI ætti ekki að vera í útrás.
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
HELLISHEIÐARVIRKJUN Júlíus Vífill sagði að væri Orkuveitan aflögufær í sínum rekstri
ætti hagnaður félagsins fyrst og fremst að renna til gjaldskrárgreiðenda.
FRÉTTABLABLAÐIÐ/GVA
Málið snýst um að Orku-
veitan sjálf eigi ekki að
vera í útrás. REI má alveg vera í
henni, til þess var hún stofnuð.
JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON
BORGARFULLTRÚI SJÁLFSTÆÐISMANNA
KÍNA, AP Nicolas Sarkozy Frakk-
landsforseti kom til Peking í gær
og snæddi þar kvöldverð með Hu
Jintao forseta í fyrstu heimsókn
sinni til Kína.
Yfir matarborðum mælti Sar-
kozy með því að Kínverjar kvæðu
upp færri líflátsdóma.
„Ég er ekki að biðja um að þeim
verði alveg hætt, heldur hraða
þeirri þróun sem á sér eðlilega
stað,“ sagði Sarkozy og gætti þess
að tala af fyllstu kurteisi við kín-
verska forsetann.
Hu svaraði því til að hann „von-
aði að málin þróuðust með þeim
hætti að dauðarefsingum yrði
sjaldnar beitt“.
Annars er búist við því að Sar-
kozy muni einkum ræða um við-
skipti ríkjanna og umhverfismál í
þriggja daga heimsókn sinni í
Kína. - gb
SARKOZY Í KÍNA Frakklandsforseti skoðaði meðal annars hermannastytturnar í borg-
inni Xian. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti í opinberri heimsókn í Kína:
Mælir með færri líflátsdómum
SÝRLAND, AP Stjórnvöld í Sýrlandi
sögðust í gær ætla að senda
fulltrúa sinn til fundarins í
Annapolis í Bandaríkjunum, þar
sem Palestínumenn og Ísraelar
ætla að reyna að koma friðarvið-
ræðum af stað á nýjan leik.
Hamas-hreyfingin, sem ræður
ríkjum á Gaza-strönd, fordæmdi í
gær ráðstefnuna og sagði að
Mahmoud Abbas, forseti Palest-
ínustjórnar, væri ekki fulltrúi
hennar. - gb
Fundurinn í Annapolis:
Sýrlendingar
ætla að mæta
LEIT Franski vísindamaðurinn
Judicael Bruno Arnold Decriem,
starfsmaður Raunvísindastofnun-
ar Háskóla Íslands, fannst heill á
húfi um hálftvö aðfaranótt
sunnudags. Björgunarsveitir
Landsbjargar voru kallaðar út á
ellefta tímanum á laugardags-
kvöldið þegar Decriem hafði ekki
skilað sér til byggða á tilsettum
tíma.
Decriem hafði ætlað að taka
niður átta staðsetningarsenda sem
staðsettir eru allt frá Þórisvatni
að Kálfafelli en hafði fest bíl sinn
í á í Klappargildi skammt vestan
við Eldgjá og hafði dúsað í bílnum
frá því á fimmtudag. - ghs
Franski vísindamaðurinn:
Sat fastur í þrjá
sólarhringa
Dominos-ræningjar ófundnir
Drengirnir fimm eða sex sem reyndu
að ræna Dominos-stað í Spönginni í
Grafarvogi á föstudagskvöld eru enn
ófundnir. Rannsókn lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu stendur yfir.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HÚSNÆÐISMÁL Hundrað og fimmtíu
stúdentaíbúðir bætast við háskóla-
svæði Keilis á Vallarheiði í desem-
ber. Mun íbúum svæðisins þá
fjölga um 300 til 400 manns og
íbúafjöldi á svæðinu verður um
1.100 til 1.200 manns.
Leiguverð er frá 34.000 krónum
fyrir 36 fermetra einstaklingsíbúð
til 90.000 króna fyrir 190 fermetra,
sex herbergja fjölskylduíbúð.
Innifalið í leigunni er rafmagn,
hiti, net og strætisvagnaferðir til
Reykjavíkur.
Til samanburðar er leiguverð
fyrir 36 fermetra einstaklingsíbúð
hjá Stúdentagörðum í Reykjavík
47.000 krónur og 87.000 krónur
fyrir 100 fermetra, fjögurra her-
bergja fjölskylduíbúð, sem er
stærsta sú í boði.
Runólfur Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Keilis, segist skynja
þörfina á ódýru húsnæði fyrir
námsmenn. Tæplega hundrað
manns eru á biðlista Keilis og um
1.100 stúdentar bíða eftir húsnæði
á stúdentagörðum í Reykjavík.
Reykvískir háskólanemar nýta
sér óspart ókeypis strætó frá
Vallar heiði til Reykjavíkur, sem
gengur sjö sinnum á dag.
Á Vallarheiði stunda flestir íbú-
anna nám við Háskóla Íslands, en
aðrir nema við frumgreinadeild
Keilis á svæðinu. - eb
150 leiguíbúðir bætast í desember við þær sem nú eru á gamla varnarsvæðinu:
Meðalstórt þéttbýli myndast
KEFLAVÍKURVÖLLUR Íbúar á svæði Keilis
á Keflavíkurvelli verða á bilinu 1.100 til
1.200 manns á næstunni.
KJÖRKASSINN