Fréttablaðið - 26.11.2007, Side 8
26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR
RÚSSLAND, AP Tugir stjórnarand-
stæðinga voru handteknir í Rúss-
landi í gær fyrir að taka þátt í
mótmælafundi í Pétursborg,
aðeins viku fyrir þingkosningar.
Meðal hinna handteknu voru
stjórnmálaleiðtogar og þingfram-
bjóðendur.
Hundruð lögregluþjóna, gráir
fyrir járnum, réðust til atlögu
gegn hópi mótmælenda sem höfðu
safnast saman í Pétursborg og
hrópuðu „Rússland án Pútíns“.
Á laugardaginn hafði lögreglan
einnig handtekið tugi mótmæl-
enda sem tóku þátt í svipuðum
aðgerðum í Moskvu.
Meðal hinna handteknu í
Moskvu var Garrí Kasparov, fyrr-
verandi heimsmeistari í skák,
sem er einn harðasti andstæðingur
Vladimírs Pútín forseta. Í Péturs-
borg voru meðal annarra hand-
teknir stjórnmálamennirnir Boris
Nemtsov og Nikita Belykh, leið-
togar Bandalags hægriafla. Þeir
eru báðir í framboði til þings og
Nemtsov er talinn líklegur til að
bjóða sig fram gegn Pútín í forseta-
kjöri á næsta ári.
„Stjórnvöld hafa reynt að lama
kosningabaráttu okkar með því að
handtaka óbreytta flokksfélaga
úti í héruðunum og gera kosninga-
skrif okkar upptæk, og nú hafa
þau ráðist til atlögu gegn leið-
togum okkar,“ segir í yfirlýsingu
frá Bandalagi hægri afla, sem er
frjálslyndur hægriflokkur sem
berst fyrir markaðsfrelsi.
„Það sem við sjáum í Péturs-
borg núna líkist hernaðaraðgerð-
um,“ sagði Olga Kurnusova, sem
er í forystusveit Annars Rúss-
lands, bandalags stjórnarand-
stöðuflokka, sem skipulagði mót-
mælafundina bæði í Moskvu og
Pétursborg. „Þetta sýnir ótta
stjórnvalda.“
„Óeirðalögreglan barði mig
með kylfum í höfuðið þangað til
ég missti meðvitund,“ sagði Alex-
ander Shurshov, þingframbjóð-
andi Yabloko-flokksins, sem var
einn hinna handteknu.
Undanfarna mánuði hefur
óeirðalögreglunni í Rússlandi
hvað eftir annað verið beitt gegn
mótmælafundum gegn stjórn
Pútíns. Í ríkisfjölmiðlunum, einu
sjónvarpsstöðvunum sem ná til
allra landsmanna, er lítið sem
ekkert sagt frá þessum mótmæl-
um.
Á hinn bóginn hefur kosninga-
barátta stjórnarflokks Pútíns
fengið mikið vægi í ríkisfjölmiðl-
unum og greinilegt að stjórnin
leggur allt kapp á að hljóta stóran
sigur í þingkosningunum 2.
desember.
gudsteinn@frettabladid.is
STJÓRNMÁLALEIÐTOGI HANDTEKINN Meðal hinna handteknu í Pétursborg var Boris
Nemtsov, leiðtogi Bandalags hægri afla. Nemtsov er í framboði til þings og þykir
líklegur til að bjóða sig fram gegn Vladimír Pútín í forsetakosningum á næsta ári.
NORDICPHOTOS/AFP
Óeirðalögreglu beitt
gegn mótmælum
Stjórnmálaleiðtogar frjálslyndra flokka eru meðal þeirra sem handteknir voru
í Moskvu og Pétursborg um helgina. Aðgerðir gegn stjórnarandstöðunni sagðar
líkjast hernaðaraðgerðum.
Óeirðalögreglan barði
mig í höfuðið þangað til
ég missti meðvitund.
ALEXANDER SHURSHOW
FRAMBJÓÐANDI YABLOKO-FLOKKSINS
ÞRÓUNARMÁL Lyklar að fyrsta
framhaldsskólanum í Malaví sem
fjármagnaður var af Íslending-
um voru afhentir yfirvöldum á
fimmtudaginn í síðustu viku.
„Afhendingin markar tímamót
í sögu Þróunarsamvinnu stofn-
unar Íslands í Malaví þar sem
þetta er í fyrsta sinn sem byggður
er framhaldsskóli fyrir íslenskt
fé. Frá árinu 1995 hefur stofnun-
in einbeitt sér að byggingu barna-
skóla,“ segir Stella Samúels dóttir,
verkefnastjóri Þróunar stofnunar-
innar í félagslegum verkefnum í
Malaví. Skólinn er einnig sá fyrsti
sem stofnunin lætur byggja eftir
nýrri umhverfisvænni aðferð
með sólþurrkuðum múrsteinum
úr sementsblöndu og jarðvegi.
Skólinn er í þorpinu Nankhwali í
Mangochi-héraði þar sem stofnun-
in hefur unnið að ýmsum verk-
efnum undanfarin ár.
Fjölmenni var við afhending-
una. Þar á meðal voru höfðingjar,
kennarar og skólastjórnendur,
nemendur, foreldrar, menn frá
héraðsyfirvöldum og frá mennta-
málayfirvöldum landsins. „Í
ræðum kom fram mikið þakklæti
til Þróunarsamvinnustofnunar
fyrir þann stuðning sem stofnunin
veitir til menntamála í Mengochi-
héraði,“ segir Stella.
- jse
Afhending skólahúss markar tímamót í sögu Þróunarsamvinnustofnunar:
Byggðu framhaldsskóla í Malaví
FRÁ AFHENDINGU Skafti Jónsson,
umdæmisstjóri Þróunarsamvinnu-
stofnunar í Malaví, afhendir fulltrúa
menntamálayfirvalda lyklana að nýja
framhaldsskólanum.
Paratabs®
– Öflugur verkjabani!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
9
0
2
5
-
A
c
ta
v
is
7
0
8
0
0
3
Notkunarsvið: Paratabs®-Parasetamól 500 mg er verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Paratabs® er
m.a. notað við höfuðverk, tannverk og tíðaverk. Paratabs® er einnig notað við sótthita, t.d. af völdum
inflúensu og umgangspesta. Skömmtun: Fullorðnir og börn eldri en 12 ára (>40 kg) 1–2 töflur á 4–6
klst. fresti, mest 8 töflur á sólarhring eða 4000 mg. Börn, 7–12 ára (25–40 kg), ½–1 tafla á 4–6 klst.
fresti, mest 4 töflur á sólarhring eða 2000 mg. Börn, 3–7 ára (15–25 kg), ½ tafla á 4–6 klst. fresti, mest
4 sinnum á sólarhring eða 1000 mg. Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir parasetamóli eða
einhverju hjálparefnanna eiga ekki að nota Paratabs®. Gæta skal varúðar hjá sjúklingum með skerta
lifrar- og nýrnastarfsemi. Einstaklingar með áfengisvandamál skulu ekki nota Paratabs® án samráðs
við lækni og alls ekki samhliða neyslu áfengis. Ef teknir eru stærri skammtar en ráðlagðir hámarks-
skammtar á sólarhring er hætt við alvarlegum lifrarskemmdum. Lyfið má ekki nota ef um
lifrarsjúkdóm er að ræða. Meðganga og brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta er af notkun parasetamóls
á meðgöngu. Parasetamól skilst út í brjóstamjólk en hættan á áhrifum á barnið er ólíkleg við
ráðlagða skammta. Aukaverkanir: Parasetamól þolist almennt vel, aukaverkanir eru sjaldgæfar ef
ráðlögðum skömmtum er fylgt, helst er að nefna ofnæmi, útbrot og lifrarskemmdir. Lifrarskemmdir
við notkun parasetamóls hafa komið fram í tengslum við misnotkun áfengis, eins getur langvarandi
notkun parasetamóls valdið nýrnaskemmdum. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu.
Geymið ávallt þar sem börn hvorki ná til né sjá. 15. júní 2007.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Kúbuveisla
LÖGREGLUMÁL Framið var 21 kyn-
ferðisbrot í Laugardal á síðasta
ári en það eru jafn mörg og framin
voru í miðborg Reykjavíkur. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í
skýrslu um afbrot á höfuðborgar-
svæðinu sem Rannveig Þóris dóttir
og Benjamín Gíslason unnu fyrir
lögregluna.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
sagðist ekki kunna skýringu á
þessum mikla fjölda kynferðis-
brota í Laugardal. „Þetta eru
reyndar mikið til blygðunarsemis-
brot og alls ekki allra alvarlegustu
kynferðisbrotin sem þarna um
ræðir. En það er engu að síður til-
efni til að skoða þessar tölur með
það að markmiði að átta okkur á
því hvernig við eigum að bregðast
við.“
Rannveig segir að þarna sé lík-
lega um tilviljun að ræða sem gefi
alls ekki tilefni til að draga of
miklar ályktanir af. Til dæmis
voru þessi brot einungis sex í
Laugardal einu ári áður.
Laugardalur kom ekki vel út í
skýrslunni en 9,4 prósent allra
brota á höfuðborgarsvæðinu voru
framin þar. Það er fjórða hæsta
hlutfallið á eftir miðborginni,
Breiðholti og Kópavogi. - jse
Jafnmörg kynferðisbrot framin í Laugardal og miðborg Reykjavíkur:
21 kynferðisbrot framið í Laugardal
KYNFERÐISBROT
ÁRIÐ 2006
Brot samtals
Fjöldi
Árbær 6
Breiðholt 16
Garðabær 2
Grafarholt 1
Grafarvogur 12
Hafnarfjörður 14
Háaleiti 10
Hlíðar 12
Kjalarnes 1
Kópavogur 7
Laugardalur 21
Miðborg 21
Mosfellsbær 4
Seltjarnarnes 4
Vesturbær 6
Annað 11
Samtals 148
LAUGARDALUR Flest brotin sem framin
eru í dalnum eru blygðunarsemisbrot.