Fréttablaðið - 26.11.2007, Side 10
10 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR
ALLT BREYTIST
28. NÓVEMBER
Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar
Á Hilton Reykjavík Nordica
miðvikudaginn 28. nóvember kl. 8:15-9:30
STAÐA OG HORFUR Í EFNAHAGSMÁLUM
EVRÓPUMÁL Í nýrri skýrslu sem
lögð hefur verið fram sem vinnu-
skjal í sameiginlegu EES-þing-
mannanefndarinni segir, að í ljósi
þeirra miklu breytinga sem orðið
hafi og séu að verða á stjórnar-
háttum og stofnanauppbyggingu
Evrópusambandsins síðan EES-
samningurinn var gerður sé það
orðin spurning „hvort unnt sé að
una við óbreytt ástand lagalega,
praktíst og pólitískt séð“.
„Við erum bara að velta upp
stöðunni og það er engin niður-
staða í sjálfu sér. Þetta er upphaf
að ferli innan nefndarinnar, þar
sem við erum að fara að ræða
þessi mál,“ segir Katrín Júlíus-
dóttir, alþingismaður úr Samfylk-
ingu, sem er annar höfunda skýrsl-
unnar ásamt Diönu Wallis,
Evrópuþingmanni úr röðum
breskra Frjálslyndra.
Meðal þess sem velt er upp í
skýrslunni er hvort það væri pólit-
ískt fær leið að reyna að fá samn-
inginn uppfærðan.
Í utanríkisráðherratíð Halldórs
Ásgrímssonar, fyrst veturinn
2001-2002 og síðan í tengslum við
samningana um aðlögun EES-
samningsins að stækkun ESB árið
2004, voru settar í gang umleitanir
um að laga lagalegan grunn samn-
ingsins að þeim breytingum sem
orðið hefðu á sáttmálagrunni ESB
síðan EES-samningurinn var gerð-
ur árið 1992. Þær umleitanir fengu
hins vegar dræmar undirtektir
bæði af hálfu fulltrúa Evrópusam-
bandsins í Brussel og Norðmanna,
sem töldu óráðlegt að reyna að
„opna“ samninginn með þessum
hætti þar sem það byði hættunni
heim á að ESB gerði kröfur um
breytingar sem yllu því að EFTA-
ríkin teldu betur heima setið en af
stað farið.
Spurð út í þetta segir Katrín að
vissulega hafi þetta sjónarmið
komið upp í umræðu um skýrsl-
una. „En auðvitað kemur líka upp
það sjónarmið, að sambandið sé
bara að taka það miklum breyting-
um, að mögulega sé það hreinlega
ekki forsvaranlegt fyrir okkur að
gera ekkert í málinu,“ segir hún.
Það megi gera með ýmsum hætti;
„Þar sem er vilji er til leið.“
Nýta þurfi allar leiðir sem
EFTA-ríkjunum standi opnar til að
hafa áhrif; ein þeirra sé að þjóð-
þing EFTA-ríkjanna opni tengsla-
skrifstofu hjá Evrópuþinginu, þar
sem það hefur stóraukið áhrif sín í
löggjafarferli ESB. EES-samning-
urinn gerir ekki ráð fyrir neinum
tengslum fulltrúa EFTA-ríkjanna
við þing ESB.
audunn@frettabladid.is
EES þarf að
nýta betur
Í nýrri þingmannaskýrslu segir að ræða þurfi hvort
unnt sé að una við óbreytt fyrirkomulag á EES-sam-
starfinu. Miklir hagsmunir séu í húfi fyrir EFTA-ríkin.
EVRÓPUÞINGIÐ Því er varpað fram að
þjóðþing EFTA-ríkjanna komi sér upp
tengslaskrifstofu hjá Evrópuþinginu, í
ljósi þess hve völd þess hafa vaxið.
NORDICPHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGSMÁL Áform tveggja
aðila eru uppi um að hefja vinnslu
að nýju í frystihúsinu á Bíldudal.
Lítið sem ekkert hefur verið
unnið í frystihúsinu frá því
Bílddælingur lagði niður starf-
semi fyrir tveimur og hálfu ári.
Umsóknir um byggðakvóta
liggja nú fyrir hjá bæjarráði
Vesturbyggðar sem hefur frestað
því að taka afstöðu. Ástæðan er sú
að aðeins hefur verið úthlutað 700
tonnum af 4.385 heildarbyggða-
kvóta og vonast er til að afgangur-
inn flytjist til þessa fiskveiðiárs.
Það eru forráðamenn Perlu-
fisks ehf. og Jón Þórðarson sem
standa að umsóknunum. - jse
Atvinna á Bíldudal:
Vilja hefja
vinnslu á ný
BANGLADESS, AP Varnaðarorð
heyrðust hrópuð úr hátölurum sem
ýmist voru festir við pálmatré,
staðsettir á moskuþökum eða
skorðaðir á milli stýrishandfanga á
reiðhjólum. Skilaboðin bárust mun
víðar en menn höfðu þorað að vona.
„Líf hundruð þúsunda björguð-
ust vegna þess að fólk fékk
viðvörun í tæka tíð og var flutt
burt,“ segir Ian Rector, helsti
tækniráðgjafi Sameinuðu þjóðanna
fyrir nýja almannavarnakerfið í
Bangladess. „Þeir unnu frábært
starf.“
Fellibylurinn Sidr reið yfir
Bangladess af gífurlegum þunga í
síðustu viku. Meira en þrjú þúsund
manns fórust og hundruð þúsunda
misstu heimili sitt, en mannfallið
varð þó ekki nema brot af því sem
sambærileg óveður hafa valdið á
þessum slóðum áður.
Hátt í hálf milljón manna lét lífið
árið 1970 þegar fellibylur reið
þarna yfir og árið 1991 fórust 140
þúsund.
Maryam Golnaraghi, yfirmaður
hamfaradeildar Alþjóðaveður-
fræðistofnunarinnar, segir að
mannfallið af völdum Sidr hefði
getað orðið svipað og þegar
flóðbylgjan mikla reið yfir Asíu
árið 2004, en þá fórust meira en
230 þúsund manns í meira en tíu
löndum.
„Maður verður að hrósa þessu
landi fyrir að setja upp þetta
kerfi,“ segir Golnaraghi. „Þetta var
virkilega vel gert hjá þeim.“ - gb
Nýtt almannavarnakerfi reyndist vel þegar fellibylurinn Sidr reið yfir Bangladess:
Hundruð þúsunda björguðust
BEÐIÐ EFTIR NAUÐÞURFTUM Hundruð
þúsunda misstu heimili sitt af völdum
óveðursins. NORDICPHOTOS/AFP
KVENNASAMTÖK MÓTMÆLA
Á Filippseyjum efndu kvennasam-
tökin Gabríela í gær til mótmæla
gegn Gloríu Arroyo forseta í tilefni af
alþjóðlegum degi gegn ofbeldi gegn
konum. Kvennasamtökin krefjast þess
að Arroyo segi af sér vegna þess að
hún eigi sjálf stærstan þátt í ofbeldi
gegn konum þar í landi.
NORDICPHOTOS/AFP