Fréttablaðið - 26.11.2007, Side 20
[ ]
Stuart Haygarth býr til
ljósakrónur úr endurnýttum
hlutum.
Breski hönnuðurinn Stuart
Haygarth fer ekki hefð-
bundnar leiðir við gerð
ljósakróna sinna. Meðal
sköpunarverka hans eru
ljósakróna gerð úr partí-
sprengjum og önnur úr alls
konar rusli, allt frá sólgler-
augum til plastgreiðu. Þrátt
fyrir að hráefnið í krónurnar
kosti ekki mikið koma þær
bara ljómandi vel út.
solveig@frettabladid.is
Tide Chandelier-ljósakrónan er
nokkurs konar ruslakróna. Hún er
hluti af verkefni Haygarth þar sem
hann býr til hluti úr manngerðu
rusli sem skolað hefur á strendur
við Kent í Bretlandi.
Spectacle heitir
þessi fallega
króna. Hún
er búin til úr
1.020 gler-
augum sem
eru spengd
saman til að
mynda klass-
ískt ljósakrónu-
form.
Árþúsunda-
krónan
(Millennium
Chandelier) er
búin til úr þús-
und notuðum
partísprengj-
um sem safn-
að var saman
1. janúar 2000.
Hver sprengja
hangir á þræði
og þegar hreyf-
ing kemur á
loftið sveiflast
krónan eins og
lifandi vera.
Lýst upp með gleraugum,
partísprengjum og rusli
Eitthvað fyrir
stelpurnar
HVAÐ ER STELPULEGRA EN BORÐ-
BÚNAÐUR MEÐ BLEIKUM DOPPUM,
PERLUM OG SMÁSKRAUTI?
Hella Jongerius hefur hannað
þetta krúttlega keramíksett fyrir
artecnica og kallast það „beads &
pieces“, eða perlur og smáhlutir á
íslensku. Í settinu eru fjórir hlutir,
flaska og þrjár stærðir af skálum.
Á bak við þessa hönnun er þó
æðri hugsjón en sú að gera dúllu-
legt matarstell. Hlutirnir eru unnir
af handverksmönnum í helstu
kókaínræktunarhéruðum Perú.
Hver einasti hlutur er handgerð-
ur og skreyttur með mismunandi
perlum. Uppruni keramíksettsins
er greinilegur í hönnun þess og
eru mjúkar línur í svörtu kera míki
einkennandi fyrir leirkerasmíð í
Perú. Fíngerðar bleikar perlurnar
eru síðan einkennandi fyrir hönn-
un jongerius. Keramíkblómvend-
ir og tréperlur eru dásamlega list-
ræn samsetning og úr verður ein-
stakt matarsett.
- hs
Skógarskuggar og
kynjadýr
TORD BOONTJE FÆST MIKIÐ VIÐ NÁTTÚRUNA
Í Í HÖNNUN SINNI OG OFTAR EN EKKI MÁ SJÁ
BREGÐA FYRIR SKÓGARDÝRUM OG GRÓÐRI
Í HÖNNUN HANS.
Þessi gardína eða skilrúm er þar engin
undantekning. Tjaldið kallast „þar til í
dögun” og með því má kalla fram fallega
og spennandi skugga og áferð. Tjaldið má
nota ýmist sem gardínu, skilrúm eða vegg-
skraut og er það gert úr efninu tyvek sem
er sérstaklega sterkt pappaefni. Það er
hita- og vatnshelt og afar slitsterkt. Með
tjaldinu fylgja lykkjur úr frönskum rennilás
svo auðveldara sé að hengja það upp en
nauðsynlegt er að handþvo tjaldið þegar
það er þrifið. Tjaldið fæst í svörtu og hvítu.
- - hs
Ofnhanskar eru einstaklega handhægir og nauðsynlegir á
heimilinu. Ekki er ráðlegt að reka berar lúkurnar inn í sjóðheit-
an ofninn þegar sækja skal afrakstur eldamennskunnar eða
baksturs ins og eru ofnhanskar því líka öryggistæki.
Shadey family- ljósakrónuna mótaði
Haygarth úr fjölda glerlampaskerma
sem hann safnaði víða að. Einn og
sér er hver skermur frekar óásjálegur
en saman mynda þeir skemmtilegt
ljós. Krónan minnir Haygarth á fjöl-
skyldu þar sem allir einstaklingarnir
eru ólíkir en saman eru þeir ein heild.
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir