Fréttablaðið - 26.11.2007, Side 52
24 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> VISSIR ÞÚ?
Óskarsverðlaunahafinn Charlize Theron
þolir ekki að vera fræg. „Að vera elt
af sjö bílum þegar ég versla í matinn
er bara ekki skemmtilegt,“ segir leik-
konan, sem skilur ekki þá miklu at-
hygli sem kvikmyndastjörnur fá. „Það
er ótrúlegt viðhorf að finnast í lagi að
ráðast inn í einkalíf leikara starfs þeirra
vegna.“
Leikkonan Sara Dögg
Ásgeirsdóttir leikur aðal-
hlutverkið í nýrri íslenskri
spennuþáttaröð sem fengið
hefur nafnið Pressa og
verður frumsýnd á Stöð 2
í desember. Sara ætti að
vera mörgum kunnugleg
því hún lék eftirlitskonuna
í Næturvaktinni nýverið
og aðalhlutverkið í Myrkra-
höfðingjanum á sínum
tíma.
„Ég var fengin til þess að mæta í
prufu fyrir Pressu, fékk hlut-
verkið og varð auðvitað alveg
hoppandi glöð með það,“ segir
Sara Dögg. „Ég leik unga konu
sem heitir Lára og fer að starfa
sem blaðamaður á dagblaði. Hún
flækist þar inn í spennandi
atburðarás, en ég held það sé best
að segja sem minnst um hana.“
Margir bíða spenntir eftir sýn-
ingu þáttanna því að baki þeim
stendur einvalalið leikara og
handritshöfunda. Þeir Óskar
Jónas son og Sigurjón Kjartans-
son bjuggu til umgjörðina og í
framhaldinu voru margir af
bestu glæpasagnahöfundum
landsins fengnir til að skrifa ein-
staka þætti. „Það var mjög gaman
að taka þátt í þessu. Það hefur
ekki verið gerð svona margra
þátta sería af spennuþáttum á
Íslandi áður. Þetta verður mjög
spennandi. Handritið er skothelt
og það skemmir aldrei.“
Sara Dögg útskrifaðist úr leik-
listarnámi árið 2005 en sjö árum
áður lék hún aðalkvenhlutverkið
í Myrkrahöfðingjanum eftir
Hrafn Gunnlaugsson. „Þá var ég
nú bara stelpuskott, ætli ég hafi
ekki verið rétt rúmlega tvítug.
Seinna lék ég í Kaldaljósi hjá
Hilmari Oddssyni en hef ekki
verið í bíómynd síðan, ef frá er
talið smáhlutverk í Börnum. Ég
var ólétt þegar ég útskrifaðist úr
skólanum og langaði að taka mér
tíma í að sinna móðurhlutverkinu
og upplifa það. Þess vegna byrj-
aði ég ekki að leika fyrr en síð-
asta haust. Þá lék ég í Þjóðarsál-
inni í Reiðhöll Gusts og það
kveikti á manni eftir að hafa
verið í bómullarhnoðranum í
smástund. Þessi sköpunarneisti
er svo sterkur,“ segir Sara Dögg,
sem starfar nú í Borgarleikhús-
inu og hefur tekið að sér hlutverk
í Fýsn eftir áramót.
Hlutverk eftirlitskonunnar sem
heimsótti starfsmenn Nætur-
vaktarinnar, fékk að skoða nýtt
farartæki Ólafs Ragnars og gerði
úttekt á störfum Georgs var erfitt
þegar kom að því að halda andlit-
inu, að sögn Söru Daggar. „Ég
sprakk einu sinni alveg skelfilega
þegar ég var að leika á móti Jóni
Gnarr,“ segir Sara Dögg og hlær.
„Ég þurfti hreinlega að taka mér
pásu til að taka það út. Það var
verst þegar maður sá að hinir
leikararnir voru við það að gefa
sig, þá sprakk maður alveg.
Þættirnir voru teknir upp á nótt-
unni og það skapaðist víst alltaf
einhver óróleiki um þrjúleytið!“
sigrunosk@frettabladid.is
Erfitt að leika á móti Jóni
Gnarr í Næturvaktinni
SKOTHELT HANDRIT Sara Dögg Ásgeirsdóttir leikur Láru í Pressu, nýjum íslenskum
spennuþáttum. „Handritið er skothelt og það skemmir aldrei,“ segir hún.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Söngkonan Beyoncé Knowles
hefur hingað til verið þekktust
fyrir R‘nB’-tónlist sína en hefur
nú ákveðið að venda kvæði
sínu í kross og flytja bandaríska
sveitatónlist. Hún hefur fengið
lagahöfundinn Amöndu Ghost til
liðs við sig en hún stendur á bak
við smellinn You´re Beautiful með
söngvaranum James Blunt.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Íbúfen®
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Höfuð, herðar…
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf. Íbúfen er
notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig eftir minniháttar aðgerðir, t.d. tanndrátt.
Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða öðrum skyldum lyfjum (NSAID), með skerta
lifrarstarfsemi eða alvarlegan hjarta- og nýrnasjúkdóm ætti ekki að nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma,
nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja ætti ekki að nota lyfið.
Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað
barnshafandi konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. meltingaróþægindum,
niðurgangi, ógleði, útbrotum, þreytu og höfuðverk. Skammtastærðir: Fullorðnir: Venjulegir skammtar eru
600-2000 mg á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Ekki mælt með stærri skammti en 2400 mg. Börn: Venjulegir
skammtar eru 20 mg/kg líkamsþunga á dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Börnum <30 kg skal eigi gefa meira en
500 mg á dag. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Júlí 2004.
SM
S
LEI
KUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
k
FRUMSÝND 30. NÓVEMBER
SJÁÐU MYNDINA OG SPILAÐU LE IK INN!
SENDU SMS JA HMF Á
NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UN
NIÐ!
V INN INGAR ERU B Í
ÓMIÐAR FYR IR TVO
,
H I TMAN LE IK IR , DV
D MYND IR , VARN IN
GUR
TENGDUR MYND INN
I OG MARGT FLE IRA
!
Það er nóg að gerast í ástar-
málunum hjá Sir Paul
McCartney. Hann hefur enn
ekki gengið frá skilnaði sínum
við Heather Mills en er samt
sem áður með tvær konur upp
á arminn. Breska blaðið News
of the World greindi frá því í
gær að McCartney hefði sést á
stefnumótum með leikkonunni
Rosönnu Arquette. Ekki eru
nema þrjár vikur síðan það
komst í heimsfréttirnar að Bít-
illinn fyrrverandi ætti í sam-
bandi við hina forríku Nancy
Shevell.
Heimsfréttablaðið heldur
því fram að Paul McCartney hafi farið á
tvö rómantísk stefnumót með Arquette á
einum sólarhring. Þau fóru fyrst í rómant-
ískan kvöldverð á sunnudags-
kvöldi og fengu sér svo
göngutúr daginn eftir í
almenningsgarði í London.
„Þau voru eins og táningar á
fyrsta stefnumóti. Lík-
amstjáning þeirra sagði
alla söguna, þau voru
næstum samvaxin,“ sagði
einn viðmælenda
blaðsins sem fylgd-
ist með stefnumót-
inu.
Paul og Rosanna
hafa þekkst um
nokkra hríð en
eitthvað gerðist á
milli þeirra í veislu í New York í
júní síðastliðnum. Þá fór afar vel
á með þeim, þótt McCartney hafi
á þeim tíma neitað því að ást væri í spilun-
um. Annað virðist uppi á teningnum núna.
Þetta eru hins vegar engin gleðitíðindi
fyrir Nancy Shevell. Á meðan Paul var á
stefnumótum sínum með Rosönnu var hún
heima í Bandaríkjunum. Þar fagnaði hún
48 ára afmæli sínu einsömul. „Það væri
gaman að vita hversu mikið Nancy veit
um þessa nýju vináttu Pauls. Það eru
ekki nema þrjár vikur síðan hann
veitti henni nákvæmlega þessa
sömu athygli í New York. Hún
verður eflaust ekki ánægð,“
sagði heimildarmaður blaðsins.
Paul McCartney með tvær í takinu
KEMUR VÍÐA VIÐ Sir Paul McCartn-
ey, sem er 65 ára, virðist vera með
tvær konur upp á arminn. Og er enn
kvæntur þeirri þriðju. NORDICPHOTOS/GETTY
SÚ NÝJASTA Leikkonan
Rosanna Arquette, frægust
fyrir hlutverk sín í Pulp
Fiction og Desperately Seek-
ing Susan, er nýjasta ástin í
lífi Bítilsins Pauls McCartney.