Fréttablaðið - 26.11.2007, Side 55
MÁNUDAGUR 26. nóvember 2007 27
ÞÚ
morgun?
LJÓNA
INGUR
Ef væri ég … er þriðja breiðskífa
Regínu Óskar á þremur árum. Sú
fyrsta innihélt ábreiðulög, sú næsta
frumsamin lög eftir aðra höfunda
og nýjasta platan inniheldur lög
sem eru eingöngu samin af Regínu
sjálfri, ásamt Karli Olgeirssyni
sem einnig stjórnaði upptökum og
útsetti. Á síðustu plötu fannst mér
Regína ná almennilega að hrista af
sér bakraddasöngkonustimpilinn
en á Ef væri ég … stígur Regína
skref aftur á bak. Hún er samt
miklu meira en einhver bakradda-
söngkona, svo það komi nú skýrt
fram. Regína er hins vegar ekki
sterkur texta- og lagasmiður. Reg-
ína fær að sjálfsögðu stóran plús
fyrir að semja á íslensku en text-
arnir eru ekki upp á marga fiska,
þar sem einsleitar klisjur og ódýr
kveðskapur fanga mann um of.
Ekki verður samt tekið af Reg-
ínu að hún hefur frábæra söng-
rödd. Það sem mér hefur hins
vegar þótt vanta upp á er flutningur
hennar sem er helst til of skertur
sterkum tilfinningum og einhverri
áþreifanlegri stemningu. Textarnir
fjalla mest um ástina og lífið og
eru flestir á bjartari nótunum.
Samt kemst það illa til skila og auð-
vitað ætti maður að fá þessa stemn-
ingu beint í æð en svo er hins vegar
ekki.
Af því verður heldur ekki skafið
að það votti fyrir örlítilli þreytu á
útsetningum Kalla Olgeirs.
Drengurinn hefur verið ákaflega
afkastamikill undanfarin ár og
hugmyndir hans því margar hverj-
ar útþynntar. Hér fáum við týpískar
tilvísanir í létt diskó, ballöður 10.
áratugarins og fleira léttmeti sem
ná einfaldlega ekki að lyfta lögun-
um upp á hærra plan. Upptökurnar
eru þó hnökralausar og allt undir-
spil nokkuð pottþétt. Góð tónlist
snýst samt einfaldlega um svo
miklu, miklu meira.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Örlar á þreytu
TÓNLIST
Ef væri ég …
Regína Ósk
★★
Bakslag frá síðustu plötu og líður
helst fyrir óspennandi laga- og texta-
smíðar og útþynntar útsetningar.
Bandaríska rokksveitin Velvet
Revolver hefur aflýst tónleikaferð
sinni um Japan eftir að meðlimir
hennar fengu ekki landvistarleyfi.
Ástæðan er sú að þeir hafa ekki
hreint sakavottorð.
„Innflytjendayfirvöld í Japan,
sem taka sífellt harðar á málum,
rannsökuðu bakgrunn meðlima
sveitarinnar, þar á meðal handtökur
þeirra,“ sagði í yfirlýsingu Velvet
Revolver. „Við ætlum að áfrýja
ákvörðuninni.“
Sjaldgæft er að hljómsveitum sé
meinað að koma til Japans þrátt
fyrir frekar harða stefnu stjórn-
valda með landvistarleyfi og í eitur-
lyfjamál. Velvet Revolver spilaði
síðast í Japan fyrir tveimur árum
án nokkurra vandkvæða. „Við skilj-
um ekki hvers vegna yfirvöld veita
okkur ekki landvistarleyfi eins við
fengum árið 2005. Sú tónleikaferð
gekk mjög vel og var skemmtileg
reynsla fyrir okkur. Við elskum
Japan og við hlökkum til að snúa
aftur þangað.“
Tónleikaferð aflýst
VELVET REVOLVER Hljómsveitin Velvet
Revolver er skipuð fyrrverandi meðlimum
Guns N´Roses og Stone Temple Pilots.
Eitt af því sem var spennandi við tónleika Kims
Larsen og Kjukken á laugardagskvöldið var
tónleikastaðurinn. Það er alltaf verið að leita að stað
til að brúa bilið á milli Nasa/Háskólabíós og Laugar-
dalshallar.
Hið nýja íþróttahús Vals við Hlíðarenda, sem hefur
fengið nafnið Vodafone-höllin, gæti komið til greina
og mér vitandi voru þetta fyrstu tónleikarnir þar.
Salurinn var orðinn nokkuð þétt pakkaður þegar
Kim Larsen steig á svið rúmlega níu ásamt hljóm-
sveitinni sinni Kjukken og strax frá upphafi var
ljóst að það var góð stemning í salnum.
Kim Larsen er auðvitað einstakur. Tónlistin sem
Kjukken spilaði á laugardagskvöldið var ekkert
alltaf neitt sérstök. Þetta voru mest rokkslagarar frá
ferli Kims, misgóðar lagasmíðar. En það var tvennt
sem lyfti þessum tónleikum upp úr meðalmennsk-
unni. Í fyrsta lagi sviðskarakter Kims sjálfs og
sviðsframkoma. Karlinn lýsti upp sviðið með
svipbrigðum, látbragði og töktum sem maður getur
ekki annað en hrifist af og glaðst yfir. Í öðru lagi er
Kjukken hörkugott rokkband.
Jesper Rosenkvist trommuleikari var traustur á
settinu, nafni hans Haugaard var hreint út sagt
frábær á bassanum og hljómsveitarstjórinn og gítar-
leikarinn Karsten Skovgaard bætti miklu við lögin
með úthugsuðu plokki, lykkjum og sólóum. Fjöl-
hæfur og flottur gítarleikari. Sjálfur er Kim fínn
ryþmagítarleikari og tók sig vel út með ferkantaða
rauða „Bo Diddley-gítarinn“ og sixpensarann.
Dagskráin samanstóð af lögum frá öllum ferli
Kims Larsen. Allt frá Gasolin-lögum eins og Fifi
Dong og Rabaldestræde yfir í ný lög af plötum
Kjukken. Hápunkturinn kom um miðbik tónleikanna
þegar hljómsveitarmeðlimirnir fjórir röðuðu sér
upp fremst á sviðinu og tóku órafmagnaðar útgáfur
af lögunum Midt om natten, Joanna og Papirsklip.
Þá skein gleðin af hverju andliti í salnum og
margir sungu með. Annar hápunktur kom undir
lokin þegar sveitin fór í rokkgírinn og tók Rabalde-
stræde og Kringsat af fiender. Á milli laga sagði
Kim sögur og brandara. Allt á dönsku að sjálfsögðu.
Skemmtileg tilbreyting það. Eftir hraustlegt
uppklapp kom bandið aftur og tók tvö lög í viðbót.
Kim Larsen & Kjukken spiluðu í tæpa tvo tíma,
yfir tuttugu lög, og tónleikagestir voru almennt mjög
sáttir að sjá þegar þeir yfirgáfu staðinn. Vodafone-
höllin virðist vera prýðilegur tónleika staður.
Hljómur nokkuð góður og fínt svið. Það er helst að
það vanti aðeins fleiri bílastæði … Trausti Júlíusson
Einstakir persónutöfrar
TÓNLEIKAR
Kim Larsen & Kjukken
Vodafone-höllin 24. nóvember
★★★★
Gleðin einkenndi tónleika Kims Larsen og Kjukken í Voda-
fone-höllinni á laugardagskvöldið. Sviðstilþrif og persónu-
töfrar Kims sjálfs ásamt góðri frammistöðu meðspilara
hans í Kjukken skópu vel heppnaða kvöldstund.
GLEÐIGJAFI Kim Larsen átti salinn á tónleikunum á laugar-
dagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR