Fréttablaðið - 26.11.2007, Síða 59
MÁNUDAGUR 26. nóvember 2007 31
N1-deild karla í handbolta:
Valur-Stjarnan 34-29
Mörk Vals (skot): Ernir Hrafn Arnarson 9 (14),
Elvar Friðriksson 8 (10), Baldvin Þorsteinsson
7/3 (10/3), Arnór Malmquist Gunnarsson 6 (9),
Sigfús Sigfússon 2 (4), Ingvar Árnason 1 (2),
Fannar Friðgeirsson 1 (4), Pálmar Pétursson (1),
Gunnar Harðarson (2)
Varin skot: Pálmar Pétursson 20 (48/3) 41,7%,
Ólafur Gíslason (1/1) 0%
Hraðaupphlaup: 10 (Bladvin 3, Arnór 3, Elvar 2,
Fannar, Ernir)
Fiskuð víti: 3 (Elvar 2, Sigfús)
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk Stjörnunnar: Ólafur Víðir Ólafsson 7/3
(10/3), Heimir Örn Árnason 6/1 (11/1), Björgvin
Hólmgeirsson 4 (15), Volodmyr Kysil 3 (5),
Gunnar Ingi Jóhannsson 3 (5), Ragnar Helgason
2 (2), Hermann Björnsson 2 (5), Guðmundur
Guðmundsson 1 (1), Björn Friðriksson 1 (1),
Varin skot: Roland Valur Eradze 2 (11/2) 18,2%,
Hlynur Morthens 17 (42/1) 40,5%
Hraðaupphlaup: 5 (Heimir Örn 2, Gunnar Ingi,
Hermann, Kysil)
Fiskuð víti: 4 (Björn, Heimir Örn, Ólafur Víðir,
Björgvin)
Utan vallar: 6 mínútur
EHF-áskorendakeppnin:
FCK-HK 36-24
Fram-Tur Il Özel Idare 36-20
Mörk Fram (skot): Haraldur Þorvarðarson 6 (8),
Hjörtur Hinriksson 5 (7), Einar Ingi Hrafnsson
4 (5), Filip Kliszczyk 4 (5), Guðjón Finnur
Drengsson 4 (5), Jóhann Gunnar Einarsson 4
(6), Halldór Jóhann Sigfússon 4/2 (5/2), Zoltán
Belányi 3 (5), Jón Björgvin Pétursson 2 (3).
Varin skot: Magnús G. Erlendsson 15 (22/1)
68%, Björgvin P. Gústavsson 14/2 (27/3) 51%.
Hraðaupphlaup: 19 Fiskuð víti: 2
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Emil Hallfreðsson var að
vanda í byrjunarliði Reggina í
jafnteflisleik liðsins við Fiorent-
ina í ítölsku Serie A-deildinni í
gær. Þetta var þriðji leikurinn
liðsins undir stjórn Renzo
Ulivieri og liðið er enn taplaust
undir hans stjórn og komst með
jafnteflinu úr fallsæti. - óþ
Ítalska úrvalsdeildin:
Jafnt hjá Emil
BARÁTTA Emil Hallfreðsson gefur hér
ekkert eftir í leik liðs síns við Fiorentina í
gær. NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
og félagar í Lottomatica Roma
unnu Tisettanta Cantú 67-78 í
ítölsku deildinni í gær. Jón Arnór
átti fínan leik og skoraði 13 stig
og tók 7 fráköst á þeim 27
mínútum sem hann spilaði í
leiknum. Roma-liðið er sem
stendur í öðru sæti í deildinni. - óþ
Ítalski körfuboltinn:
Sigur hjá Roma
HANDBOLTI Valur vann sannfær-
andi sigur á Stjörnunni, 34-29, á
heimavelli þegar liðin mættust í
N1-deild karla í gærkvöldi.
Stjarnan skoraði tvö fyrstu
mörk leiksins en Valur tók öll völd
á vellinum eftir að hafa skorað sitt
fyrsta mark á þriðju mínútu og
náði fimm marka forystu, 9-4.
Kristján Halldórsson, þjálfari
Stjörnunnar, tók þá leikhlé með
tilætluðum árangri. Stjarnan skor-
aði þrjú næstu mörk leiksins og
náði að minnka muninn í eitt mark
rétt fyrir leikhlé, 15-14.
Stjarnan byrjaði seinni hálfleik
ágætlega og náði að komast yfir,
17-18, eftir fimm mínútur í hálf-
leiknum. Valur svaraði því með
þremur mörkum í röð og virtist
liðið hafa lítið fyrir því að verja
það forskot. Stjarnan náði nokkr-
um sinnum að minnka muninn í
eitt mark, síðast í 28-27 þegar níu
mínútur voru eftir af leiknum.
Valsmenn skoruðu þá þrjú mörk í
röð einum leikmanni færri og
gerðu út um leikinn.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Vals, var að vonum ánægður
með sigurinn en Valur er nú með
10 stig, þremur stigum á eftir
Stjörnunni og sjö stigum frá Hauk-
um í efsta sæti deildarinnar en
Valur á einn til tvo leiki á liðin
fjögur fyrir ofan sig.
„Við leikum bara úrslitaleiki.
Við byrjuðum mótið það illa að við
þurfum að koma af krafti í alla
leiki og vinna. Við vorum allir
heitir í dag. Það var meiri vilji hjá
okkur. Sem betur fer er þetta langt
mót og við getum unnið í okkar
málum. Það er ekkert vandamál
þó við þurfum að elta,“ sagði
Óskar Bjarni í leikslok en hann
vildi hrósa framlagi Ernis Hrafns
Arnarsonar, sem skoraði 9 góð
mörk í leiknum.
„Við vorum í vandræðum hægra
megin fyrir utan í haust en nú er
Ernir að koma sterkur inn og hann
var frábær í kvöld.“ - gmi
Stjörnuhrap á Hlíðarenda
Íslandsmeistarar Vals unnu bikarmeistara Stjörnunnar, í miklum markaleik 34-
29, í N1-deild karla í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í gærkvöldi.
BARÁTTA Stjörnumenn fjölmenna hér til þess að reyna að stöðva Fannar
Friðgeirsson, leikmann Vals, en Fannar skoraði eitt mark í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR