Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2007, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 26.11.2007, Qupperneq 62
34 26. nóvember 2007 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. steypuefni 6. í röð 8. hlemmur 9. útdeildi 11. slá 12. heilan 14. gimsteinn 16. hvað 17. kraftur 18. heyskaparamboð 20. átt 21. glufa. LÓÐRÉTT 1. garga 3. á fæti 4. skírnarnafn 5. hallandi 7. sálmabók 10. skordýr 13. herma 15. hjartaáfall 16. slím 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. gifs, 6. rs, 8. lok, 9. gaf, 11. rá, 12. allan, 14. tópas, 16. ha, 17. afl, 18. orf, 20. na, 21. rifa. LÓÐRÉTT: 1. orga, 3. il, 4. fornafn, 5. ská, 7. saltari, 10. fló, 13. apa, 15. slag, 16. hor, 19. ff. Connie Filippello hefur verið ráðin kynningarfulltrúi Garðars Thors Cortes. Þetta segir Einar Bárðar- son, umboðsmaður Garðars. Connie er eldri en tvævetur í þessum bransa en hún hefur séð um kynningarmál fyrir George Michael í 23 ár og meðal annarra skjólstæðinga hennar eru ítalska útgáfan af Vogue, stórsöngkonan Mariah Carey, breski leikarinn Rupert Everett og fatahönnuðirnir Tommy Hilfiger og Versace. „Þetta er mikil snilld, hún er algjör jarðýta og fer aldrei í kaffi,“ segir Einar. „Við höfum ekki verið með neinn kynningarfulltrúa á okkar snærum hingað til en þannig fólk verður maður að hafa innan sinna vébanda í Bretlandi,“ bætir Einar við og var að vonum sáttur við að hafa náð að klófesta hina reyndu Filippello. Og Garðar er þegar farinn að vekja athygli meðal frægra skjólstæðinga Filipello því tísku- drottningin Donatella Versace bauð Garðari nýverið að vera viðstaddur jólaboð Versaces í London. En þar sem Garðar var búinn að bóka sig varð hann að afþakka gott boð. Þetta mun vera í annað skiptið sem Garðar þarf að afþakka þetta boð og mun Donatella hafa mikinn áhuga á því sem Garðar er að gera. „Hún er mikill aðdáandi hans,“ segir Mark Devine hjá Mother Manage- ment, umboðs- skrifstofu Einars Bárðar- sonar í London. - fgg Garðar í hóp með George Michael Háskólaneminn Páll Ernisson leysti jólagjafavandamál ársins með því að búa til borðspilið Ísafjörður – einokun. „Hugmyndin er nánast eins stolin og hún getur verið,“ segir Páll og hlær við. „Fyrirmyndirnar eru spil á borð við Matador. Þetta snýst allt um fasteignabrask,“ útskýrir hann. Páll er fæddur og uppalinn á Ísafirði, en stundar nú nám í landfræði við Háskóla Íslands. Þar sem fjármagn til jólagjafa- kaupa var af skornum skammti, eins og gjarnt er um með náms- menn, varð eigin framleiðsla ofan á. „Ég kann ekki að prjóna, svo þetta kemur í staðinn,“ segir hann og hlær. Upphaflega var spilinu einungis ætlað að fara í jólapakka til fjölskyldunnar, en það verður einnig tekið til sölu í verslun systur hans, Blóma- turninum á Ísafirði. „Hún er búin að taka niður tíu pantanir nú þegar, og ég er búinn að selja tíu spil,“ segir Páll, en 50 spila upplagið kemur út 1. desember. Þó að hugmyndin sé ekki alveg ný af nálinni hefur Páll staðfært spilið svo það henti ísfirskum veruleika. Hættuspjöld vísa meðal annars í ísfirsku fegurðarsamkeppnina Óbeislaða fegurð, ísfirsk fyrirtæki styrkja spilið og göturnar eru að sjálfsögðu ísfirskar. Verðlagning þeirra reyndist þó nokkuð snúin. „Ég var eiginlega hræddastur um að móðga pabba. Hann býr í Mjógötu, sem er ódýr- asta gatan í spilinu. Honum finnst það hræðilegt,“ segir Páll og hlær við. Hann vonast til þess að spilið verði jólagjöfin í ár. „Að minnsta kosti fyrir þá sem hafa ekki efni á að kaupa GPS tæki á línuna,“ segir hann glettnis- lega. - sun Ísafjarðar-Matador er jólagjöfin í ár Í STAÐINN FYRIR SOKKA Háskólanem- inn Páll Ernisson kann ekki að prjóna sokka í jólapakkana og brá því á það ráð að búa til borðspil til að gefa vinum og vandamönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Frammi í búð spilum við einhverja rólega tónlist, klassískt og íslenskt í bland. En við erum svo margar að vinna fyrir aftan og flökkum því á milli útvarps- rása. Þá er ýmist spiluð Gufan, Bylgjan eða FM.“ Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir fata- hönnuður. Í GÓÐUM HÓPI Garðar Thor er kominn með góðan kynningar- fulltrúa í Bretlandi. KANNSKI DÚETT George Michael, Mariah Carey og Rupert Everett er öll meðal skjólstæðinga Connie Filippello, sem hefur verið ráðin kynningarfulltrúi Garðars. „Við erum í samningaviðræðum við Sam Shepard um að taka að sér hlutverk pabbans en þar sem það er þakkargjörðarhátíð hérna í Bandaríkjunum núna gengur þetta eilítið hægt,“ segir Sigurjón Sig- hvatsson kvikmyndaframleiðandi en tökur á stórmyndinni Brothers í leikstjórn Jim Sheridan hefjast á morgun, þriðjudag. Brothers er endurgerð dönsku myndarinnar Brødre eftir Susanne Bier og fjallar um örlög tveggja bræðra í skugga stríðsins gegn hryðjuverk- um. Myndin hefur fengið mikla umfjöllun hjá fjölmiðlum í Banda- ríkjunum enda er hún ein örfárra stórmynda sem eru í vinnslu um þessar mundir en verkfall hand- ritshöfunda hefur sett fremur óvænt strik í reikninginn hjá kvik- myndaframleiðendum. Þegar hefur nokkrum kvikmyndum verið slegið á frest, þeirra á meðal Engl- um og djöflum sem byggð er á bók Dan Brown og tvær kvikmyndir Johnny Depp eru í biðstöðu. „Við vorum byrjaðir að æfa eftir hand- ritinu áður en verkfallið byrjaði,“ segir Sigurjón og viðurkennir að kvikmyndaiðnaðurinn í Bandaríkj- unum hafi ekki verið nægjanlega vel búinn undir þennan skell. „Annars vegar töldu menn að það myndi hreinlega ekki skella á og þegar það gerðist bjuggust menn ekki við því að deilan myndi lenda í svona hnút,“ segir Sigurjón. Mestu athyglina hefur þó vakið að Brothers skartar þremur stór- stjörnum af ungu kynslóðinni, þeim Natalie Portman, Tobey Maguire og Jake Gyllenhaal. Sigur- jón segir það auðvitað frábært að hafa landað þessu þríeyki en bætir því við að það hafi verið hart bar- ist um hlutverkin í myndinni. „En það fylgir þeim auðvitað mikill kostnaður, einkalífverðir, einkabíl- stjórar og einkakokkar,“ segir Sigur jón. Þótt myndin sé kannski ekki sú dýrasta sem Sigurjón hefur fram- leitt er auðheyrt á honum að hann er spenntur fyrir útkomunni. Ríkis- stjórinn í Nýju-Mexíkó tilkynnti sérstaklega um komu myndar- innar og er talið að yfir þúsund manns komi að gerð hennar, þar á meðal hátt á fjórða hundrað stat- istar. „Svona er þetta bara í Banda- ríkjunum og við vorum einmitt að ræða þetta, ég og leikstjórinn, hvað í andskotanum við værum að gera með allt þetta fólk,“ segir Sigur jón og hlær en útskýrir síðan að handritið eitt hafi kostað meira en danska myndin í framleiðslu. freyrgigja@frettabladid.is SIGURJÓN SIGHVATSSON: BROTHERS Í TÖKUR Á MORGUN Kvikmynd Sigurjóns ein fárra sem lifa verkfallið af Vakið hefur töluverða athygli hversu þéttur og safaríkur leikhópurinn í Brothers er. Þau Natalie Portman, Jake Gyllenhaal og Tobey Maguire eru öll stór nöfn á hinu stóra sviði í Hollywood. ATHYGLISVERÐUR LEIKHÓPUR SÁTTUR MEÐ GANG MÁLA Sigurjón Sighvatsson segir að á meðan aðrar stór- myndir séu frystar eða settar í biðstöðu hafi þeir verið byrjaðir að æfa þegar verkfall handritshöfunda skall á. Jóhann Ólafsson & Co hafa lýst yfir áhuga á að kaupa mynd af Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey en nú stendur yfir ljósmyndasam- keppni Fréttablaðsins á vísir.is. Jóhann Ólafsson & Co hafa flutt inn OSRAM-perur í 58 ár en það eru einmitt VOLTA-perurnar frá fyrir- tækinu sem notaðar eru til að lýsa upp himininn í Viðey. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur fyrirtækið mikinn hug á því að senda myndir út til Þýskalands þar sem perurnar eru framleiddar en yfir hundr- að myndir hafa borist í ljósmynda- samkeppnina sem lýkur 1. desember. Snæbjörn Sigurður Steingríms- son, óheppinn nafni framkvæmda- stjóra SMÁÍS, var ákaflega þakklátur eftir að frétt birtist á þessari síðu um að honum hefði verið hótað af brjáluðum Torrent-verjum. SMÁÍS og Torrent eiga nú í dómsmáli og hefur framkvæmdastjórinn verið harðorður í garð þessara „sjóræningja“ á netinu. Sími Snæbjörns Sigurðar hefur hins vegar algjörlega þagnað og hafa netverjarnir nú áttað sig á því að þeir höfðu rangan mann fyrir sök. Ritstjóri Mannlífs, Þórarinn Baldur Þórarinsson, virðist hafa átt kollgátuna í ritstjórnarpistli sem birtist í blaðinu fyrr í sumar en þar varpaði hann fram þeirri hugmynd að skipta út starfsheitinu ráðherra fyrir eitthvað aðeins minna karl- lægt. Eins og margir ættu að vita hefur Steinunn Valdís Óskarsdóttir nú óskað eftir umræðum um að breyta þessum starfstitli sem hlotið hefur góðan hljómgrunn. Þórarinn stakk í sínum pistli upp á því að íslenskir ráðherrar yrðu „ritarar“ eins og í Bandaríkjun- um og er nær öruggt að bæði karlar og konur gætu sætt sig við slíkan titil. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Allur ágóði af Masa rennur til Barnaspítala Hringsin s. MASI FÆST HJÁ HAGKAUP OG N1 Einnig er hægt að pan ta í gegnum poppskólinn@poppsk olinn.is eða í síma 897 9409
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.