Fréttablaðið - 30.11.2007, Qupperneq 6
6 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Íslendingar eiga í fyrsta
sinn svo vitað sé með beinum
hætti stóran hlut í félagi sem
framleiðir hergögn. Iðnaðarsam-
stæðan Stork N.V. í Hollandi þjón-
ustar hergagnaiðnað og smíðar
hluti sem notaðir eru í margvís-
legum lofthernaði auk þess að
sinna viðhaldi. Eyrir Invest, Marel
og Landsbankinn hafa átt í þessu
félagi.
Stork Aerospace framleiðir
meðal annars hluti í F-16 orrustu-
þotur Lockheed Martin, kemur að
smíði stéls og fleiri hluta í NH90
herþyrlunni fyrir Eurocopter og
smíðar vélarhluta í Tiger-bardaga-
þyrluna. Þá er hergagnaframleið-
andinn Raytheon
meðal við-
skiptavina
Stork, en fyrir-
tækið kemur meðal ann-
ars að gerð skotrörs MK56-
eldflaugaskotpallsins. Sömuleiðis
framleiðir Stork búnað fyrir her-
gagnaframleiðandann Thales.
Í fyrra nam velta Aerospace,
hluta Stork N.V., 549 milljónum
evra, eða um fimmtíu milljörðum
króna. Í framleiðsluhluta Stork
Aerospace falla 53 prósent undir
loftvarnasvið, en 47 prósent undir
borgaralegan flugiðnað. Í þjónustu-
hlutanum nemur hlutdeild loft-
varna hins vegar ellefu prósentum.
Eignarhaldsfélagið
LME hafði safnað að sér
43 prósenta hlut í iðnaðar-
samstæðunni Stork N.V. í Hol-
landi. Með yfirtöku Marels á Stork
Food Systems, sem er nú að ganga
í gegn, selur LME allan hlut sinn.
Eyrir Invest og Landsbankinn,
sem áttu LME með Marel, taka
þátt í yfirtökutilboði London
Acquisition á Stork N.V. Eyrir
Invest fer með fimmtán prósenta
eignarhlut í London Aquisition og
Landsbankinn tíundapart. - bg
ALÞINGI Útgjöld ríkisins á næsta ári
hækka um 1.268 milljónir króna frá
kynntum fjárlögum samkvæmt
breytingartillögum meirihluta fyrir
aðra umræðu um fjárlögin 2008 á
Alþingi í gær. Reiknað er með 37,7
milljarða króna rekstrarafgangi.
Þingmenn Vinstri grænna mót-
mæltu því harðlega við upphaf
þingfundar að þingmenn hefðu
fengið gögn um málið hálfum sólar-
hring fyrir umræðuna og því ekki
haft nægan tíma til að undirbúa sig
fyrir umræðurnar.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, sagði þingmenn hafa
rökstutt það rækilega að ekki hefði
verið rétt að málum staðið, og
krafðist þess að umræðu um fjár-
lagafrumvarpið yrði frestað.
Á það féllst Sturla Böðvarsson,
forseti Alþingis, ekki, og sagði að
þingsköp hefðu verið virt í málinu.
Að auki hefðu fulltrúar allra flokka
í fjárlaganefnd haft aðgang að upp-
lýsingum og getað uppfrætt sam-
flokksmenn sína.
Kolbrún Halldórsdóttir, þing-
maður VG, sagði að afgreiðsla
málsins hefði verið afbrigðileg, og
spurði hversu oft það hefði komið
fyrir að nefndaráliti hefði verið
dreift tólf tímum fyrir upphaf
umræðu. Sturla sagðist ekki hafa
upplýsingar um það.
Fjárlagafrumvarpið var rætt
fram eftir kvöldi í gær, og var
umræðum ekki lokið þegar Frétta-
blaðið fór í prentun. Talsverðar
breytingar verða gerðar á frum-
varpinu samkvæmt tillögum meiri-
hluta fjárlaganefndar.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær verða fjárframlög til ýmissa
sjúkrahúsa aukin verulega, alls um
480 milljónir króna, til þess að þau
Útgjöld hækka um
1,3 milljarða króna
Þingmenn VG mótmæla vinnubrögðum Alþingis við umræður um fjárlög.
Framlög til nokkurra sjúkrahúsa aukast um 480 milljónir króna. Landspítalinn
fær 200 milljónir. Framlög til hátæknisjúkrahúss skorin niður um 700 milljónir.
■ Lagðar verða alls 152,6 milljónir til verkefna tengdra fyrirhugaðri olíuleit á
Drekasvæðinu við Jan Mayen-hrygg. Annars vegar fær Hafrannsóknastofnun
51,2 milljónir til rannsókna á lífríki og umhverfi. Hins vegar fær Orkustofnun
101,4 milljónir til að hefja undirbúning að útgáfu leyfa til rannsóknar og
vinnslu á olíu og gasi.
■ Samkeppniseftirlitið fær 25 milljóna króna aukaframlag á næsta ári. Mark-
miðið er að efla stofnunina, en hún hefur ráðist í fleiri og flóknari rannsóknir
en gert hafði verið ráð fyrir, og þurft að beita húsleitum í meira mæli.
■ Framlag til alþjóðlegrar friðargæslu verður aukið um 58 milljónir á næsta
ári. Stærstur hluti framlagsins, 52 milljónir, rennur til verkefna í Darfur-héraði
í Súdan. Á sama tíma verða framlög til íslensku friðargæslunnar skorin niður
um 50 milljónir króna.
■ Meirihlutinn leggur til 75 milljóna króna aukið framlag til Háskólans á
Akureyri til að styrkja reksturinn.
RÚMAR 150 MILLJÓNIR VEGNA OLÍULEITAR
geti tekið við verkefnum frá Land-
spítalanum.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri mun fá 50 milljónir króna auka-
lega, Heilbrigðisstofnunin á Akra-
nesi 59 milljónir, Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 132 milljónir,
Heilbrigðis stofnun Suðurnesja 60
milljónir og St. Jósefsspítali í Hafn-
arfirði fær 179 milljónir.
Landspítalinn fær sams konar
framlag, 200 milljónir króna, sem
kemur til viðbótar 820 milljóna
króna hækkun á rekstrargrunni
spítalans. Er með þessu reiknað
með að spítalinn geti verið rekinn
innan heimilda.
Þá er lagt til í breytingartillögun-
um að 700 milljón króna lækkun
verði á framlagi til nýs hátækni-
sjúkrahúss, enda ljóst að fram-
kvæmdir muni ekki fara eins hratt
af stað og upphaflega hafi verið
áætlað. brjann@frettabladid.is
FJÁRLÖG RÆDD Þingmenn Vinstri
grænna mótmæltu vinnubrögðum
meirihlutans við aðra umræðu fjárlaga
í gær. Þingmenn meirihlutans bentu á
að þingsköp hefðu verið virt, þótt sá
tími sem leið milli þess sem gögnum
var dreift og umræður hófust hafi verið
í stysta lagi.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Málefni aldraðra og öryrkja verða skoðuð sérstaklega milli
annarrar og þriðju umræðu um fjárlögin, sagði Gunnar
Svavarsson, formaður fjárlaganefndar, þegar hann mælti fyrir
breytingartillögum meirihluta nefndarinnar á Alþingi í gær.
Hann sagði að vegna breytinga á stjórnarráðinu myndu
málefni aldraðra og öryrkja færast til félagsmálaráðuneytis.
„Án þess að gefa hér nein loforð, þá er það mikilvægt
að þau fyrirheit sem lagt var upp með til að styrkja stöðu
aldraðra og öryrkja gangi eftir og Alþingi geti þá stutt
umræddar breytingartillögur sem verða teknar til umfjöll-
unar í fjárlaganefnd áður en þær koma til umfjöllunar á
Alþingi,“ sagði Gunnar.
Þriðja umræðan um fjárlögin er á dagskrá 10. desember.
RÆTT UM ALDRAÐA OG ÖRYRKJA SÍÐAR
GUNNAR
SVAVARSSON
©
In
te
r I
KE
A
Sy
ste
m
s B
.V
. 2
00
7
GLÄNSA aðventuljós
7 armar L33xH14 cm
695,-
GLÄNSA aðventuljós
7 armar L59xB94, H45 cm
3.990,-ISIG kerti Ø7, H15 cm gyllt/silfurlitað
195,-
ISIG kerti 5 stk. H20,
12 og 7 cm ýmsir litir
495,-
ISIG kerti Ø7,
H15 cm
150,-
Bjartar
vetrarnætur
Um ævistarf þessa fjölhæfa frumkvöðuls má segja að hug
hans og höndum hafi verið fátt ofviða sem hann fékk áhuga á.
Ekki var þó mulið undir hann í bernsku og ungur maður fékk
hann berklaveiki og glímdi lengi við hana. Í bók sinni, Sótt á
brattann, segir Ævar frá lífshlaupi sínu og viðfangsefnum svo
að unun er að lesa. Ævar er löngu þjóðkunnur maður en
lúpínuseyði hans hefur
hjálpað fjölda manns til heilsu.
www.skjaldborg.is
Af lífshlaupi frumkvöðuls
Telur þú að best sé að búa á
Íslandi?
Já 52%
Nei 48%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú fylgjandi trúarlegu starfi
presta í leikskólum?
Segðu skoðun þína á visir.is
NH90 HERÞYRLA Stork í
Hollandi smíðar stél og
fleiri hluta svona þyrla.
Eyrir Invest og Landsbankinn gerðu tilboð um að taka yfir Stork N.V. í Hollandi:
Taka þátt í hergagnaframleiðslu
KJÖRKASSINN
DÓMSMÁL Karlmaður í Gríms-
ey hefur verið dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að stela 12.900 lítrum af
olíu. Dóminn kvað upp Héraðs-
dómur Norðurlands eystra.
Maðurinn nældi sér í olíuna
á þriggja og hálfs árs tímabili,
þegar hann starfaði sem umboðs-
maður Olíudreifingar ehf. Olíuna
hagnýtti hann sér til að hita upp
heimili sitt og húsnæði sem hann
rak í verslun sína Grímskjör í
Grímsey.
Maðurinn játaði sök fyrir dómi
og lagði fram gögn um að hann
hefði greitt Olíudreifingu ehf.
skuld vegna olíu. - jss
Karlmaður í Grímsey:
Dæmdur fyrir
olíustuld