Fréttablaðið - 30.11.2007, Qupperneq 18
18 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
FRAMKVÆMDIR Í morgunmyrkrinu
er ekki auðvelt að komast að
Háskólatorginu, nú fáum klukku-
stundum áður en húsið verður vígt.
Það er skylda að vera með hjálm og
þegar athafnasvæðið var heimsótt
á þriðjudegi var enn margt eftir.
„Við gætum alveg notað hálfan
mánuð til,“ segir Ingjaldur Hanni-
balsson byggingarstjóri með dul-
arfullu brosi, „en húsið verður vígt
hinn fyrsta. “
Á þriðjudag var allt á fullu, tugir
karlmanna voru að störfum á jarð-
hæðinni, hvert sem litið var mátti
sjá menn að starfi og ekki töluðu
þeir allir íslensku. „Það er talsvert
af Serbum hérna, og Pólverjum,“
segir Finnur Arnar Arnarson en
hann vann til verðlauna fyrir til-
lögu sína að gríðarstóru myndlistar-
verki sem grípur strax athyglina
þegar inn í húsið er komið. „Ég er
kominn yfir það stig að þurfa
hjálm,“ segir hann.
Keilan gengur upp úr þakinu
Tímaplanið er þétt og hann fékk
kvöldið fyrir sig. „Það er betra að
taka ljósmynd á morgun, þá verður
búið að rjúfa þakið yfir keilunni og
birtan brýst inn í hana. Upp úr þak-
inu gengur stór keila og inni í henni
fljúga fuglar,“ segir hann. Það er
næsta skrefið hjá myndlistarmann-
inum að koma þeim fyrir. „Þótt
fyrir varinn væri nægur er alltaf
gott að eiga einhvern tíma aflögu,“
segir Finnur.
Frá gólfinu má sjá hvernig keilan
sem er eins og stungið upp í loftið
yfir Háskólatorginu styrkir tilfinn-
inguna í stóru opnu rými þeirra
Ögmundar Skarphéðins sonar og
Ingimundar Sveinssonar sem hönn-
uðu húsið. Þetta er tíu þúsund fer-
metra bygging á þremur hæðum
sem mun leysa af hólmi eldri bygg-
ingar. Hér verður Bóksala stúd-
enta til húsa, hér verður loksins
myndarleg veitingastofa á gömlu
háskólalóðinni við Suðurgötu, hér
verða fundarsalir, aðstaða fyrir
stærri samkomur og ýmiss konar
þjónusta fyrir námsmenn.
Gefur tilefni til aukinna samskipta
Níu ár eru síðan Páll Skúlason lýsti
draumi sínum í ræðu: „Á háskóla-
lóðinni þarf að rísa vegleg þjón-
ustu- og félagsmiðstöð – menning-
armiðstöð Háskóla Íslands – sem
gefur tækifæri og tilefni til stór-
aukinna samskipta stúdenta, kenn-
ara og annars starfsfólks svo og
allra sem til Háskólans koma. Ég
kalla þennan þjónustukjarna
„Háskólatorgið“, því þangað ætti
daglegt erindi stór hluti þeirra sex
til sjö þúsund manna sem á svæð-
inu starfa og hann þyrfti því að
vera miðsvæðis á háskólalóðinni.“
Til að gera langa sögu stutta var
gerð þarfagreining og fundin lóð á
dauðu svæði milli aðalbyggingar
og íþróttahúss Háskólans. Húsið er
í raun upp komið tvær byggingar
tengdar, mun hýsa á þriðja hundr-
að starfsmenn og þangað munu
sækja um fimmtán hundruð gestir
dag hvern. Það var á sínum tíma
skilyrt að húsið skyldi aðeins kosta
1.600 miljónir og var boðið út á
föstu verði. Íslenskir aðalverktak-
ar og arkitektarnir Ingimundur
Sveinsson og Ögmundur Skarphéð-
insson hrepptu hnossið. „Þú mátt
spyrja um peninga,“ segir Ingjald-
ur, „Við bættum hæð við og fullbú-
ið mun húsið kosta 2,3 milljarða.“
Listin vísar til vesturfaranna
Framlag Háskólasjóðs Eimskipa-
félags Íslands reið baggamuninn
við framkvæmdina. Það var því
vel til fundið að ákveða að húsið
skyldi geyma listaverk sem minnt-
ist þeirra sem gáfu þann sjóð, en
hann varð til þegar Vestur-Íslend-
ingar gáfu hlutabréf sín Háskól-
anum. Var efnt til samkeppni og
Finnur Arnar vann verðlaun fyrir
tillögu sína. Markmið verksins var
að vinna með keiluformið og átti
hugmyndafræðilegt inntak þess
að hafa skýra skírskotun til vest-
urfaranna. Þá átti það að tengjast
Háskóla Íslands og mikilvægi
menntunar og þess að þekkja
fleira en heimahaga og vekja eins
konar ævintýraþrá með njótand-
anum.
Og nú horfum við upp í Keiluna
í lofti Háskólatorgsins og bíðum
þess að fuglar taki að fljúga inni í
henni og enn hærra við himin beri
fugla í oddaflugi vestur á bóginn.
Höfuðáttirnar fjórar eru greyptar
á neðri brú keilunnar en á barmi
hennar stendur: Vits er þörf þeim
er víða ratar. Þetta er glæsilegt
verk og handan amsturs iðnaðar-
manna má sjá að Háskólatorgið
verður glæsileg bygging og skapar
loks vettvang á gömlu Háskólalóð-
inni sem þúsundir eldri nemenda
muna að var þar ekki áður. Húsið
verður vígt á morgun við hátíð-
lega athöfn.
pbb@frettabladid.is
Út um keiluna fljúga fuglarnir
Glæsileg tíu þúsund fermetra bygging mun stórbæta aðstöðu nemenda, kennara og starfsfólks við Háskóla Íslands. Háskólatorg verður
vígt á morgun. Verkefnið hefur staðið yfir í níu ár. Fullbúið mun húsið kosta 2,3 milljarða.
FINNUR ARNAR ARNARSON Á heiðurinn af keilu sem er eins og stungið upp í loftið
yfir Háskólatorginu. Á henni stendur; Vits er þörf þeim er víða ratar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HÁSKÓLATORG Ögmunur Skarphéðinsson og Ingimundur Sveinsson hönnuðu húsið sem rýmir Háskólatorg, en reiknað er með að fimmtán hundruð gestir muni sækja torgið heim á degi hverjum.