Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 22
22 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Auglýsingasími
– Mest lesið
Aðventan gengur í garð á sunnudag. Fyrir utan kannski kaupmenn hafa ófáir jafn mikið að gera þegar nær dregur jólum
og kórstjórar. Fréttablaðið heyrði hljóðið í nokkrum kórstjórum sem eru komnir í rásstellingar fyrir jólavertíðina.
Kórstjórar á jólavertíð
Óskar Einarsson:
Jólalögin byrja í ágúst
Fyrir hendingu átti Óskar Einarsson, stjórnandi
Gospelkórsins, örlitla stund aflögu þegar Frétta-
blaðið sló á þráðinn, en hann var þá að aka á
milli kóræfinga. „Ég er með ellefu tónleika fyir
tólf þúsund manns á sjö dögum,“ segir Óskar.
„Og á sunnudaginn eftir viku ætla ég að sofa
út!“ „Við byrjum á tónleikum með Garðari Thor
Cortes, svo eru
sjö jólatónleikar
og við syngjum að
lokum á þremur
tónleikum með
Björgvin Halldórs-
syni,“ segir Óskar
og viðurkennir að
það sé óvenjulega
mikið að gera í
ár. „Eftir áramót
verða aðrir tón-
leikar með Garðari
og svo sænsku
söngkonunni
Carolu, en því
miður hef ég þurft
að hafna nokkrum
tónleikum sökum
anna.“
Óskar segir að
undanfarin sex
eða sjö ár hafi
jólahaldið hjá
honum gjör-
breyst. „Allur jólaundirbúningurinn fer í þetta;
við byrjum að hlusta á jólalög í ágúst, undirbú-
um okkur fram á haust og desember er allur
lagður undir tónleikahald. En ég á frábæra og
skilningsríka konu sem sér til þess að jólin
koma líka heim.“ Til að halda sönsum í ann-
ríkinu finnst Óskari mikilvægt að vera duglegur
í ræktinni og borða hollan mat. „Maður þarf
að horfa fram á við, þetta reddast allt.“ Hann
játar lika með semingi að í desember sé hann
orðinn dálítið leiður á jólalögum. „Ég set að
minnsta kosti eitthvað annað en jólatónlist á
fóninn heima hjá mér á þessum árstíma,“ segir
hann og hlær.
Sigrún Þorgeirsdóttir:
Hápunkti náð snemma
„Þetta er bara fjör,“ segir Sigrún Þorgeirsdóttir,
stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur. „Við erum svolítið
heppnar með það að hápunkturinn er snemma á
ferðinni. Svo eru minni atburður framundan, til dæmis
jólasamsöngurinn, sem er reyndar ekkert lítill heldur á
öðrum nótum.“
Sigrún segir að
vissulega hafi fylgt
þessu stress þegar
hún stýrði kórnum
í fyrsta sinn en það
er fyrir löngu á bak
og burt. „Það þýðir
ekkert. Ef ég er
stressuð þá verður
kórinn stressaður og
þá er allt ónýtt. Það
er í mesta lagi smá spenningur.“
Sigrún kveðst ekki vera ein af þeim sem skipuleggur
jólin langt fram í tímann en passar sig hins vegar á
að vera ekki of seint á ferðinni. „Ég reyni að koma því
þannig fyrir að ég eigi eina gjöf ókeypta á Þorláks-
messu, til að eiga erindi í bærinn - helst bók sem ég
get gengið að vísri.“ Þau hjónin eru ekki enn byrjuð á
jólaundirbúningnum en Sigrún kvíðir engu. „Nei, nei,
það er ástæðulaust. Jólin koma!“
Jóhanna V. Þórhallsdóttir:
Enginn bakstur og svoleiðis rugl
„Ég er á kafi í jólalögum þessa dagana,“ segir Jóhanna
V. Þórhallsdóttir, stjórnandi Léttsveitar Reykjavíkur.
„Framundan er risastórt aðventukvöld í Bústaðakirkju
hljómsveit og með fimm
barnakórum sem troða
upp hver á fætur öðrum.
Svo er Léttsveitin með
stóra tónleika í næstu
viku sem bera yfirskrift-
ina Mamma er enn í
eldhúsinu, svo það er nóg
að gera.“
Jóhann segir að kórstarfið
setji svip á jólahaldið en
alls ekki strik í reikinginn.
„Maður er orðinn svo sjó-
aður og bara græjar þetta.
Ég læt hins vera að baka
jólakökur og svoleiðis
rugl,“ segir hún og hlær. Fyrir Jóhönnu eru tónleikarnir
fyrir löngu orðnir órjúfanlegur hluti af jólaundirbún-
ingnum. „Það hefur vissulega komið fyrir að ég hef
verið alveg uppgefin en mér finnst þetta bara gaman,
að minnsta kosti er engin þreyta í mér í ár. Maður
verður svo ungur í anda með aldrinum og ég gæti ekki
hugsað mér jólin án söngs.“
Friðrik S. Kristinsson:
Hápunktur á
aðfangadagskvöld
Friðrik S. Kristinsson var á kóræfingu hjá
Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju þegar
Fréttablaðið truflaði hann. Auk drengjakórs-
ins stjórnar Friðrik líka Karlakór Reykjavíkur.
„Drengjakórinn verður með tónleika hér 6.
desember ásamt félögum úr karlakórnum,“
segir Friðrik, en Karlakór Reykjavíkur ætlar
að hefja aðventuna á utanlandsferð. „Alls
verður Karlakórinn með sjö tónleika, þar af
þrenna í Færeyjum en við ætlum að koma
fram í Klakksvík og Þórshöfn en syngjum svo
á fernum tónleikum hér heima.“
Tónleikahald hefur lengi verið stór hluti af
jólaundirbúningnum hjá Friðrik en hann
segir að því fylgi lítið stress. „Ekki lengur að
minnsta kosti, maður er orðinn svo vanur
þessu. Síðustu tónleikarnir eru reyndar 18.
desember í ár þannig ég hef nokkra daga
upp á að hlaupa áður en jólin koma.“ Friðrik
viðurkennir að vissulega sé hann orðinn
vel þreyttur í lokin en fráleitt orðinn leiður
á jólasöngvum. „Þvert á móti. Fyrir mér er
hápunkturinn á aðfangadagskvöld þegar við
syngjum Heims um ból.“
Margrét Pálmadóttir:
Tek af vöxtunum, ekki
höfuðstólnum
„Við æfum í jólastemningu,“ segir Margrét
Pálmadóttir, sem rekur söngskólann Domus Vox
og stýrir Stúlknakór Reykjavíkur, kvennakórnum
Vox feminae og Gospelsystrum Reykjavíkur. Til
að tryggja rétta stemningu í kórnum er búið
er að skreyta æfingasalinn í Domus Vox og
kaupa piparkökur.
„Framundan eru
tveir stórtónleikar;
aðventutónleikar í
Hallgrímskirkju 14.
desember, þar sem
rúmlega 200 stúlkur
og konur syngja, og
einsöngvaratónleik-
arar í Háteigskirkju
strax daginn eftir. Svo
verðum við auðvitað
út um borg og bý,
syngjum á spítölum
og elliheimilum, í
fyrirtækum og versl-
unum. „Það er að
færast í aukana að
fyrirtæki fái kóra til
að taka lagið dagana
fyrir jól. Maður finnur líka hvað fólk er þakklátt
og hvað þetta er gott fyrir starfsandann að fá
svona gleðigjafa.“
Dagskráin er þéttskipuð hjá Margréti alveg
fram á Þorláksmessu en Margrét segir það ekki
trufla sig. „Ég er búin að standa í þessu síðan
ég var átta ára; búin að syngja fyrir súkkulaði
og konfekti alla ævi. Það kom fyrir í gamla daga
að ég varð alveg uppgefin en ekki lengur, ég er
búin að læra að taka bara af vöxtunum en ekki
höfuðstólnum. Ég lít á þetta sem mína gjöf til
samfélagsins og þakka fyrir að fólk vilji mann
ennþá, ég er jú orðin hálfrar aldar gömul,“ segir
hún hlæjandi og bætir við að hún fái aldrei leið
á jólalögum. „En það sem bjargar jólahaldinu
hjá mér er að ég á yndislegan eiginmann sem
er listakokkur, og undir hans forystu tekur
fjölskyldan sig saman og reddar jólaundirbún-
ingnum.“
MARGRÉT PÁLMADÓTTIR
AÐVENTUTÓNLEIKAR KARLAKÓRS REYKJAVÍKUR
ÓSKAR EINARSSON
JÓHANNA ÞÓRHALLSDÓTTIR
KVENNAKÓR REYKJAVÍKUR
„Mér finnst ekki lykilatriði að
finna nýtt orð í stað ráðherra,“
segir Jóhanna Harpa Árnadóttir,
framkvæmdastjóri Verkfræðinga-
félags Íslands. „Þetta er náttúrlega
orð sem ákveðin venja er fyrir en
auðvitað ber það með sér ákveðna
karllæga ímynd af því að karl-
menn hafa verið í yfirgnæfandi
meirihluta í ráðherraembættum
gegnum tíðina. Ef það finnst gott
orð fyrir bæði kynin þá er sjálfsagt
að skoða það og mikilvægt að taka
þessa umræðu hvort ástæða sé til
að breyta. Mér finnst skipta meira
máli að um sé að ræða raunveru-
legt jafnræði milli kynjanna, að
helmingur ráðherra sé konur, að
konur séu hæstaréttardómarar til
jafns við karla og að konur séu
jafnmargar körlum í stjórn fyrirtækja
og svo framvegis. Mér finnst skipta
máli að skipan í stöður endurspegli
samfélagið.“
SJÓNARHÓLL
NÝYRÐI Í STAÐ ORÐSINS RÁÐHERRA
Jákvæð
umræða
JÓHANNA HARPA ÁRNADÓTTIR
Framkvæmdastjóri Verkfræðingafélags
Íslands.
„Það er allt gott að frétta. Ég er núna að reyna
að klára önnina í skólanum.,“ segir Högni Egils-
son, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar
Hjaltalín, sem leggur stund á tónsmíðanám
við Listaháskóla Íslands. „Ég er að reyna
að rumpa af einu verki sem verður flutt
á jólatónleikum Listaháskólans fimmta
desember. Síðan er ég að fara að
syngja ásamt Hamrahlíðarkórnum í
sálmasinfóníu Stravinskíjs í kvöld
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.“
Hljómsveit Högna, Hjaltalín, hefur
lokið við plötuna Sleepdrunk Sea-
sons. „Platan er væntanleg í verslanir
4. desember,“ segir hann. „Það gekk
prýðisvel að taka hana upp en tók
langan tíma. Upptökunum lauk í
byrjun nóvember og þá fór masterinn
í framleiðslu til Þýskalands. Hún verður svo
fáanleg í öllum betri plötubúðum og tón-
listarmörkuðum. Þetta verður jólaplatan í
ár ef Luxor hefur ekki vinninginn.“
Eftir að platan kemur í verslanir tekur
við dágóð tónleikasyrpa. „Við erum
að spila með bandarísku sveitinni
Akron/Family á Organ 7. desember,
svo spilum við 20. desember og
mögulega líka áttunda.“
Högni segist samt ætla að
nýta jólin í afslöppun. „Já, ég
ætla bara að slaka á, mögulega
fá mér nokkra jólatúborg-bjóra.
Þeir eru góðir í ár. Annars er ég
ekkert byrjaður að skipuleggja
jólin. Ég þarf líka lítið að pæla í
jólagjöfum í ár. Ég hugsa að ég
gefi flestum bara plötuna, þannig að
það er lítið stress í kringum það.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HÖGNI EGILSSON TÓNLISTARMAÐUR
Gefur bara Hjaltalín-plötuna í jólagjöf
WALLER RÆNT:
HALDIÐ UPPI FJÖRI
FYRIR AL CAPONE
■ Söngvaranum og píanistanum
fræga Fats Waller var rænt árið
1926 og hann
borinn inn í
stóran sal þar sem
honum var skipað
að spila og syngja.
Til að koma í
veg fyrir að hann
færi að tuða fékk
hann að finna fyrir
byssuhlaupi sem þrýst var að baki
hans. Þegar hann fékk að yfirgefa
staðinn þremur dögum síðar var
hann vel drukkinn og með fulla
vasa fjár enda sátu menn ekki á
þjórfé sínu í afmælisveislum hjá
sjálfum Al Capone sem stóð að
þessu mannráni.
Napurt
„Það er reyndar svolítið kalt
núna en við reynum að hita
þetta upp með sprittkertum
og svo erum við með þennan
fína prímus.“
SÆVAR ARNFJÖRÐ SEM ÁSAMT
KONU SINNI HEFST VIÐ Í TJALDI Í
LAUGARDAL.
Fréttablaðið 29. nóvember.
Fljótur
„Þegar ég settist á þing kom
ég beint inn í fyrirspurnar-
tíma og sá þarna mál sem ég
hafði áhuga á. Þá var ekkert
annað að gera en að drífa
sig.“
JÓN BJÖRN HÁKONARSON,
VARAÞINGMAÐUR FRAMSÓKNAR-
FLOKKSINS, HÉLT RÆÐU Á ALÞINGI
EFTIR AÐEINS SAUTJÁN MÍNÚTNA
ÞINGMENNSKU.
Morgunblaðið 29. nóvember.