Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 24
24 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
5611
6.
64
2
4927
.5
25
Sk
or
ra
da
ls
hr
ep
pu
r
Ár
ne
sh
re
pp
ur
Kó
pa
vo
gu
r
Re
yk
aj
ví
k
Svona erum við
fréttir og fróðleikur
FRÉTTASKÝRING
KLEMENS ÓLAFUR ÞRASTARSON
klemens@frettabladid.is
HEIMILD: SAMBAND
ÍSLENSKRA SVEITAR FÉLAGA
Borgin fær í sínar hendur
1.300 milljónir króna,
eignir á Lindargötureit og
pláss fyrir Listaháskólann
við Laugaveg. Samson fær
á móti eignir borgarinnar á
Barónsstígsreit, samkvæmt
samningum sem samþykkt-
ir voru í borgarráði í gær.
Uppbyggingin nemur tug-
þúsundum fermetra í 101.
Borgarráð samþykkti í gær að láta
af hendi nokkrar lóðir borgarinnar
á Frakkastígsreit í stað lóða fast-
eignaþróunarfélagsins Samson
Properties, sem er í eigu Björgólfs-
feðga, á reitnum hinum megin
Hverfisgötu.
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu er reiknað með að
Listaháskóli Íslands rísi á Frakka-
stígsreitnum, að loknum samninga-
viðræðum skólans og Samson.
Á Hverfisgötureitnum eru fyrir
96 námsmannaíbúðir, en þeim
fjölgar nú um allt að sjötíu, að sögn
Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.
„Fjöldi íbúða fer eftir nánari
útfærslu,“ segir hann. „En við
höfum líka áhuga á því að láta stúd-
entaíbúðirnar falla betur að
umhverfinu. Þær hafa þótt stinga
svolítið í stúf þarna. Það verður
gert í samvinnu við stúdentana.“
Dagur segir mikilvægt að Lista-
háskólinn verði borgarprýði á
reitnum sem nú geymir Vegas „sem
ekki er mikill sómi að“.
Samningaviðræður Samson og
Listaháskóla eru á lokasprettinum,
en þær fela í sér að Samson fái í
sinn hlut 11.000 fermetra lóð skól-
ans í Vatnsmýri. Þau makaskipti
voru ekki afgreidd sérstaklega í
gær, en Dagur staðfestir að vilja-
yfirlýsing fyrrverandi borgar-
stjóra um lóðina standi.
Hjálmar Helgi Ragnarsson,
rektor Listaháskólans, segir maka-
skiptin gærdagsins auðvelda sér að
halda samningaviðræðum áfram,
enda séu með þeim tryggðir mögu-
leikar skólans til að auka við sig og
stækka út frá Frakkastígsreitnum.
Verslun og íbúðir
Borgarráð samþykkti einnig í gær
að selja Samson eignir á Baróns-
stígsreit og Landsbankareit, við
Laugaveg. Á þeim stendur til að
reisa eins og hálfa Kringlu, ásamt
íbúðarhúsnæði.
„Við erum búin að ná samstöðu
um að þarna verði lykilhús vernduð
og tekið verði mið af götumynd
Laugavegar og helst verndun götu-
myndar á Vatnsstíg líka. Nú tekur
við skipulag þar og uppbygging í
samráði við íbúa og aðra hags-
munaaðila,“ segir Dagur.
Spurður um þensluaukandi áhrif
þessarar miklu uppbyggingar segir
borgarstjóri að á næsta ári verði
aðallega unnið að skipulagi, hönnun
og undirbúningi. Það ætti því ekki
að hafa afgerandi áhrif.
Af hverju Samson?
Deiliskipulag þarf að endurskoða á
reitunum, en Dagur kveður breyt-
inguna ekki eins mikla og ætla
mætti; gert hafi verið ráð fyrir upp-
byggingu á þeim áður.
Spurður hvort ekki hafi fleiri
komið til greina í samstarf en Sam-
son, segir Dagur: „Við höfum á síð-
ustu árum keypt þónokkrar eignir.
Markmiðið hefur verið að selja þær
til uppbyggingaraðila með álitlegar
hugmyndir. Í þessu tilfelli var það
Samson.“ Fleiri hafi komið með
hugmyndir að uppbyggingu á Bar-
ónsstígsreit, en þær strandað af
ýmsum ástæðum. Samson átti að
auki nær allar eignir reitsins, að
sögn borgarstjóra.
Hins vegar hafi verið leitað til
tveggja óháðra fasteignasala, sem
mátu verðmæti eignanna.
Samningurinn og sala á eignum
á reitunum tveimur við Baróns-
stíg færa borginni um 1.300 millj-
ónir í aðra hönd, utan stúdentaí-
búðanna.
Hinn 21. desember næstkomandi stækkar
Schengen-svæðið svonefnda, þegar níu af ríkjunum
tíu sem bættust í raðir Evrópusambandsins vorið
2004 fá aðild að Schengen-sáttmálanum svonefnda,
sem gerir þegnum aðildarríkjanna kleift að ferðast
vegabréfslaust yfir innri landamæri svæðisins.
Um hvað snýst Schengen-samstarfið?
Schengen-samstarfið er kennt við bæinn Schengen
í Lúxemborg þar sem þáverandi innanríkisráðherrar
stofnríkjanna undirrituðu árið 1985 sáttmála um
að afnema hefðbundið landamæraeftirlit til að
auðvelda frjálsa för fólks yfir innri landamæri aðildarríkjanna. Það
tók fimm ár til viðbótar að útfæra framkvæmd samningsins og
hann komst fyrst endanlega til framkvæmda árið 1995. Þá höfðu
Portúgal og Spánn bæst við. Grikkland og Austurríki gengu síðan
einnig til liðs við samstarfið.
Árið 1997 var Schengen-sáttmálinn „innlimaður“ í stofnsáttmála
ESB með Amsterdam-sáttmálanum. Aðild Norðurlandanna gekk í
gildi árið 2001, og það ekki einungis ESB-aðildar-
ríkjanna Svíþjóðar, Finnlands og Danmerkur heldur
einnig Noregs og Íslands. Fyrir stækkun Schengen-
svæðisins til austurs voru þannig alls fimmtán ríki
aðilar að samstarfinu. Bretland og Írland standa að
mestu fyrir utan það.
Hvað breytist núna í desember?
Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Tékkland,
Slóvakía, Slóvenía, Ungverjaland, Malta og Kýpur
bætast við Schengen-svæðið, með þeirri undantekn-
ingu að stjórnvöld á Kýpur hafa áskilið sér rétt til að
viðhalda landamæraeftirliti óbreyttu. Þetta þýðir að ytri landamæri
Schengen-svæðisins á meginlandinu færist frá landamærum
Þýskalands, Austurríkis og Ítalíu við Pólland, Tékkland, Slóvakíu,
Ungverjaland og Slóveníu austur að landamærum Hvíta-Rússlands
og Úkraínu. Austurlandamæri Eystrasaltslandanna verða þá einnig
ytri mörk Schengen-svæðisins. Rússneska hólmlendan Kaliníngrad
við Eystrasaltið verður líka lokuð inni í Schengen-svæðinu.
FBL-GREINING: STÆKKUN SCHENGEN-SVÆÐISINS
Ytri mörkin færð lengra í austur
Lyfjakaup á
netinu eru afar
varhugaverð að
mati Sigurðar
Guðmundssonar
landlæknis. Hann
líkti þeim við
rússneska rúllettu
í blaðinu í gær.
Er mikið um að
fölsuð lyf séu til
sölu á netinu?
Já, ég tel svo vera. Lyf sem eru ein-
göngu til sölu á netinu er sjaldnast
hægt að tengja einhverjum sem
hefur tilskilin leyfi til að framleiða
og selja lyf.
Hversu umfangsmikill er þessi
iðnaður?
Við höfum upplýsingar um að hann
sé mjög umfangsmikill, ekki síst í
Suðaustur-Asíu, Afríku og Suður-
Ameríku og hann fer ört vaxandi,
enda eftir miklu að slægjast.
Hvað ber að varast?
Ekki kaupa lyf á netinu, punktur.
Þekkir þú einhver tilfelli hér á
landi þar sem fólk hefur keypt
fölsuð lyf á netinu?
Nei, ekki einhver sértæk tilfelli svo
ég muni eftir. Ég held sem betur
fer að það sé fremur lítið um þetta
hér, en viss um að margir samt láta
kannski freistast og því er þessi
umræða mikilvæg.
SPURT & SVARAÐ
LYFJAVERSLUN Á NETINU
Ekki kaupa lyf
á netinu
SIGURÐUR
GUÐMUNDSSON
Landlæknir
> Fjölmennustu og fámennustu
sveitarfélögin 2006
Hér á Listaháskólinn nýi að rísa og
voru makaskipti Reykjavíkurborgar
og Samson Properties áfangi að
því. Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
skólans, hefur átt í viðræðum við
forsvarsmenn Samson, sem falast
eftir lóð, eyrnamerktri skólanum, í
Vatnsmýri.
Nýi skólinn á að vera milli
13.000 og 14.000 fermetrar, en
einnig er gert ráð fyrir stækkun
hinumegin við götuna. Mörg
hús víkja, til dæmis það sem
hýsir skemmtistaðinn Vegas við
Frakkastíg.
Frakkastígsreitur -
Listaháskóli1
Í Skuggagörðum eru nú þegar
96 íbúðir námsmanna reknar af
Félagsstofnun stúdenta.
Samkomulag borgar og Sam-
son gerir ráð fyrir að milli fimmtíu
og sjötíu íbúðir bætist við.
Með þessari viðbót verður
einnig reynt að bæta útlit garð-
anna í heild sinni.
Samson fékk í staðinn íbúðir
á Frakkastígsreitnum undir Lista-
háskólann.
Lindargötureitur –
Skuggagarðar2
Tveir reitir –
Barónsbúð
Á Laugavegs- og Barónsstígsreit-
unum er ætlað að rísa um 25
þúsund fermetra verslunarkjarna,
sem teygi sig yfir Hverfisgötuna.
Nýbyggingin verður að mestu á
Barónsstígsreitnum, en Lauga-
vegsreiturinn verður meira
„felldur inn í“.
Á neðanverðum Barónsstígs-
reit verður íbúðarhúsnæði, allt
að sautján hæðir og 18.000 til
20.000 fermetrar að stærð.
Einnig verður allt að fjögurra
hæða bílakjallari undir kjarna.
3
Va
tn
ss
tíg
ur
Skúlagata
Lindargata
Ba
ró
ns
st
íg
ur
Lindargata
Fr
ak
ka
stí
gu
r
Skólavörðustígur
Bjarn
arstíg
ur
st
íg
ur
Sæbraut
Hverfisgata
Grettisgata
Vi
ta
stí
gu
r
Va
tn
ss
tíg
ur
Ba
ró
ns
st
íg
ur
Fr
ak
ka
st
íg
ur
indargata
Kl
ap
pa
rs
tíg
ur Laugavegur
Hverfisgata
a
Laugavegur
Laugavegur
Veghúsastígur
Vi
ta
st
íg
ur
Njálsgata
Sæbraut
Skúlagata
Hverfisgata
Grettisgata
Hverfisgata
Lindargötu-
skóli
64
5 50
49A
9
4
29
11
22
24
8
57A
43A
41
26A
77
52
60
43A
52
9
29
30
36
50
32
30
39
27
26
3
2A
4
46B
66
51
99A
84
40
22C
20
104
61
32-34
3
12
104A
92C
10
B
88A
67A
7
3
1A
86
22
64
23
29
37
39B
29
45
28
27B
10A
102A
26
42
16
4 33B
66
48
22A
23
100B
103
28
26
58
9
31A
58A
64
78
57
8C
22
16 98A
15
28
28B
11
18A
61-63
6
44A
13B
6A
66-68
40 42A
2
53A
34
41
16
67
49
28C
57-61
91
6
74
80
5
40
33
25
22A
37B
18
30B
6A
100A
82
99A
13
58B
35B
3
6B
27B
13
13A
25
42
19
4B
20B
32B
9
2B
10B
32
90
26
29
8
8A
34B
9A
51B
41A
51
1
35
32
A
49
60
18
17
10
A
68A
30
48B
38
11
44
35
50B
54B
89
60
35
A
105
52
72
8
12
36
98
41
23
24A
14
10
19
46A
55
67
9A
43
11
A
3
30
2
45
4
15
28B
56
31
36B
31A
17
58
48
30
92B
40A
15A
12
106
20
39
54
10
41
7
22B
15
45
28A
83
20C
16B
33
66A
9
42
54
33
8B
5
92A
30
68
26
4A
56
3A
27
44B
7
5831
24
16
92
17
50
19
29
74
40
11
37
70B
63
5
5
27
19B
4
33B
5A
62
101
13
9
44
26
42
85
34
60A
21
70
11
54
76
40
47
26
69
1
10A
69
88B
101A
13B
47
27
38
28
65
5
32B
29B
20
35
64A
43
46
9
20B
71
1
7
36
71
5
38
65A
72
33
59
28
28
19A
7
65
31
43
102
73
39
106A
100
6
73
4
12
20A
53
10
75
34
38B
32B
25
35
45A
17
10
43
18B
21
11
28
18
3
29A
38
45
27A
59
10
13
24A
4
31
12
A
37
37
88C
24
62
87
2
1349
53B
43B
8A
40A
27
- 2
5
11
56
34
6
70
20A
7
44
39
47
19
12A
8
28D
12
55
34A
7
17
10
40B
33
5
19
11A
14
C 14
B
32
46
14
32
31
46A
13
46
13C
4412
34A
42
14
A
90B
1
2
3
Borgin semur um nýjan miðbæ