Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 48
BLS. 8 | sirkus | 30. NÓVEMBER 2007
Þ jóðin hefur fylgst með spútnik-parinu Svövu Johansen og Birni
Sveinbjörnssyni frá því þau hnutu um
hvort annað á Akureyri vorið 2005.
Svava og Björn voru ekki búin að vera
par mjög lengi þegar hann kvaddi
stóru Ford-fyrirsætuskrifstof-
una í New York og fór að
vinna í fyrirtækinu NTC.
Þegar þau eru spurð að því
hvort það hafi ekki verið stór
ákvörðun segja þau svo ekki
vera. „Fyrir mér var þetta ekki
stór ákvörðun, ef Bjössi var
tilbúinn í slaginn þá var ég
miklu meira tilbúin,“ segir
hún og hann bætir því við að
hann hefði ekki getað sinnt
starfinu með annarri hendi.
Það var því annaðhvort að
hrökkva eða stökkva. „Í upp-
hafi ætlaði ég að prófa þetta í
viku en eftir vikuna var ekki
aftur snúið, þvílík verkefni
sem eru í þessu fyrirtæki,“
segir hann. Ástin spilaði stórt
hlutverk í þessari ákvörðun
því eftir að hann kynntist
Svövu langaði hann að flytj-
ast alfarið til Íslands. „Þegar
maður er ástfanginn verða
allir hlutir miklu auðveldari.
Ég verð þó að viðurkenna að
vinnuveitendur mínir úti voru
ekki mjög sáttir og skildu ekki
af hverju ég væri að yfirgefa
þá. En ég sé ekki eftir neinu.“
Svava segir að hann hafi
komið með nýjan og ferskan
blæ inn í fyrirtækið. „NTC er
rótgróið og sterkt fyrirtæki
sem ávallt hefur verið séð vel
um og við höfum bara verið
að halda áfram og efla það
enn frekar.“
Nú vinna þau saman og
stýra fyrirtækinu NTC, sem
rekur 18 tískuvöruverslanir,
en sú 19., sem er Miss Sixty,
verður opnuð um miðjan
desember í Kringlunni. Sirkus
heimsótti þau á svartinnrétt-
aða skrifstofuna þar sem
grunnurinn er lagður að fata-
stíl landans. Þegar þau eru
spurð út í verkaskiptinguna
er Björn fljótur að svara. „Ég
geri allt og Svava er „bara“ í
leikfimi,“ segir hann og hlær.
Þegar málið er rætt nánar
kemur í ljós að þau eru vakin
og sofin yfir rekstrinum. Þau
hafa breytt strúktúrnum á fyr-
irtækinu mjög mikið á und-
anförnum tveimur árum.
Svava segir að þau hafi verið
ákaflega heppin með gott fólk
gegnum árin og ekki síst núna.
„NTC byggist upp á fólki með
brennandi áhuga á tísku ann-
ars vegar og svo með góða
rekstrarþekkingu á fatamark-
aðinum hins vegar. Í dag er
fyrirtækinu skipt upp í 6
deildir þar sem hver rekstrar-
stjóri sér um sína deild, fjórar deildir
utan um tískuverslanir, en þar heldur
rekstrarstjóri utan um allt að fimm
verslanir ásamt heildsölu og fata-
framleiðslu sem er aðallega erlendis.
Hér á skrifstofunni erum við með frá-
bært starfsfólk, átta manna hóp auk
rekstrarstjóranna og okkar. Í verslun-
unum erum við með ábyrga verslun-
arstjóra sem sinna innkaupum með
rekstrarstjórum og síðan hörkudug-
legt afgreiðslu- og sölufólk undir
þeim. Í dag starfa um 170 manns hjá
okkur og yfir 200 manns í desember.
Gegnumgangandi er góður andi í fyrir-
tækinu og fólk að vinna í takt,“ segir
Svava sem hefur góða yfirsýn yfir fyr-
irtækið. Áður sá hún aðallega um inn-
kaupin og söluna en hefur staðið upp
fyrir rekstrar- og innkaupafólki.
„Í okkar hópi eru tíu innkaupa-
stjórar en alls eru um 16 manns sem
sjá um innkaupin. Það er mikilvægast
í svona viðskiptum að hver innkaupa-
stjóri beri ábyrgð á sínum innkaup-
um. Ég fer þó enn þá á vissar sýningar
sem ég get bara ekki sleppt,“ segir hún
og hlær. „Og ég ekki heldur,“ skýtur
Bjössi inn í. „Mér finnst æðislega
gaman að sjá nýjustu herralínurnar
frá Paul Smith, Bruuns Bazaar og
Tiger. Ég fer með innkaupastjórum í
herradeildunum á sýningarnar til að
skoða en í fyrra fundum við flott nýtt
merki fyrir Kultur menn sem heitir
Holland Esquire, ótrúlega skemmti-
legt tvist í því merki,“ segir hann og
Svava tekur undir það og það færist
ljómi í andlit hennar. „Það er svo
gaman að sjá nýju línurnar. Ég elska
að fara til Mílanó, London eða Parísar
og skoða DKNY, Malene Birger, Marit-
he Francois Girbaut og fleiri flottar
línur. Hvað þá að skoða Billi Bi-skóna.
Hann hannar þægilegustu og bestu
stígvél og skó sem til eru og ég er viss
um að nánast önnur hver kona á
Íslandi eigi skó frá því merki,“ segir
hún.
Björn er framkvæmdamaðurinn í
fyrirtækinu. „Þegar ég byrjaði heyrði
ég oft að ég væri aldrei í vinnunni því
ég var svo sjaldan við á skrifstofunni,“
segir hann hlæjandi en hann þrífst
ekki við skrifborð frá níu til fimm.
Hann vill vera á ferðinni, fylgjast með
öllum verslunum og lagerum. Enda
mjög mikilvægir staðir í fyrirtækinu
þar sem hlutirnir eru að gerast.
„Undan farið höfum við verið að opna
og breyta fjórum verslun-
um og höfum verið svo
heppin að njóta starfskrafta
hressa og skemmtilega
verktakans Gulla Helga og
öllu hans liði. Það er nauð-
synlegt að hafa duglegan og
samviskusaman hóp iðnað-
armanna með sér í öll svona
verkefni. Það er bara ekkert
sjálfgefið í dag,“ segir hún.
Í sameiningu leggja þau
línurnar fyrir fyrirtækið til
að tryggja að allir horfi í
sömu átt. „Við ræðum hlut-
ina fram og til baka, tökum
ákvörðun og framkvæm-
um.“ Þau deila skrifstofu í
Galleri-húsinu á Laugavegi
en þau eru jafnframt með
góða vinnuaðstöðu heima.
Það gerir skilin milli vinnu
og einkalífs óljós en þau
eru alveg sátt við það. „Við
vinnum oft í tölvunum eftir
kvöldmat og oft getur
teygst úr þessu fram yfir
miðnætti. Stundum skýst
Bjössi fram í eldhús og nær
í eitt Jager-skot handa
okkur, þá veit ég að það
þýðir að þetta sé orðið gott
og við tökum eina góða
bíómynd eða göngutúr,“
segir hún.
Þegar þau eru spurð að
því hvort ræður horfa þau á
hvort annað en svo tekur
Björn af skarið. „Það er skap
í henni. Þegar við vorum að
kynnast lúffaði ég en núna
er ég farinn að standa meira
á mínu,“ segir hann og glott-
ir og hún brosir til hans á
móti og segir að þau séu
hvorugt mikið fyrir rifrildi
þannig að málin eru yfirleitt
leyst á rólegan hátt. „Ætli
við séum ekki bara bæði
ákveðin og virðum það hjá
hvort öðru. Lykillinn að
góðu sambandi er einmitt
að bera virðingu fyrir hinum
aðilanum, taka honum eins
og hann er. Þegar maður er
ástfanginn af manneskju á
maður ekki að bögglast allt
lífið við að reyna að breyta
henni. Góður textinn hjá
Billy Joel, „I love you just the
way you are“,“ segir hún.
NTC er fyrirtæki sem
nær utan um stóran hluta
tískumarkaðarins á Íslandi.
Þótt innandyra séu um 170
starfsmenn ríkir heimilisleg
stemning. „Kvenfólk á öllum
aldri er stærsti viðskipta-
hópurinn okkar. Rótin í fyrir-
tækinu, Sautján, breyttist í Galleri
Sautján fyrir sjö árum með tilkomu
breyttrar áherslu á fatnað fyrir „ungt
fólk á öllum aldri“. Stór hluti verslana
NTC eru unglingaverslanir en fyrir-
tækið hefur vaxið með eigandanum
og því hafa fleiri kvenfataverslanir
verið að bætast við. Í dag er Kultur,
Eva, Companys og svo Miss Sixty allar
fataverslanir sem eru hugsaðar fyrir
25 og eldri. Stærsti hópurinn er jafn-
vel flottar konur frá 35 ára og upp úr.
Fyrirtækið er samt í þeirri stærð að
við náum að bregðast hratt við. Flest-
ar okkar verslana eru „margmerkja-
verslanir“ þannig að við getum raðað
merkjunum upp að okkar smekk.“
Alltaf í veðmálum
Talið berst að áhugamálunum. Sökum
annasamrar vinnu er ekki mikið um
frítíma en þau eru lunkin við að nýta
tímann vel. Björn hefur áhuga á golfi og
hefur náð að draga Svövu með sér í
það, hann er í 16 manna félagi sem
heitir Golfmeistarinn, en það er gamall
góður æskuvinahópur. „Ég hef alltaf
haft gott samband við gömlu góðu vin-
ina, jafnvel þegar ég var erlendis hóaði
ég öllum saman þegar ég var í stoppi
hér,“ segir hann. Fyrir stuttu stofnaði
„betri helmingurinn“ annað félag,
„Golfgellurnar“, enda vaxandi áhugi hjá
mökunum. „Þetta er frábær félagsskap-
ur, góður húmor í hópnum og yndisleg
íþrótt sem sameinar útivist, keppni og
þjálfun,“ segir Svava. Björn er aðdáandi
enska boltans og eru þeir æskuvinirnir
„Púlarar“. Ferðalög eru líka hluti af lífs-
stíl þeirra. „Við höfum gaman af því að
kíkja í spilavíti þegar við erum erlendis
en við eigum það til að veðja um alla
hluti,“ segir Björn og glottir enda mikið
keppnisskap í báðum. Svava stundar
laxveiði á sumrin og er í góðum félags-
skap 24 kvenna sem heitir „Happy
Hookers“. „Þetta er yndislega skemmti-
legur hópur kvenna sem hittist reglu-
lega fyrir tilstilli formannsins Rakelar
Olsen, en þetta eru allt kraftmiklar og
metnaðargjarnar veiðikonur. Ég er líka
að byrja fjórða árið mitt í söng með
Jóhönnu Waagfjörð vinkonu minni en
við erum að læra hjá Jónsa. Oft er
skemmtilegast hjá okkur þremur að
hittast og tala og svo er ég líka ómögu-
leg ef ég kemst ekki í líkamsræktina
mína til Lólóar vinkonu minnar í World
Class þrisvar sinnum í viku.“
Með húmorinn í lagi
Það fer ekki milli mála að þau eru
miklir vinir og gera mikið af því að
hlæja saman. „Við erum svo klikkuð
og getum gert grín að öllu, í flestum
tilfellum gerum við grín að okkur
sjálfum,“ segir hann og Svava tekur
undir þetta. Um helgar finnst þeim
gaman að fá vini sína í mat eða fara í
matarboð og eru meðal annars í fleiri
en einum matarklúbbi. Svava hefur
líka mikinn áhuga á stjörnumerkjum.
Þegar hún er spurð að því hvernig hún
steingeitin eigi við nautið Björn segir
OFURPARIÐ SVAVA JOHANSEN OG BJÖRN SVEINBJÖRNSSON GEISLA AF ÁST, GLEÐI OG HÚMOR. HANN YFIRGAF
FYRIRSÆTUFERILINN TIL AÐ KOMA AÐ VINNA MEÐ HENNI OG SAMAN HAFA ÞAU STYRKT TÍSKUVELDIÐ NTC. Í
VIÐTALI VIÐ MÖRTU MARÍU JÓNASDÓTTUR SEGJAST ÞAU BÆÐI HAFA MILDAST Í SKAPINU MEÐ ÁRUNUM.
ÁSTFANGIN OG VINNUSÖM