Fréttablaðið - 30.11.2007, Qupperneq 50
30. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● dýrin okkar
Bassi gleymist ekki í jólaundir-
búningnum og nýtur góðs af
listakokki heimilisins.
Bassi er gulur labrador-hundur úr
Kolkuóss-ræktun, margverðlaun-
aðri veiðihundaræktun á Akra-
nesi. Bassi hefur þó lítið komið ná-
lægt veiði í gegnum tíðina heldur
veitt Gunnari Má Gunnarssyni og
fjölskyldu hans ómælda ánægju
sem heimilishundur. Bassi er sjö
ára en það er ekki að sjá á honum
að hann sé að fara að taka lífinu
með neinni ró enda verið síkátur
alla tíð líkt og labradora er siður.
Gunnar Már og fjölskylda flutt-
ust búferlum til Danmerkur og
bjuggu í tvö ár á litlum búgarði
nálægt borginni Kolding sem er
mörgum Íslendingum að góðu
kunn. Þar hafði Bassi yfirumsjón
með því að heilsa gestum og gang-
andi og sjá til þess að allt væri nú í
stakasta lagi með fjölskylduna og
íslenska hesta húsráðenda eins og
sveitahundum er tamt.
Margir hundaeigendur kann-
ast við að hundar þeirra taki
á móti heimilisfólki þegar það
kemur heim með því að færa
þeim skó eða annað lauslegt og
segir Gunnar Bassa ekkert gefa
eftir í þeim efnum, alltaf skuli
hann færa húsbóndanum skó til
að bjóða hann velkominn heim
úr vinnunni.
Bassi fær jólamat líkt og aðrir
fjölskyldumeðlimir og nýtur
góðs af því að Aldís kona Gunn-
ars er annálaður sælkerakokkur.
Bassi fær þá tilbrigði við jóla-
matinn en þó er þess gætt að
hann fái eitthvað sem fer vel í
hundsmaga. Alltaf leynast gjaf-
ir til Bassa undir jólatrénu og
hefur honum þar áskotnast allt
frá leikföngum upp í góðgæti.
Davíð sonur Gunnars og Aldís-
ar hefur í gegnum tíðina svo séð
til þess að Bassi fari ekki í jóla-
köttinn með því að setja á hann
jólaslaufu til að fullkomna jóla-
stemningu heimilisins.
- gkj
Síkátur Bassi
Bassi er ávallt kátur og sómir sér vel við hliðina á styttum úr smiðju annars eiganda
síns, Aldísar Einarsdóttur leirlistakonu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Dísa færir taflmenn á borði,
dregur spil og veit fátt betra
en að kúra undir sæng hjá
húsmóðurinni.
Dísa og Kobbi eru tíu og ell-
efu ára dísarpáfagaukar í eigu
Jóhönnu Garðarsdóttur. Reynd-
ar er ekki loku fyrir það skotið
að Kobbi sé kvenkyns en hann er
óvenjulegur á litinn og því ekki
hægt að kyngreina hann á litnum
einum saman eins og oft er hægt
hjá þessari tegund.
Jóhanna hefur átt fuglana frá
unga aldri og þau hafa aldrei
parað sig en hún segir oft erfitt
að para dísarpáfa. Þau fá að vera
mikið laus til að þenja vængina
utan búrsins en Jóhanna segir
það ekki kunna góðri lukku að
stýra að hafa þau án eftirlits því
að þeim finnist bækur og hin
ýmsu húsgögn afar girnilegur
aukabiti.
Kobbi er óframfærnari og
segir Jóhanna mikinn mun vera á
þeim þar sem Dísa fæddist inni
á heimili á Íslandi en Kobbi var
fluttur inn ásamt hópi af öðrum
dísarpáfum og fór í einangrun í
Hrísey áður en Jóhanna keypti
hann í gæludýrabúð. Dísa hefur
því alltaf verið gæfari og mót-
tækilegari fyrir tamningu. Dísa
er framfærnari utan búrsins en
inni í búrinu er Kobbi kóngur í
ríki sínu.
Ekki segist Jóhanna gefa
fuglunum jólagjafir en þeir fá
aukabita á jólunum í formi epla,
banana, hrísgrjóna og pasta sem
þeir eru afar sólgnir í. Þó gæti
svo farið að Dísa og Kobbi fengju
jólagjöf þetta árið því að kaðall
sem þau höfðu inni í búrinu hjá
sér var farinn að láta verulega
á sjá svo Jóhanna henti honum.
Þetta var mikill uppáhaldshlutur
hjá fuglunum svo að húsfreyjan
verður að fara á stúfana og finna
nýjan kaðal svo þeir taki gleði
sína á ný.
- gkj
Fiðruð Dísa og Kobbi
Páfagaukarnir Dísa og Kobbi ásamt eig-
andanum Jóhönnu Garðarsdóttur. Þau
skötuhjúin fá aukabita á jólunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kötturinn Guðmundur var nær
dauða en lífi eftir fall af þriðju
hæð.
Unni Sigurþórsdóttur áskotnaðist
högninn Guðmundur fyrir fjórum
árum. Hann var áður í eigu Banda-
ríkjamanna sem fylgdu hinum
víðfræga háhyrningi Keikó til Ís-
lands. Ekki er ljóst hvers vegna
Guðmundur fékk þessa virðulegu
íslensku nafngift hjá bandarísk-
um eigendum en þar hét hann auð-
vitað Gúdmúndúr með enskum
hreim. Í daglegu tali er hann hins
vegar kallaður Gummi.
Í fyrrahaust datt hann fram af
svölunum hjá Unni og hvarf spor-
laust. Var hans mikið leitað og tal-
inn af eftir þrjár vikur. En viti
menn, sex vikum eftir að Gummi
hvarf fékk Unnur símtal frá Dýra-
spítalanum í Víðidal um að hjá
þeim væri óskilakisi sem gæti
tilheyrt henni. Starfsfólk Dýra-
spítalans hafði þá hringt í Sigríði
í Kattholti, sem kom um hæl upp
í Víðidal og þekkti kisa af mynd
sem henni hafði verið send stuttu
eftir að Gummi týndist.
Gummi hafði lést úr fimm kíló-
um í tæp þrjú kíló á aðeins sex
vikum og stóð ekki í fæturna
sökum næringarskorts. Eins ólík-
lega og það hljómar hafði hann þó
ekki slasast við fallið af þriðju hæð
en líklega lokast einhvers stað-
ar inni allan þennan tíma. Gummi
braggaðist fljótt þegar heim var
komið eftir nokkurra daga legu
á Dýraspítalanum með næringu í
æð og ekki sést á honum í dag að
hann hafi verið nær dauða en lífi
fyrir ári síðan.
Unnur segir Gumma alltaf fá
jólagjöf og í fyrra pakkaði hún inn
gómsætum harðfiski sem Gummi
fékk svo að rífa upp sjálfur við
mikinn fögnuð. Gummi er hins
vegar afar nægjusamur og oft
finnur hann að eigin áliti mikla
fjársjóði á gólfinu í formi hár-
teygju, flöskutappa, spennu eða
annarra smáhluta sem hann leikur
sér svo með í nokkra daga.
Gummi hefur einnig ratað á
jólakort húsfreyjunnar þar sem
hann skartaði forláta jólasveina-
húfu og óskaði vinum og ættingj-
um Unnar gleðilegra jóla og far-
sæls komandi árs
- gkj
Gummi er ekki feigur
Gummi með eiganda sínum Unni. Gummi hefur ekki alltaf verið í eigu hennar en hann ólst upp hjá umsjónarmönnum Keikós
heitins í Vestmannaeyjum og var þá kallaður Gúdmúndúr. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA