Fréttablaðið - 30.11.2007, Blaðsíða 52
30. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● dýrin okkar
Mmmmm. Loksins girnilegt fóður í pokum
- og það er líka hollt.
Nýjir Hill´s pokar með safaríkum bitum í sósu, ekki bara gómsætt,
heldur er samsetningin eins og þú átt að venjast hjá Science Plan.
Vörumerkið er eign Hill's Pet Nutrition,
© 2003 Hill's Pet Nutrition, Inc. www.hills.is
NÝTT
Mmmmm. Loksins girnilegt fóður í pokum
- og það er líka lt.
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið
Það varð heldur betur handa-
gangur í öskjunni í Mosfells-
bænum þegar tíkin Lady Mad-
onna var orðin svolítið sver fór
að haga sér einkennilega.
„Ég átti ekki von á hvolpunum
fyrr en 24. nóvember en grunaði
að þeir kæmu eitthvað fyrr því
Lady Madonna er að gjóta í þriðja
skipti,“ segir Margrét Rannveig
Jónsdóttir og útskýrir að þær
tíkur sem eiga hvolpa í annað eða
þriðja skipti gangi örlítið skemur
með. „Svo á föstudaginn sextánda
tek ég eftir því að hún er farin að
haga sér svolítið einkennilega,“
segir Margrét sem ákvað að mæla
tíkina og sá þá að fyrsti kollurinn
var farinn að gægjast út en þrem-
ur tímum síðar voru komnir sex
hvolpar.
„Þá gerist ekkert meira en hún
var svo þykk ennþá að við höfð-
um grun um að það væru fleiri. Ég
hafði samband við dýralækninn
hérna í Mosfellsbænum sem heitir
Tóta og hún gaf henni kalksprautu
til að herða sóttina.“ Rannveig sat
yfir móðurinni í nokkurn tíma en
þegar ekkert gekk heyrði hún í
Tótu á ný og úr varð að Lady Mad-
onna var flutt á dýraspítalann.
Eftir röntgenmyndatöku komu
í ljós fjórir hvolpar til viðbótar.
Einn hvolpanna lá þvert á fæð-
ingarveginn svo það þurfti keis-
araskurð. „Þetta var svo seint um
kvöldið að ég bauð bara fram að-
stoð mína við keisaraskurðinn.
Hún var nú svolítið vantrúuð á það
en ég sagði henni að ég væri öllu
vön, búin að vera viðloðandi fæð-
ingardeildina í tuttugu ár og hefði
líka unnið á skurðstofu þannig að
ég treysti mér alveg í þetta ef hún
treysti mér,“ segir Margrét sem
starfaði lengi sem sjúkraliði og
vílaði ekki fyrir sér að stökkva í
skurðstofugallann.
„Aðgerðin gekk mjög vel en
hvolparnir voru dasaðir svo ég
þurfti að lyfta þeim upp á aftur-
fótunum og sprauta mótefni gegn
svæfingarlyfinu beint í kviðar-
holið á þeim og gerði það bara
fum laust, stakk þá bara hvern á
fætur öðrum og svo var vinkona
mín með mér og nuddaði í þá lífi.
Ég hafði líka sent systur minni
smáskilaboðin „keisari fyrirhug-
aður hefurðu áhuga?“ en hún er
ljósmóðir og hjúkrunarfræðing-
ur þannig að það var valinn maður
í hverju rúmi,“ segir Margrét og
er að vonum ánægð með nýju fjöl-
skyldumeðlimina.
„Þeir eru allir virkilega falleg-
ir en það á eftir að gefa þeim nöfn
flestum en ein tík sem kom í keis-
araskurðinum heitir Tóta. Það eru
nú komin 30 ár síðan ég var síðast
með hvolpa og þetta er alltaf jafn
yndislegt.“ -rt
Níu litlir hvolpar á tólf tímum
Margrét Rannveig með litlu fjölskylduna. Lady Madonna er af chihuahua-kyni líkt og hvolparnir sem eru skemmtilega litríkir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hvolparnir braggast vel og eru hinir
hressustu eftir ævintýralega fæðingu.
Smá hundaræktun
Dalsmynni *116 Reykjavík
Sími:566-8417 Fax:5668457
hundagalleri@simnet.is
wwwdalsmynni.is
í lengri og skemmri tíma.
Inni- og útistíur fyrir hvern hund.
HUNDAGÆSLUHEIMILI‹ ARNARSTÖ‹UM
Starfrækt frá 1983
Sta›sett 5 km fyrir austan Selfoss
Símar: 482 1031 og 482 1030 • GSM: 894 0485 og 864 1943
www.simnet.is/hundahotel • netfang: hundahotel@simnet.is
Við pössum
hundinn þinn