Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 62
BLS. 14 | sirkus | 30. NÓVEMBER 2007
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
Rétt svör: 1. Englar dauðans. 2. Árni Sigfússon 3. Hlíðaskóli 4.
Ein 5. Iðuhúsið. 6. Ingólfur Guðbrandsson. 7. Theodór Elmar
Bjarnason. 8. Billy August. 9. Paul Nikolov. 10. Nicole Riche.
■ Guðmundur
1. Pass
2. Árni Sigfússon
3. Hlýtur að vera Hagaskóli
4. Ein
5. Hef ekki hugmynd
6. Veit ekki
Eðal-„buffið“ Hannes Heimir burstaði Guðmund í Hjálmum með sinni alkunnu snilld. Hannes hlaut sex stig
af tíu mögulegum á móti tveimur stigum Guðmundar. Guðmundur skorar á Flís-töffarann Davíð Þór
Jónsson tónlistarmann til að taka á „buffinu“ í næstu viku.
1. Hvað heitir spennusaga Þráins Bertelssonar
sem kom nýverið út?
2. Hver gegnir stöðu bæjarstjóra
Reykjanesbæjar?
3. Hvaða grunnskóli bar sigur úr býtum á
Skrekk, hæfileikakeppni ÍTR í síðustu viku?
4. Hvað heitir nýr geisladiskur söngkonunnar
Birgittu Haukdal?
5. Hvaða íslenska verslun hlaut Njarðarverðlaun-
in, hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar og
Íslenskrar verslunar?
6. Hver er stofnaði Pólýfónkórinn árið 1957.
7. Hvaða íslenski landliðsmaður í fótbolta var
kosinn besti leikmaðurinn í landsleik Íslendinga
og Dana, í Parken 21. nóvember.
8. Hvaða leikstjóri mun leikstýra Slóð fiðrildanna
sem gerð er eftir samnefndri bók Ólafs Jóhanns
Ólafssonar?
9. Hvað heitir fyrsti þingmaður Íslendinga sem
er af erlendu bergi brotinn?
10. Hvaða „stjörnumóðir“ gaf allar fæðingargjaf-
ir barnsins síns til fátækra nýverið?
SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. „BUFF“-PILTURINN HANNES HEIMIR HELDUR
SIGURGÖNGU SINNI ÁFRAM OG HEFUR ALLS UNNIÐ ÁTTA MÓTHERJA. HÉR REYNIR HANNES VIÐ
GUÐMUND KRISTIN JÓNSSON TÓNLISTARMANN Í REGGÍBANDINU HJÁLMUM.
6 RÉTT SVÖR 2 RÉTT SVÖR■ Hannes Heimir
1. Englar dauðans
2. Árni Sigfússon
3. Hlíðaskóli
4. Ein
5. Ekki hugmynd
6. Ingólfur Guðbrandsson
7. Veigar Páll
8. Liv Ullmann
9. Paul Nikolov
10. Madonna
7. Verð stoltur að
segja pass við þessari
8. Baltasar Kormákur
9. Veit að eftirnafnið er
Grapewine
10. Giska á Angelinu
Jolie
Ekki hafa kveikt á útvarpinu í
bílnum. Þannig sleppur þú við
auglýsingaáreiti og öll leiðinlegu
jólalögin sem gefin hafa verið út.
Tengdu iPod-inn við græjurnar eða
hlustaðu á uppáhaldsgeisladiskana
þína og njóttu stundarinnar.
„Leiðinlegasta starfið sem ég hef sinnt
hlýtur að vera þegar ég var að raða í
poka í Hagkaupum,“ segir Ágúst Ólaf-
ur Ágústsson þingmaður og bætir við
að starfið hafi verið hluti af fjáröflun-
arátaki knattspyrnufélagsins Gróttu.
„Þetta var atvinnubótavinna á ungl-
ingsárunum en að mínu mati er fátt
leiðinlegra en að raða matvörum í
poka fyrir annað fólk. Auk þess var
þetta rétt fyrir jólin svo fólk var ekki
upp á sitt besta. Ég varð að þola sví-
virðingar fyrir rangar uppraðanir og
lekar jógúrtdósir og skilningur minn
á verslunarfólki óx mikið við þessa
reynslu mína,“ segir Ágúst Ólafur og
bætir við að honum þyki líka leiðin-
legt þegar það er lítið að gera í vinn-
unni. „Eitt sumarið vann ég hjá Ríkis-
skattstjóra. Það var fróðleg vinna en
það var lítið sem ekkert að gera. Ég
hef líka unnið í frystihúsi og endur-
tekningin þar var of mikil fyrir minn
smekk. Ofsaleg rútínuvinna en samt
sem áður mikil reynsla. Starf mitt í
dag er afar skemmtilegt og það er
lúxus að fá að starfa við áhugamálið.
Það skiptir máli að hafa gaman af
vinnunni því við eyðum svo miklum
tíma í henni og ég hvet alla sem eru í
leiðinlegri vinnu að hætta. Lífið er of
stutt til að vinna leiðinlega vinnu.“
indiana@frettabladid.is
ÁGÚST ÓLAFUR ÁGÚSTSSON „Það skiptir
máli að hafa gaman af vinnunni því við
eyðum svo miklum tíma í henni og ég
hvet alla sem eru í leiðinlegri vinnu að
hætta.“
„Allir kjólarnir mínir og skópörin sem
skipta hundruðum koma fyrst upp í huga
minn, Það er erfitt að gera upp á milli
„barnanna sinna“ en ætli hvíta skósíða
Calvin Klein ullarkápan mín hafi ekki
vinninginn, en hann Sæmi, kærasti minn
gaf mér hana í jólagjöf síðustu jól og því
stendur hún hjarta mínu afar nærri og
hlýjar mér frá innstu hjartarótum.“
Helga Braga Jónsdóttir leikkona.
„Svörtu sérsniðnu
jakkafötin mín skipa
sérstakan sess í
fataskápnum og eru í
miklu uppáhaldi, Þau er
fyrstu sérsniðnu
jakkafötin sem
ég hef átt og
það er ekki
hægt að
bera að
bera þau
saman við
fjöldafram-
leidd föt enda eru þau sniðin að mér og
mínum þörfum. Það er gott að vera í
jakkafötum, „they make you look good“.
Róbert Douglas leikstjóri:
„Þessa dagana þegar líður á veturinn er
hnausþykkur mokkaskinnsjakki í hvað
mestu uppáhaldi hjá mér. Jakkann fann
ég í „second hand“ búð í Amsterdam og
var hann nánast
ónotaður þegar
ég festi kaup á
honum. Hann
hefur reynst
mér afar vel í
kulda og gaddi
og er lífsnauðsyn-
legur þegar
veturinn ber
að garði.
Punkturinn
yfir i-ið er
síðan
rússahúfan
sem ég keypti af rússneskum uppgjafa-
hermanni við Brandenborgartorg í
steikjandi hita. Annars á ég líka fjári fínar
náttbuxur en geng síður í þeim við
mokkaskinnsjakkann og enn síður við
húfuna góðu.“
Einar Þorsteinsson, fréttamaður á
Rúv.
„Brúnu leðurstígvélin mín úr 38 þrepum
eru eftirlætis „flíkin“ mín. Ég er mikið
fyrir skó og á heljarinnar skósafn en
enda alltaf í stigvélunum sem ganga við
allt. Þau eru fullkomin fyrir mig og mína
fætur og mér finnst þau flottustu skór í
heimi.“
Íris Eggertsdóttir, fatahönnuður og
verslunareigandi í KVK.
uppá-
halds...
■ Hver er uppáhalds
flíkin þín?
LEIÐINLEGASTA STARFIÐ:
LÍFIÐ OF STUTT FYRIR
LEIÐINLEGA VINNU
Haltu partí heima hjá
þér. Það er ekkert
jafn afslappandi eins
og að skvetta
aðeins í sig og svo
er dásamlegt að
geta reykt inni án
þess að brjóta lög.
Slökktu á gsm-símanum og
tölvunni og lestu bók.
Ekki kaupa jólagjafir. Færðu fólki umslag
sem inniheldur seðla. Viðkomandi getur
sleppt því að bíða í röð milli jóla og nýárs
til að skipta gjöfinni.
Farðu í fótabað heima hjá þér. Það er
ekkert jafn róandi!
leiðir... til að sleppa við jólastress