Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 72
40 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERIKISATBURÐIR
1886 Tvö skip frá Reykjavík far-
ast í ofsaveðri og þrettán
sjómenn drukkna.
1916 Goðafoss strandar við
Straumnes fyrir norðan
Aðalvík á Hornströndum.
Skipið næst ekki aftur á
flot en mannbjörg verður.
1982 Margaret Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands,
fær senda bréfasprengju í
pósti.
1965 Íslenskir bankar kaupa
Skarðsbók á uppboði í
London, en hún var þá
eina forníslenska handrit-
ið í heiminum í einkaeigu.
2005 John Sentamu er skipað-
ur erkibiskup ensku kirkj-
unnar. Hann er fyrsti þel-
dökki maðurinn til að
gegna því embætti.
WINSTON CHURCHILL FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1874
„Viðmót er lítið atriði sem
skiptir sköpum.“
Winston Churchill var for-
sætisráðherra Bretlands á
tímum seinni heimsstyrjald-
arinnar og er einn af þekkt-
ustu stjórnmálaleiðtogum
Bretlands. Hann gegndi einn-
ig hermennsku, var rithöfund-
ur, blaðamaður og listmálari.
Hann hlaut bókmenntaverð-
laun Nóbels árið 1953.
Þennan dag árið 1936 brann
Crystal Palace-byggingin til kaldra
kola. Crystal Palace var járn- og
glerbygging sem byggð var fyrir
iðnaðarsýninguna miklu (The
Great Exhibition of Works and Ind-
ustry of all Nations) sem stóð yfir
í London frá 1. maí til 15. októb-
er árið 1851. Höllin var reist í Hyde
Park í London.
Á sýningunni voru meira en fjór-
tán þúsund aðilar með sýnishorn
af nýjustu vísindaframförum iðn-
byltingarinnar. Byggingin var 564
metra löng og 32 metra há og
vakti mikla lukku meðal almenn-
ings. Eftir sýninguna var hún flutt
í yfirstéttarhverfið Sydenham Hill í
Lundúnum.
Vinsældir Crystal Palace
dvínuðu með tímanum. Safn-
ið var lokað á sunnudögum en
það var eini dagurinn sem al-
menningur átti frí frá vinnu.
Annan áratug tuttugustu aldar
var byggingin í niðurníðslu en
eftir fyrri heimsstyrjöldina var
þar opnað stríðsminjasafn.
Allt leit út fyrir blómlegri
tíma þegar höllin varð eldi að
bráð árið 1936. Meðal þess
sem brann var búnaður sem
John Logie Baird notaði til til-
rauna við sjónvarpsútsendingar.
Seinna fékk svæðið þar sem
höllin stóð nafnið Crystal Pal-
ace og þar stendur í dag sam-
nefnd íþróttamiðstöð.
ÞETTA GERÐIST: 30. NÓVEMBER 1936
Crystal Palace verður eldi að bráð
Ferðafélag Íslands fagnaði áttatíu ára
afmæli sínu í vikunni. Páll Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri félagsins, segir
að markmið þess hafi í upphafi verið
að hvetja landsmenn til að ferðast og
kynna sér landið og að það sé enn í fullu
gildi.
„Strax á fyrstu árum félagsins var
farið að byggja skála á hálendinu, gefa
út árbækur og standa fyrir ferðum um
landið. Árbækurnar hafa síðan komið út
óslitið í áttatíu ár og eru ein nákvæm-
asta Íslandslýsing sem til er,“ segir
Páll. „Hver bók fjallar um ákveðna
sýslu eða afmarkað svæði og eru efn-
inu gerð mjög góð skil. Bækurnar eru
unnar í samstarfi við færustu menn á
hverjum stað og má nefna heimamenn,
sagnfræðinga og jarðfræðinga.“
Í dag rekur félagið fjörutíu skála víðs
vegar um landið, meðal annars í Þórs-
mörk og við Landmannalaugar. Á síð-
ustu áttatíu árum hefur það staðið fyrir
um 2.000 ferðum með yfir 200.000 þátt-
takendum og segir Páll áhugann auk-
ast með hverju ári. „Sem betur fer eru
ferðir um hálendið og náttúru Íslands í
tísku og til marks um það má nefna að
um 2.000 manns hafa gengið í félagið á
síðustu tveimur árum,“ segir Páll. „Það
finnst okkur mjög ánægjulegt því úti-
vist og ferðalög stuðla að heilbrigði á
líkama og sál,“ bætir hann við.
Ferðaáætlun félagsins kemur út í jan-
úar á hverju ári og eru fjölmargar ferð-
ir í boði. Rík áhersla er lögð á skipu-
lagðar gönguferðir en einnig jeppa- og
skíðaferðir. Ferðirnar eru öllum opnar
og ekki þarf að gerast félagi til að vera
með. Þá gefst hverjum sem er kostur á
að leigja skála.
Páll segir unga sem aldna sækja ferð-
irnar og að gaman sé þegar þessir hópar
nálgist og fari að skiptast á sjónarmið-
um. Í félaginu eru um 7.000 félagsmenn
og auk ferðanna er blómlegt félagslíf
innan félagsins. Yfir vetrarmánuðina er
til dæmis efnt til myndakvölda, kvöld-
vaka, spilakvölda og þorrablóta.
Í tilefni af afmælinu var haldinn há-
tíðarfundur í Norræna húsinu og fengu
25 manns gullmerki félagsins. „Þetta er
fólk sem hefur starfað lengi fyrir félag-
ið og unnið með framúrskarandi hætti á
sviði náttúrunnar, jarðfræði, að útgáfu-
málum og á öðrum kjörsviðum félags-
ins,“ segir Páll.
Þá var fjörutíu nemendum úr tíunda
bekk í Smáraskóla formlega boðið í fé-
lagið en það er liður í hátíðarsamþykkt
félagsins um að opna það fyrir ungu
fólki. Í kjölfarið verður öllum grunn-
skólum landsins boðin þátttaka gegn
vægu gjaldi og fá áhugasamir námskeið
í fjallamennsku og aðstoð við skipulagn-
ingu ferða. vera@frettabladid.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS: 80 ÁRA AFMÆLI
Félagið opnað ungu fólki
PÁLL GUÐMUNDSSON Framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands segir ferðir um hálendið og náttúru Íslands í tísku.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á húsnæði Víkurinnar,
Sjóminjasafns Reykjavíkur,
að Grandagarði 8. Almenn-
ingi gefst færi á að sjá um-
skiptin á safninu 2. desem-
ber næstkomandi en þá verð-
ur opnuð sýning um níutíu
ára sögu Reykjavíkurhafnar í
nýjum sal er kallast Bryggju-
salur.
Stærsti gripurinn sem
prýða mun nýtt og stór-
bætt móttökurými sjóminja-
safnsins er gufuvél frá árinu
1917. Vélin er norsk að upp-
runa og sú eina sinnar teg-
undar sem varðveist hefur
hér á landi. Gufuvélin er tæp-
lega átta tonn að þyngd og til
að hún kæmist í húsið þurfti
að brjóta allstórt gat á vegg
þess. Því er ljóst að hún mun
ekki fara úr húsinu í bráð
heldur setja mikinn svip á
anddyri þess um ókomna tíð.
Vélin var færð í hús í gær og
mun arftaki Sparisjóðs vél-
stjóra, BYR, styrkja uppsetn-
ingu hennar.
Frá vöðvaafli til vélarafls
SJÓMINJASAFNIÐ Í REYKJAVÍK STENDUR Á TÍMAMÓTUM Nú þegar
liðin eru þrjú hundruð ár frá stofnun þess hefur það eignast nýtt
húsnæði. Hér sést frá uppskipun í Reykjavíkurhöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
CRYSTAL PALACE Var byggð úr
járni og gleri fyrir iðnaðarsýn-
inguna miklu.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Níels Rafn Níelsson
bifvélavirkjameistari,
Funalind 15, Kópavogi,
lést 27. nóvember á líknardeild LSH í Kópavogi.
Guðbjörg E. Sigurjónsdóttir
Ómar Níelsson
Anna Björg Níelsdóttir Sigurður Sigurðsson
Níels Birgir Níelsson Svanborg Gísladóttir
Arnar Bjarki, Glódís Rún og Védís Huld.
50 ára afmæli
Í dag, 30. nóvember, er ég
hálfaldraður! Ætla að halda upp á
afmælið í Hlégarði Mosfellssveit!
Endilega komið með góða skapið og
njótum þess að vera saman. Húsið
opnar kl. 20.00, skemmtiatriði frá kl.
21.00, framtíð íslenskrar tónlistar.
Matur kl. 23.00! Dans fram eftir nóttu
með DJ Sheeba frá Bristol, Englandi!
Sjáumst!
Kristján Ingi Jónsson
P.S. Engar g jafi r takk! Söfnunarbaukur á staðnum
fyrir Umhygg ju!
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Helena Ottósdóttir
ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur,
Flúðabakka 1, Blönduósi,
verður jarðsungin frá Blönduóskirkju mánudaginn
3. desember kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsam-
legast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er
bent á minningarsjóð MND félagsins.
Sólveig Georgsdóttir Hans Kristján Guðmundsson
Ásta Georgsdóttir Ingólfur Birgisson
Georg Ottó Georgsson Linda Velander
Sigurður Georgsson Sólveig Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Pétur Magnússon
Háaleitisbraut 16, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 20. nóvember. Jarðarförin fer fram frá
Bústaðakirkju mánudaginn 3. desember kl. 13.00.
Ragnheiður Hallgrímsdóttir
Hallgrímur R. Pétursson
Björg Pétursdóttir
Magnús Pétursson Júlíanna Friðjónsdóttir
Guðfinna Pétursdóttir Guðmann Bjarnason
afabörn og langafabarn.