Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 78
46 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
LÚÐRASVEITIN SVANURINN Leikur frumlega
tónlistarblöndu á tónleikum sínum á morgun.
Lúðrasveitin Svanurinn heldur jólatónleika sína á
morgun kl. 17 í Neskirkju við Hagatorg.
Efnisskráin að þessu sinni er fjölbreytt og þar
kennir margra grasa. Þar verður meðal annars
leikið verkið Cold Shower eftir Tryggva M.
Baldvinsson, Tjarnarmars eftir Pál Pampichler
Pálsson og verkið Concerto eftir sama höfund, en
Svanurinn vill með leik sínum heiðra Pál þar sem
hann heldur bráðlega upp á stórafmæli. Einnig fá
að fljóta með nokkur létt og leikandi jólalög sem
vonandi munu glæða jólaskapið í áheyrendum í
upphafi aðventu.
Lúðrasveitin Svanurinn fagnar 77 ára afmæli
sínu nú um þessar mundir, en sveitin er skipuð
ungu fólki frá fimmtán ára aldri. Markmið Svansins
er að gera ávallt vel við hlustir áheyrenda og leika
ljúf og kunn lög í bland við ný verk og framúr-
stefnuleg eftir íslenska og erlenda höfunda. Til
stendur að gefa út geisladisk á komandi ári með
nýrri íslenskri lúðrasveitatónlist, og hefur sumt af
efni disksins aldrei verið leikið opinberlega áður.
Verður því spennandi að fylgjast með á næstu
mánuðum á hverju sveitin lumar.
Aðdáendur lúðrasveitatónlistar ættu ekki að láta
þetta tækifæri til þess að hlusta á áhugaverða og
frumlega blöndu af sígildum verkum, jólatónlist
og íslenskri nútímatónlist framhjá sér fara.
Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr., en 1.000
kr. fyrir skólafólk og tónlistarnema. - vþ
Jólatónleikar Svansins
Barokkhópurinn Rinasc-
ente leikur á tónleikum
undir yfirskriftinni „Vín
og ljúfir tónar“ í safnaðar-
heimili Neskirkju við
Haga torg í kvöld kl. 20.
Þar verður flutt tónlist
eftir Bach, Muffat og tvær
einsöngskantötur eftir G. F.
Händel.
Händel samdi kantöturnar á Ítalíu-
árum sínum og af því tilefni verður
fyrirtækið Vín og matur með kynn-
ingu á ítölskum vínum í hléi tón-
leikanna. Þetta er í annað skipti
sem Rinascente hefur þann háttinn
á að tvinna léttum veitingum saman
við tónleika sína, en fyrir ári hélt
hópurinn tónleika með sama sniði á
sama stað. Tónleikagestir voru að
vonum ánægðir með veitingarnar
og þá sérstöku stemningu sem
myndaðist fyrir vikið.
„Það er merkilegt hvað það
skapar mikla nánd á milli áhorf-
enda og flytjenda að hafa tónleika
með eilítið frjálslegra sniði en
tíðkast,“ segir Hrólfur Sæmunds-
son baritón sem er í Rinascente-
hópnum. „Við fengum upphaflega
hugmyndina að þessu tónleika-
formi þegar við vorum að velta
fyrir okkur tónleikaaðstæðum á
barokktímanum. Í þá daga voru
tónleikar minni í sniðum en tíðkast
í dag, tónleikagestir neyttu veit-
inga og spjölluðu sín á milli og
upplifunin var eflaust fremur
heimilisleg. Við erum sem tónlistar-
menn vön því að koma fram í tón-
leikasölum undir frekar formleg-
um kringumstæðum og því var það
skemmtileg tilbreyting fyrir okkur
að koma fram á svona afslöppuð-
um tónleikum.“
Auk Hrólfs eru í Rinascente
Hallveig Rúnarsdóttir sópran og
hljóðfæraleikararnir Dean Ferrell,
Hildigunnur Halldórsdóttir, Sig-
urður Halldórsson, Martin Frewer,
Svava Bernharðsdóttir og Stein-
grímur Þórhallsson, en þau leika
öll á upprunaleg hljóðfæri. Hópur-
inn hefur skipað sér sess meðal
fremstu túlkenda barokktónlistar
hérlendis.
„Hópurinn var stofnaður fyrir
um fjórum árum og í honum er
fólk sem hefur einlægan áhuga á
barokktónlist og fær útrás fyrir
flutning hennar með starfsemi
hópsins. Barokktónlist er falleg en
það getur verið áskorun að flytja
hana. Til að mynda eru kantöturnar
sem við Hallveig syngjum
skemmtilegar þar sem þær eru í
raun viðburðaríkar örsögur. Önnur
þeirra fjallar um storm og inni-
heldur viðeigandi þrumur og eld-
ingar en hin fjallar um óendur-
goldna ást. En þær eru jafnframt
tæknilega erfiðar og reyna mikið á
flytjandann enda sannkölluð
virtúósaverk,“ segir Hrólfur.
Þess er vert að geta að Stein-
grímur Þórhallsson heldur svo sína
árlegu orgeltónleika, sunnudaginn
2. desember. Á efniskránni eru
verk eftir Bach, Langlais og Jón
Þórarinsson. vigdis@frettabladid.is
Þrumur, eldingar og veitingar
RINASCENTE Hópurinn leikur á tónleikum í safnaðarheimili Neskirkju í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gullperlur
í Fríkirkjunni
Björg Þórhallsdóttir sópran-
söngkona sendi frá sér á dög-
unum sína þriðju sólóplötu,
Gullperlur. Hún stendur fyrir
útgáfutónleikum í Fríkirkjunni
í Reykjavík á morgun kl. 17,
sem eru hinir síðari af tveimur,
en síðastliðinn laugardag var
hún með útgáfutónleika í Akur-
eyrarkirkju.
Á tónleikunum hefur Björg
sér til fulltingis Braga Berg-
þórsson tenór ásamt hljóm-
sveit skipaðri þeim Örnu Krist-
ínu Einarsdóttur flautuleikara,
Ármanni Helgasyni klarínettu-
leikara, Elísabetu Waage
hörpuleikara, Jóni Guðmunds-
syni gítar leikara, Hjörleifi
Valssyni fiðluleikara, Martin
Frewer fiðluleikara, Jónínu
Auði Hilmarsdóttur víóluleik-
ara, Örnólfi Kristjánssyni selló-
leikara og Borgari Þór Magna-
syni kontrabassaleikara.
Platan Gullperlur hefur að
geyma fjölbreytt úrval þekktra
gersema úr heimi tónlistar-
innar. Á henni er að finna allt
frá þekktum íslenskum og
erlendum dægurlagaperlum til
vinsælla laga úr heimi klass-
ískrar tónlistar, söngleikja- og
kvikmyndatónlistar. Á meðal
laga sem finna má á plötunni
eru Adagio eftir Albinoni,
You‘ll Never Walk Alone og
Liljan, en þessi tónlist fær jafn-
framt að óma á tónleikunum á
morgun.
Þeir Jón Guðmundsson og
Einar Jónsson sáu um útsetn-
ingar tónlistarinnar á plötunni,
en á henni má jafnframt finna
nýja íslenska texta eftir Iðunni
Steinsdóttur og Svavar A. Jóns-
son. Sveinn Kjartansson og
Baldvin A. Baldvinsson Aalen
önnuðust upptökur en listrænn
stjórnandi og tónmeistari var
Sverrir Guðjónsson. - vþ
BJÖRG ÞÓRHALLSDÓTTIR Syngur í
Fríkirkjunni á morgun.
Sýning
Listamennirnir Stephan Stephensen,
Rakel Gunnarsdóttir, Lóa Hjálmtýs-
dóttir, Guðmundur Thoroddsen, Helgi
Þórsson og Sara Riel opnuðu nýverið
samsýningu í 101 Gallery, Hverfis-
götu 18a. Listamennirnir eiga það
sameiginlegt að hafa allir haldið
einkasýningar í galleríinu á árinu.
Sýningunni lýkur 3. janúar.
> Ekki missa af...
Tónleikum til styrktar Abc
barnahjálp kl. 19.30 í Grafar-
vogskirkju í kvöld. Á tón-
leikunum kemur fram fjöldi
tónlistarmanna, til að mynda
Ragnar Bjarnason, Söngskóli
Sigurðar Dementz, Kirkju-
kór Lindakirkju og Samkór
Reykjavíkur. Miðaverð er
1.950 kr.
Syngjum kvæði Jónasar
Hinn 16. nóvember sl. voru liðin
200 ár frá fæðingu Jónasar Hall-
grímssonar og fór ekki framhjá
neinum. Af því tilefni var Fífil-
brekkuhópurinn víða á ferðinni
en hann skipa þau Sigurður
Snorrason klarinettuleikari, Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanó-
leikari, Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari, Hávarður Tryggva-
son kontrabassaleikari, Hulda
Björk Garðarsdóttir sópran og
Eyjólfur Eyjólfsson tenór, og
fluttu þau lög Atla Heimis Sveins-
sonar við kvæði Jónasar. Nú hefur
Íslenska tónverkamiðstöðin gefið
út geisladisk með þessum 26
lögum sem Atli Heimir hefur
smíðað við kveðskap Jónasar
Hallgrímssonar.
Atli Heimir Sveinsson hefur
um árabil samið lög við ljóð
Jónasar sem margir Íslendingar
þekkja og kunna. Lög Atla eru í
gömlum stíl sem hann hefur lýst
að hann teldi hæfa og mjög söng-
hæf sem sýnir fjölhæfni tón-
skáldsins en Atli Heimir hefur
frekar verið þekktur sem nútíma-
tónskáld. Má þar nefna lögin
Buxur, vesti, brók og skór og Fíf-
ilbrekka, gróin grund. Jónas
sendi Dalvísu til Fjölnisfélagsins
í Kaupmannahöfn í janúar 1844.
Á uppkastið skrifaði Jónas meðal
annars: „Ég ætl´að biðj ukkur um
að láta búa til fallegt lag, ekki of
dýrt við vísuna mína“ og í hrein-
ritinu stendur: „Það er annars
ógjörningur að eiga ekki lög til að
kveða þess konar vísur undir;
svona komast þær aldrei inn hjá
alþýðu.“ Nú er úr því bætt. Meðal
annarra ljóða sem eru á disknum
eru Vorið góða, Sáuð þið hana
systur mína, Ég bið að heilsa,
Hvað er svo gott og Heiðlóarvísa.
Önnur kvæði hafa ekki notið lags
fyrr en nú: hér eru hin óviðjafnan-
legu kvæði: Stökur ortar 21.
desember 1844, Alsnjóa, Grá titt-
lingurinn og Ferða lok sem er
lengsta tón smíðin, en í allt eru
tæpar 73 mínútur af tónlist á
disknum. - pbb
TÓNLIST Atli Heimir Sveinsson tón-
skáld hefur lengi fengist við að lagsetja
kvæði Jónasar Hallgrímssonar og eru
26 þeirra nú komin á disk.
www.forlagid.is