Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 80
30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON Les upp
úr nýrri bók sinni í Saltfélaginu á
sunnudag.
Þriðji hluti upplestrarraðar
Salt félagsins á sér stað á sunnudag
kl. 15. Að þessu sinni verða það
tveir vinsælir höfundar sem stíga á
stokk; þeir Einar Már Guðmunds-
son, sem les úr bók sinni Rimlar
hugans, og Árni Þórarinsson sem
les úr bók sinni Dauði trúðsins.
Árni hefur fyrir löngu stimplað
sig inn sem einn af bestu glæpa-
sagnahöfundum Íslands og hefur
Dauði trúðsins fengið lofsamlega
dóma gagnrýnenda. Í Dauða
trúðsins glímir Einar blaðamaður
við ráðgátu sem leiðir hann í senn á
refilstigu íslensks samtíma og að
reimleikum í eigin ranni. Hér
togast á leiftrandi húmor og djúp
alvara í hörkuspennandi sögu um
lífsháskann í mannlegum sam-
skiptum.
Einar Már byggir sögu sína á
bréfi frá fanga á Litla-Hrauni sem
honum barst árið 2002. Bókinni
hefur verið lýst sem ástarsögu
ógæfusamra einstaklinga, en
einnig sem frumlegri skáldsögu
þar sem höfundurinn tekst á við
sjálfan sig af fágætri einlægni og
hispursleysi.
Upplesturinn fer fram í verslun
Saltfélagsins á Grandagarði 2. - vþ
Höfundar
í salti
Hulda Stefánsdóttir, myndlistar-
maður og sýningarstjóri sýningar-
innar Kvikar myndir, verður með
leiðsögn í Listasafni ASÍ, Freyju-
götu 41, á sunnudag kl. 14.
Hulda mun ganga með gestum
um sýninguna og spjalla um
verkin og sýningarhugmyndina.
Sýningin er haldin í tilefni af
níutíu ára afmæli Reykjavíkur-
hafnar og er samvinnuverkefni
Faxaflóahafna og Listasafns
ASÍ. Á sýningunni má sjá verk
frá tímabilinu 1900-2007 eftir
rúmlega tuttugu listamenn en
verkin eiga það sammerkt að
tengjast höfninni á beinan eða
óbeinan hátt í fortíð, nútíð og
framtíð.
Meðal listamanna sem eiga
verk á sýningunni eru Ásgrímur
Jónsson, Birgir Andrésson,
Einar Garibaldi Eiríksson,
Hanna Styrmisdóttir, Hulda
Hákon og Jóhannes S. Kjarval.
Listasafn ASÍ er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 13-17 og
er aðgangur að safninu ókeypis.
- vþ
Höfnin í myndum
KVIKAR MYNDIR Listasafn ASÍ er um
þessar mundir undirlagt list sem tengist
Reykjavíkurhöfn.
22. nóvember - uppselt
23. nóvember - uppselt
30. nóvember - uppselt
1. desember - uppselt
7. desember - uppselt
8. desember - uppselt
LAUGARDAGUR 1. DES KL. 17
TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR
AUÐUR, BEGGI OG JÓNAS
LÖG JÓNS ÁSGEIRSSONAR
Miðaverð 2000/1600 kr.
MIÐVIKUDAGUR 5. DES KL. 20
PÍANÓTÓNLEIKAR
JÓNAS INGIMUNDARSON
Aðgangur ókeypis.
LAUGARDAGUR 8. DES KL. 13
TKTK: GÍTARTÓNLEIKAR
JÓN GUÐMUNDSSON
Miðaverð 1500/500 kr.
SUNNUDAGUR 9. DES KL. 20
Ó Ó INGIBJÖRG – útg.tónl.
ÓSKAR, ÓMAR OG INGIBJÖRG
GUÐJÓNSBÖRN
Miðaverð 2000/1600 kr.
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Leitin að jólunum
eftir Þorvald Þorsteinsson
Aðventuleikrit Þjóðleikhússins.
Fyrsta sýning 1. des.
Örfá sæti laus í desember.
Konan áður
eftir Roland Schimmelpfennig
„Fyndið verk og hættulegt sem er
borið upp af ákaflega sterkum
leikhópi“. AÞ, 24stundir.
Skilaboðaskjóðan
eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson
Söngleikur fyrir alla fjölskylduna.
Uppselt til jóla, sala á sýningar eftir
áramót í fullum gangi!
Hjónabandsglæpir
eftir Eric-Emmanuel Schmitt
Metaðsókn í vor og haust.
Allra síðustu sýningar 7/12 og 8/12.
Meinfyndið verk um íslenskan veruleika.
Síðasta sýning 9/12.
Óhapp!
eftir Bjarna Jónsson