Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 81
FÖSTUDAGUR 30. nóvember 2007
Sigurður Örlygsson listmálari leiðir gesti um
sýningu Listasafns Íslands á verkum úr safni
Markúsar Ívarssonar á sunnudag kl. 14.
Sigurður mun í spjalli sínu skoða einstök verk á
sýningunni með augum listmálarans en jafnframt
fjalla um listamennina og þróun verka þeirra. Hann
mun beina sjónum sérstaklega að þeim mörgu
hafnarmyndum sem á sýningunni er að finna. Alls
eru sýnd nú ein 28 verk af þeim sextíu sem afkom-
endur Markúsar hafa fært safninu að gjöf frá
upphafi. Sérstaklega ber að geta höfðinglegrar
gjafar málverks eftir Jón Stefánsson af sjálfum
Markúsi Ívarssyni sem afkomendur Markúsar
færðu safninu nýlega og sem hér býðst nú tækifæri
til að sjá.
Vakin skal athygli á því að utan skipulagðra
leiðsöguferða um sýningar býður Listasafn Íslands
einnig upp á þann möguleika að panta leiðsögn.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við safnið
til að koma slíku í kring. - vþ
Þrjátíu leirlistamenn úr Leirlista-
félagi Íslands opna á sunnudag
sýningu á kertastjökum í
Grensáskirkju. Í tilefni af
sýningunni mun Leirlistafélagið
bjóða upp á kaffi og konfekt eftir
messu á sunnudag, en messan
hefst kl. 11.
Tilgangur sýningarinnar er að
vekja eftirtekt á fjölbreytileika
og sköpunargleði og veita birtu
og yl í umhverfið á þessum
dimma árstíma.
Óþarft er að
tíunda að það veitir
margfalt meiri
ánægju að horfa á
kertið sitt ljóma í
fallegum kertastjaka
með persónulegu
yfirbragði.
Leirlistarfélag
Íslands er fagfélag
um leirlist og er aðili
að Sambandi
íslenskra mynd-
listarmanna.
Félagsmenn
Leirlistarfélags-
ins merkja verk
sín með sérstök-
um stimpli,
LEIR, sem
tryggir kaupend-
um leirlistar að þar hafi
myndlistar menntaður fagmaður
farið höndum um gripina.
Sýningin er í samvinnu við
safnaðarnefnd Grensáskirkju. - vþ
Ragnar Th. Sigurðsson opnar
sýninguna Litir jarðar í ljós-
myndagalleríinu Fótógrafí,
Skólavörðustíg 4, á morgun kl. 12.
Ljósmyndirnar á sýningunni eru
allar teknar síðastliðið haust og
sýna blæbrigði íslenskra villi-
jurta í nærmynd.
Ragnar, sem er með reyndari
ljósmyndurum á Íslandi, sýnir á
sér nokkuð nýja hlið því hann er
þekktastur fyrir hefðbundnari
landslagsmyndir. Ragnar hóf
störf sem ljósmyndari á gamla
Dagblaðinu árið 1975 og hefur
starfað óslitið við fagið síðan.
Hann hefur gefið út fjölda
fagurlega myndskreyttra bóka,
meðal annars í samstarfi við Ara
Trausta Guðmundsson jarðeðlis-
fræðing.
Opið er í Fótógrafí alla daga í
desember frá klukkan 12 til 18.
Sýning Ragnars stendur til 4.
janúar. - vþ
Villijurtir að
hausti
NÁTTÚRUFEGURÐ Ein af ljósmyndum
Ragnars Th. Sigurðssonar.
SIGURÐUR ÖRLYGSSON Hann fræðir gesti um myndlist í Lista-
safni Íslands á sunnudag.
Leiðsögn um safn Markúsar
Aðventu-
stjakar Nýja snilldarplatan með
Sverri Stormsker
Fólk er yfi r sig hrifi ð af nýju plötu Sverris Stormskers,
“There Is Only One” eins og sjá má af eftirfarandi umsögnum:
Rúnar Júlíusson, tónlistarmaður:
“Alveg einstaklega frábær diskur hjá Stormsker.
Páll Óskar Hjálmtýsson, söngvari:
“Þessi plata kom mér verulega á óvart.
Ég vissi ekki að Stormsker ætti þetta til og
ég var eiginlega búinn að gleyma hvað hann
er góður lagasmiður.”
Einar Bárðarson, umboðsmaður:
“Tímamóta!”
KK, tónlistarmaður:
“Sverrir Stormsker, melody maker af Guðs náð.”
Magni Ásgeirsson, söngvari:
“There Is Only One er falleg og angurvær plata frá einum
skemmtilegasta tónlistarmanni þjóðarinnar. Söngvararnir ná nýjum hæðum í eiginlegri merkingu, lögin eru allt í senn
hnyttin, smekklega útsett, vel samin og grípandi, - skyldueign í safnið.”
Gunnar Þórðarson, tónskáld:
“Stormsker er einn sá albesti.”
Trausti Júlíusson gagnr. Fréttablaðsins:
“Það hefur lengi verið vitað að Sverrir Stormsker er snillingur. Sverrir er konungur power-ballöðunnar. Það er greinilegt
að Sverrir hefur verið í miklum ham þegar hann samdi lögin á þessari plötu. Hvert snilldarlagið rekur annað. Sverrir er la-
gasmiður á heimsmælikvarða og það væri virkilega spennandi að heyra lögin hans unnin af einhverjum af stóru pródúse-
runum í poppheiminum. Ég er sannfærður um að ef hann væri með góðan umba þá gæti hann lifað góðu lífi af því að
selja frægum tónlistarmönnum lög. Robbie Williams hefði t.d. vel getað notað nokkur af þessum lögum á sinni síðustu
plötu. Hún hefði batnað mikið við það. Setja Einar Bárðar í málið.”
Arnar Eggert Thoroddsen gagnr. Mbl:
“Ferill Sverris Stormskers í íslenskri dægurlagatónlist er algerlega einstakur. Hann nýtur hylli
almennings um leið og hann stendur kirfi lega utan við alla strauma og stefnur, utangarðsmaður með hreina náðargáfu
hvað laga- og textagerð varðar. Þessi hæfi leiki sannast svo um munar á There Is Only One, angurværri og sorgbitinni
plötu þar sem á takast fegurð og fallvaltleiki, vonleysi og von. Hið ótrúlega næmi sem Sverrir hefur fyrir melódíu hefur
aldreið verið jafn augljóst og hér.”
Þorsteinn Eggertsson, textahöfundur:
“Ég er á því að á þessari nýju plötu Stormskers eru mörg þau bestu lög sem hafa verið samin á Íslandi í heila öld, enda
samin af persónulegasta, fjölhæfasta og besta tónskáldi landsins. Auk þess er söngur Sverris ótrúlega einlægur og sön-
gur hinnar asísku Myru er líklegast sá magnaðasti sem heyrst hefur á íslenskri plötu frá upphafi . Þessi plata er einfald-
lega hrein og tær snilld.
Dreifi ng: Zonet. Heyra má 4 lög af diskinum á http://stormsker.blog.is, svo og www.stormsker.net þar sem
jafnframt er hægt að panta diskinn á afar sanngjörnu verði.