Fréttablaðið - 30.11.2007, Page 85
FÖSTUDAGUR 30. nóvember 2007 53
Auglýsingasími
– Mest lesið
Bandaríski tónlistarmaðurinn Bonnie „Prince“
Billy fær góða dóma á tónlistarsíðunni
Pitchfork fyrir útgáfu sína af lagi Bjarkar
Guðmundsdóttur, I´ve Seen It All, sem hún
söng með Thom Yorke á plötunni
Selmasongs.
Útgáfu Bonnie „Prince“, sem
heitir réttu nafni Will Oldham, er að
finna á nýjustu plötu hans, Ask
Forgiveness. „Hinn dáleiðandi og
melódíski blær upphaflega lagsins
víkur fyrir beinskeyttara og
hrárra andrúmslofti. Oldham
dregur úr hinni mikilli áferð
lagsins og sviptingum og leggur
mun meiri áherslu á fallegan
textann,“ segir í dómnum.
Auk Bjarkarlagsins eru sjö útgáfur
Bonnie af lögum eftir aðra tónlistarmenn,
þar á meðal lagi R. Kelly, The World´s
Greatest. Oldham er ekki
ókunnugur Björk því fyrir
tveimur árum söng hann
dúett með henni í laginu
Gratitude á plötunni
Drawing Restraint 9.
Einnig vann kappinn
plötuna The Letting Go
með upptökustjóranum
Valgeiri Sigurðssyni,
sem hefur einmitt
starfað mikið með
Björk í gegnum tíðina.
Góðir dómar fyrir Bjarkarlag
BJÖRK Björk söng með Bonnie „Prince“
í laginu Gratitude á plötunni Drawing
Restraint 9.
BONNIE „PRINCE“ BILLY
Bonnie „Prince“ fær góða
dóma fyrir útgáfu sína á
lagi Bjarkar, I´ve Seen It All.
Hljómsveitin múm er þessa dag-
ana á þriggja vikna tónleikaferð
um Evrópu til að kynna nýjustu
plötu sína Go Go Smear the Posion
Ivy. Fyrstu tónleikarnir voru á
hátíðinni Reykjavík to Rotterdam
í Hollandi þar sem ellefu íslenskar
hljómsveitir til viðbótar komu
fram. Ferðinni lýkur með fimm
tónleikum í Bretlandi í næsta mán-
uði þar sem íslenska hljómsveitin
Seabear verður með í för ásamt
dúettinum Mr. Silla & Mongoose,
sem gaf fyrir skömmu út plötuna
Foxbite. Á næsta ári fer múm
síðan í tónleikaferð um Japan.
Go Go Smear the Posion Ivy
hefur fengið mjög góða dóma.
Hún fékk átta af tíu mögulegum
hjá breska tímaritinu NME og í
Uncut var tónlistinni líkt við Belle
& Sebastian og Portishead. Í dag-
blaðinu Guardian var hljómnum á
plötunni síðan líkt við plötuna Kid
A með Radiohead.
Ferðast um
Evrópu
MÚM Hljómsveitin múm er á þriggja
vikna tónleikaferð um Evrópu.
Söngkonan Kylie Minogue hefur
tilkynnt um tónleikaferð sína um
Evrópu á næsta ári. Tónleikarnir
verða 24 talsins og hefst ferðin í
París hinn 6. maí. Á meðal fleiri
viðkomustaða verða Þýskaland,
Finnland og Svíþjóð.
Kylie, sem er 39 ára, aflýsti
síðustu tónleikaferð sinni eftir að
hún greindist með brjóstakrabba-
mein árið 2005. Sneri hún aftur á
sjónarsviðið fyrir tæpu ári og
hefur síðan þá verið dugleg við
tónleikahald. Læknar hafa þó
ráðlagt henni að fara að öllu með
gát í þessum túr.
Tónleikaferð
á næsta ári
KYLIE MINOGUE Ástralska söngkonan
ætlar í tónleikaferð um Evrópu.
MASTERCARD KORTHAFAR FÁ TVO MIÐA Á VERÐI EINS Á
ALLAR SÝNINGAR Á MYNDINNI FRÁ 30. NÓVEMBER TIL
6. DESEMBER GREIÐI ÞEIR MEÐ KORTINU.
Sjáðu myndina,
hlustaðu á diskinn!
Fáanlegir í Skífunni.
MÖGNUÐ MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF
STÚTFULL AF ÆÐISLEGRI BÍTLATÓNLIST!
ALL YOU NEED IS LOVE!
YFIR 30 BÍTLALÖG Í NÝJUM ÚTFÆRSLUM, SUNGIN AF
FRÁBÆRUM AÐALLEIKURUM MYNDARINNAR.