Fréttablaðið - 30.11.2007, Síða 94
62 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Lið úr Iceland
Express-deild karla mætast í
fimm af átta leikjum 16 liða
úrslita Lýsingarbikarsins en
dregið var í gær.
Stórleikur umferðarinnar er
örugglega milli KR og Grindavík-
ur en liðin eru í 3. og 2. sæti
deildarinnar. Þá mætast Hamar og
bikarmeistarar ÍR í Hveragerði en
þessi lið mættust einmitt í
bikarúrslitunum í fyrra. Aðrir
leikir milli úrvalsdeildarliða eru
Tindastóll-Keflavík, Þór Akureyri-
Snæfell og Stjarnan-Njarðvík.
Engir leikir eru milli liða í
Iceland Express-deild kvenna en
það var einnig dregið í 16 liða
úrslit kvenna í gær. Valskonur
sitja þar hjá. - óój
16 LIÐA ÚRSLIT KVENNA
KR - Ármann/Þróttur
Haukar - Keflavík b
Skallagrímur - Snæfell
Tindastóll - Fjölnir
Breiðablik - Hamar
Haukar b - Grindavík
Keflavík - Njarðvík
Valur situr hjá
16 LIÐA ÚRSLIT KARLA
KR - Grindavík
Þór Þorlákshöfn - Höttur
Tindastóll - Keflavík
Þór Ak. - Snæfell
Hamar - ÍR
Stjarnan - Njarðvík
Skallagrímur - FSu
Fjölnir - Þróttur Vogum
Lýsingarbikar karla og kvenna:
KR og Grinda-
vík mætast
KÖRFUBOLTI ÍR-ingar eru aftur
búnir að skipta um bandarískan
leikmann því Ray Cunningham
hefur verið sendur heim.
Í stað Cunninghams hafa ÍR-
ingar leitað til Nates Brown sem
varð bikarmeistari með liðinu í
fyrra. Brown var með 16,9 stig og
6,4 stoðsendingar að meðaltali
með ÍR-liðinu í fyrra en hóf
tímabilið í Frakklandi.
ÍR-ingar hófu tímabilið með
Sonny Troutman (11,3 stig og 10,3
í framlagi í leik) sem var látinn
fara eftir 3 leiki en Cunningham
var aðeins með 9,8 stig og 9,3 í
framlagi í fjórum leikjum sínum í
Iceland Express-deildinni.
ÍR-ingar eru líka að leita sér að
stórum manni en þeir hafa einnig
látið tvo Bosman-leikmenn fara
frá liðinu. - óój
Iceland Express-deild karla:
ÍR-ingar reka
annan Kana
ÚTLENDINGAVANDRÆÐI Jón Arnar
Ingvarsson hefur verið óheppinn með
erlenda leikmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Jörundur Áki Sveinsson
hefur látið af störfum sem þjálf-
ari kvennaliðs Breiðabliks og
ákveðið að færa sig um set og ger-
ast aðstoðarþjálfari karlaliðs FH,
en þetta staðfesti hann í samtali
við Fréttablaðið í gær.
„Eftir að ég settist niður með
Heimi Guðjónssyni og ræddi
málin með honum fannst mér ég
ekki geta sleppt þessu tækifæri.
Það eru spennandi tímar fram
undan hjá FH og ég hlakka til þess
að geta hjálpað Heimi og strákun-
um í FH með komandi verkefni.
FH missti náttúrulega af Íslands-
meistaratitlinum á síðasta sumri
og það hlýtur að vera fyrsta keppi-
kefli hjá liðinu að endurheimta
hann,“ sagði Jörundur Áki en kvað
þó ákvörðunina að yfirgefa
Breiðablik hafa verið mjög erf-
iða.
„Þetta kom náttúrulega fljótt
upp og ég stend og fell með þess-
ari ákvörðun minni. Það var vissu-
lega ekki létt að sleppa hendinni
af Breiðabliksliðinu, sem er klár-
lega efnilegasta kvennalið lands-
ins og hópurinn er mjög skemmti-
legur að vinna með.
Ég er þess líka fullviss að ef
rétt verður haldið á hlutunum,
sem ég er sannfærður um að verði
gert, að þá verður þetta Breiða-
blikslið meistari innan fárra ára,“
sagði Jörundur Áki og þakkaði
stjórn Breiðabliks fyrir fagmann-
leg vinnubrögð þegar hann til-
kynnti þeim fyriráætlanir sínar.
Einar Kristján Jónsson, formaður
Breiðabliks, sagði í samtali við
Fréttablaðið að liðið hefði viljað
halda í Jörund Áka.
„Þetta er auðvitað ekki besti
tíminn til að standa í þjálfara-
skiptum þegar undirbúningstíma-
bilið er hafið og mikil vonbrigði
fyrir okkur að ná ekki að halda
Jörundi Áka hjá liðinu.
Á móti kemur náttúrlega að
þetta starf hlýtur að vera eftirsótt
vegna þess hve mikill og góður
efniviður er í Blikaliðinu og því
ættum við ekki að lenda í miklum
erfiðleikum með að fá góðan eftir-
mann í starfið.
Við erum komin á fullt með að
finna eftirmann og það eru nokk-
ur nöfn komin á blað hjá okkur en
það skýrist vonandi allt fljótlega
eftir helgi,“ sagði Einar Kristján.
- óþ
Jörundur Áki er hættur sem þjálfari kvennaliðs Breiðabliks og farinn til FH:
Gat ekki sleppt þessu tækifæri
NÝTT VERKEFNI Jörundur Áki hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs FH og lætur
því af störfum sem þjálfari kvennaliðs Breiðabliks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Kristján Örn Sigurðsson,
leikmaður Brann og íslenska
landsliðsins, hefur enn ekki jafnað
sig á höfuðmeiðslum sem hann
hlaut í landsleik Íslands og Dan-
merkur í síðustu viku eftir sam-
stuð við samherja sinn, Grétar
Rafn Steinsson. Kristján var því
ekki í leikmannahópi Brann þegar
liðið tók á móti Dinamo Zagreb á
heimavelli sínum í Evrópukeppni
félagsliða í gærkvöldi.
Fram kom á heimasíðu norska
liðsins að Kristján yrði ekki í leik-
mannahópi Brann fyrir leikinn
gegn Dinamo Zagreb vegna áverka
sem hann hlaut í landsleik á dög-
unum. Ola Jøsendal, læknir Brann,
sagði þar enn fremur að Kristján
sæi enn tvöfalt. Kristján Örn vildi
hins vegar ekki gera of mikið úr
meiðslum sínum í samtali við
Fréttablaðið í gærkvöldi.
„Þetta hljómar örugglega tals-
vert verr en þetta er í raun og
veru. Ég sé allt í lagi ef ég horfi
beint áfram, en þegar ég horfi upp
og til vinstri þá sé ég tvöfalt. Þegar
ég stóð upp eftir höggið frá Grét-
ari þá sá ég bara tvöfalt og þurfti
því að biðja um skiptingu. Þegar
ég kom svo aftur til Noregs þá
sendu læknar Brann mig strax til
augnlæknis þegar þeir áttuðu sig
á því að þetta væri alvarlegra en
leit út fyrir í fyrstu,“ sagði
Kristján en kvað batahorfurnar
eiga að vera góðar.
„Augnlæknirinn telur að við
höggið hafi brotnað bein í augntóf-
tinni og kjölfarið hafi fituvökvi
lekið inn á vöðva í auganu, sem
kunni svo aftur á móti að trufla
sjónina tímabundið. Þetta er víst
ekkert svo rosalega algengt, en
þetta á sem sagt bara að lagast af
sjálfu sér og það gerist vonandi
fljótt því ég vil ekki missa af fleiri
leikjum.“
Kristján var mikilvægur
hlekkur í deildarsigri Brann á
nýafstaðinni leiktíð og var meðal
annars valinn í lið ársins hjá
norska Íþróttasambandinu.
omar@frettabladid.is
Kristján Örn enn óleikfær
Kristján Örn Sigurðsson, leikmaður Brann, er enn ekki búinn að jafna sig á
höfuð höggi sem hann hlaut í landsleik á dögunum, en augnlæknir í Noregi
segir að hann muni ná fullum bata og sjón hans eigi að lagast af sjálfu sér.
MEIDDUR Kristján Örn Sigurðsson er enn ekki búinn að jafna sig eftir höfuðhögg
sem hann hlaut í landsleiknum gegn Danmörku í síðustu viku. Kristján meiddist
strax á þriðju mínútu í leiknum. FRÉTTABLAIÐIÐ/PJETUR
SM
S
LEI
KUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
k
FRUMSÝND 30. NÓVEMBER
SJÁÐU MYNDINA OG SPILAÐU LE IK INN!
SENDU SMS JA HMF Á
NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UN
NIÐ!
V INN INGAR ERU B Í
ÓMIÐAR FYR IR TVO
,
H I TM AN LE IK IR , DV
D MYND IR , VARN IN
GUR
TENGDUR MYND INN
I OG MARGT FLE IRA
!
Jón Guðmundsson er í hópi bestu körfubolta-
dómara landsins og dæmir reglulega í Ice-
land Express deild karla. Hann er samt ekki
eini dómarinn í fjölskyldunni því þrettán ára
dóttir hans Kristjana Eir Jónsdóttir er komin
með dómarapróf líkt og pabbi sinn og þau
dæmdu saman æsispennandi leik í vikunni.
„Þetta var frábært og ekki skemmdi fyrir
hvað hún stóð sig frábærlega vel. Það
voru allir himinlifandi með frammistöðu
hennar. Þetta kom öllum á óvart, bæði að
sjá hana labba inn í salinn og svo þegar
hún byrjaði að flauta en hún dæmdi tvær
fyrstu villurnar,” sagði Jón um leikinn sem
þau dæmdu saman. Jón segir Kristjönu hafa
verið mjög ákveðna. „Hún flautaði ekki færri
villur en ég þar til fimm mínútur voru eftir.
Ég var hissa að sjá hvað þjálfararnir voru
glaðir eftir leikinn en þetta kom mér allt
skemmtilega á óvart,” segir Jón og leikurinn
var ekki af auðveldari gerðinni, æsispenn-
andi bikarleikur milli Grindavíkur og UMFH í
10. flokki kvenna sem Grindavík
vann með tveimur stigum.
„Ég hef ekki verið að ýta henni
út í það að verða dómari en
hún vildi fara á dómara-
námskeið í haust.
Hún byrjaði síðan
á fullu að dæma
í fjölliðamót-
um,” segir Jón,
sem segir að
áhuginn leyni
sér ekki hjá
stelpunnni.
„Þegar það
eru fjöllliða-
mót í Keflavík þá er hún nánast alla helgina
út í Keflavík að flauta,” segir Jón, sem byrjaði
að dæma í úrvalsdeild karla 1988.
„Það vantar ákveðna hluti hjá henni, sem er
bara eðlilegt. Miðað við þessa byrjun sé ég
hana alveg ná langt í dómgæslunni,” segir
Jón, sem ætti að geta sagt henni til.
Kristjana er þegar orðin mikilvægur
félagsmaður fyrir Keflavík; auk
þess að spila og æfa sjálf dæmir
hún mikið fyrir félagið og
grípur líka í öll störf sem
tengjast ritaraborðinu.
„Hún kann þetta allt og
það er frábært fyrir félagið
að hafa svona manneskju
sem getur hlaupið í öll störf,”
segir Jón, sem er ánægður
með stelpuna sína.
JÓN GUÐMUNDSSON OG KRISTJANA EIR JÓNSDÓTTIR: FEÐGIN DÆMDU SAMAN KÖRFUBOLTALEIK Í VIKUNNI
Kom pabba sínum skemmtilega á óvart
> Strákarnir spila á heimavelli
Íslenska 17 ára landslið karla mun spila
á heimavelli í undankeppni EM 2009
en dregið var í riðla í Cannes í Frakk-
landi í gær. Ísland dróst í riðil með
Sviss, Noregi og Úkraínu en á sama
tíma lenti 19 ára landsliðið í riðli með
Svíþjóð, Austurríki og Makedóníu.
Leikirnir hjá 17 ára landsliðunum
fara fram 24. 26. og 29. sept-
ember 2008 en leikstaðirnir hér
á landi hafa ekki verið ákveðnir
enn þá. Úrslitakeppni U17 karla
fer fram í Þýskalandi árið 2009
en úrslitakeppni U19 karla fer
fram í Úkraínu.