Fréttablaðið - 30.11.2007, Side 96
64 30. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Harry Redknapp, knatt-
spyrnustjóri Portsmouth í ensku
úrvalsdeildinni, hefur lýst yfir sak-
leysi sínu í sambandi við spillingar-
mál sem komið er upp í enska bolt-
anum.
Harry Redknapp var afar
ósáttur á blaðamannafundi sem
var haldinn vegna málsins í gær.
„Það var ráðist inn á heimili
mitt kl. 6.00 um morguninn, bæði
lögregla og blaðamenn, á meðan
ég var staddur erlendis út af leik
sem ég var á. Konan mín er enn
skelkuð út af þessu öllu saman og
málið tengist mér ekki einu sinni,
heldur er verið að gera athuga-
semd við samskipti umboðsmanns
og leikmanns. Þetta eru fáránleg
vinnubrögð og ég er greinilega
bara dreginn inn í málið til þess að
auka gildi þess vegna þess að ég
er þekkt nafn,“ sagði Redknapp
pirraður á blaðamannafundinum.
Milan Mandaric, fyrrverandi
stjórnarformaður Portsmouth og
núverandi stjórnarformaður
Leicester, og Peter Storrie, stjórnar-
maður Portsmouth, voru einnig
færðir til yfirheyrslu í fyrradag og
hafa talsmenn þeirra einnig lýst
yfir sakleysi þeirra í málinu.
Síðustu tveir af þeim fimm
mönnum sem voru yfirheyrðir út
af spillingarmálinu eru Amdy
Faye, núverandi leikmaður Charl-
ton sem er á láni hjá Rangers, og
Willie McKay, umboðsmaður
hans. Samkvæmt því sem Red-
knapp sagði á blaðamannafundin-
um í gær virðast öll spjót beinast
að félagaskiptum Faye til Ports-
mouth frá Auxerre á árið 2003 og
svo frá Portsmouth til Newcastle
árið 2005, en McKay sá um bæði
félagaskipti hans.
Seinni félagaskipti Faye til New-
castle voru einmitt ein af þeim 17
félagaskiptum fimm liða í ensku
úrvalsdeildinni sem Stevens
lávarður gerði athugasemd við í
frægri lokaúttekt sinni á spillingu
í enska boltanum. Lokaúttektin
kom út í júní síðastliðnum og títt-
nefndur Willie McKay var enn
fremur einn af fimmtán umboðs-
mönnum sem Stevens lávarður
sagði í úttekt sinni að hefðu ekki
sýnt samstarfsvilja. Þrír knatt-
spyrnustjórar voru í úttektinni
sérstaklega nefndir til sögunnar,
en það voru þeir Sam Allardyce,
Graeme Souness og Harry Red-
knapp. - óþ
Redknapp kveðst saklaus
Fimm menn voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í fyrradag vegna
spillingar máls í enska boltanum. Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, var einn
þeirra. Hann hefur lýst yfir sakleysi sínu og vandar lögreglu ekki kveðjurnar.
EKKI BENDA Á MIG Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, lýsti í gær yfir
sakleysi sínu í spillingarmálinu í enska boltanum og var að sama skapi ósáttur með
vinnubrögð lögreglu við rannsókn málsins. NORDICPHOTOS/GETTY
VAFASÖM FÉLAGASKIPTI
AÐ MATI STEVENS (17):
Bolton:
Ali Al-Habsi, Tal Ben Haim, Blessing
Kaku og Julio Correia.
Chelsea:
Didier Drogba, Petr Cech og Michael
Essien.
Middlesbrough:
Fabio Rochemback og Yakubu.
Newcastle:
Jean Alain Boumsong, Emre Beloz-
oglu, Amdy Faye og Albert Luque.
Portsmouth:
Collins Mbesuma, Benjani Mwaruw-
ari og Aliou Cisse.
*Ein félagaskipti voru ekki nafngreind
FÓTBOLTI Rafa Benitez, stjóri
Liverpool, vonast til þess að geta
slíðrað sverðin milli sín og
eigenda Liverpool við fyrsta
tækifæri. Undanfarið hafa í
fjölmiðlum flogið yfirlýsingar á
milli þeirra sem benda til þess að
um samstarfsörðugleika sé að
ræða. Eigendur Liverpool létu
hafa eftir sér að Benitez ætti að
einbeita sér að því að þjálfa liðið
og vera ekkert að hugsa um nýja
leikmenn, en Benitez kvað of
seint að ræða leikmannamál í lok
desember.
„Ég vonast til þess að geta
spjallað við eigendurna um
framtíðaráformin fyrir leik okkar
við Manchester United hinn 16.
desember næstkomandi. Ég veit
ekki hvort það gengur eftir en ég
mun reyna. Samband mitt við þá
var gott og nú þurfum við að
ræða um hvert vandamálið sé og
vinna úr því og halda áfram,“
sagði Benitez í viðtali við
blaðamenn eftir sigur Liverpool í
Meistaradeildinni í fyrradag. - óþ
Enska úrvalsdeildin:
Rafa Benitez
vill vopnahlé
FRIÐUR Rafa Benitez, stjóri Liverpool, vill
hitta eigendur liðsins og leysa úr þeim
ágreiningi sem hefur verið milli þeirra í
fjölmiðlum.
NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Cleveland Cavaliers
fékk að kynnast því hvernig er að
spila án LeBron James þegar liðið
mætti Detroit Pistons á útivelli.
James meiddist á fingri í
öðrum leikhluta eftir að hafa
skorað 15 stig og gefið 3 stoð-
sendingar á þeim 19 mínútum
sem hann spilaði.
James kom ekki aftur inn á og
Cleveland tapaði seinni hálfleik
með 29 stigum, 32-61, og leiknum
þar með 109-74.
„Sigur er sigur. Lebron er stór
hluti af þeirra liði en þeir hafa
engu að síður fimm leikmenn í
NBA-treyju inni á,“ sagði Richard
Hamilton, sem var stigahæstur
hjá Detroit með 18 stig.
James var með 31,7 stig, 8,5
stoðsendingar og 8,0 fráköst að
meðaltali fyrir leikinn. -óój
Cleveland í NBA-deildinni:
Liðið gat ekkert
án Lebron
TÝNDIR ÁN HANS LeBron James sat á
bekknum í seinni hálfleik.
NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdóttir
byrjar vel með TCU í 1. deild
bandaríska háskólaboltans en lið
hennar hefur unnið þrjá af fyrstu
sex leikjum sínum á tímabilinu.
Helena var með 10 fráköst, 8
stig og 4 stoðsendingar í öruggum
75-63 sigri á Fresno State í fyrri-
nótt en auk þess varði hún tvö skot
og stal tveimur boltum af mót herj-
um sínum. Foreldrar Helenu og
yngri bróðir hennar eru í heim-
sókn í Forth Worth og fengu að sjá
Helenu spila vel í sigurleik.
Helena hefur fengið að spila
28,2 mínútur að meðaltali í fyrstu
sex leikjum tímabilsins og er
aðeins önnur tveggja leikmanna
TCU sem hefur verið í byrjunar-
liðinu í öllum leikjunum.
Helena er efst hjá liðinu í frá-
köstum (7,0), stoðsendingum (3,0)
og vörðum skotum (0,83) og þá er
hún þriðji stigahæsti leikmaður-
inn, með 8,8 stig að meðaltali í
leik.
Helena hefur vakið sérstaka
athygli fyrir hversu vel hún hefur
passað upp á boltann en hún hefur
gefið 18 stoðsendingar en aðeins
tapað 8 boltum í þessum sex leikj-
um. - óój
Helena Sverrisdóttir spilar stórt hlutverk hjá TCU:
Efst í fráköstum og
stoðsendingum
ATKVÆÐAMIKIL Helena Sverrrisdóttir
vekur athygli með TCU.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu. UEFA, hefur sett Ars-
ene Wenger, knattspyrnustjóra
Arsenal, í eins leiks bann í Meist-
aradeildinni vegna hegðunar
hans í leiknum gegn Sevilla á
þriðjudag en þá var Wenger
sendur upp í stúku eftir rifrildi
við fjórða dómara leiksins.
Hann getur því ekki stýrt lið-
inu gegn Steaua Búkarest hinn
12. desember næstkomandi.
Þetta er í fyrsta skipti á ferlin-
um sem Wenger er dæmdur í
bann en hann hefur þrjá daga til
þess að áfrýja dómnum.
Arsenal verður að leggja
Steaua í lokaleik sínum í Meist-
aradeildinni og vonast til þess að
Sevilla vinni ekki Slavia Prag til
að fá toppsætið í riðlinum.
- hbg
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal:
Wenger settur í bannMagimix
- réttu tækin fyrir eldhúsið