Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
24. desember 2007 — 350. tölublað — 7. árgangur
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
Mánudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
40%
69%
VEÐRIÐ Í DAG
Bjargar jólunum
Siggi Hall sest síðastur
niður á aðfangadags-
kvöld.
FÓLK 66
Fæddur undir
heillastjörnu
Heimir Sindrason
tannlæknir á afmæli
á aðfangadag. Hann
hefur þó aldrei liðið
fyrir.
TÍMAMÓT 22
JÓL Landsmenn leggja mismikið
upp úr því að skreyta hús sín yfir
hátíðarnar og óhætt er að segja
að sumir gangi lengra en aðrir.
Húsbændur í helstu „jólahús-
um“ landsins taka sér frí í vinnu
til að setja upp ljósin sem
gjarnan er kveikt á allan sólar-
hringinn. „Þá skiptir máli að vera
með góð myrkratjöld,“ segir
Grétar Ólason á Týsvöllum í
Reykjanesbæ. - vig / sjá síðu 42
Sannkölluð jólahús:
Myrkratjöldin
mikilvæg
SKEMMTANIR Skemmtikraftarnir
Laddi og Björgvin Halldórsson
hafa samanlagt velt um 385
milljónum króna á rúmu einu ári
með geisladiskasölu sinni,
tónleikahaldi og leiksýningum.
Laddi hefur selt tæp sautján
þúsund eintök af plötum sínum
auk þess sem yfir fjörutíu
þúsund manns hafa séð leiksýn-
ingu hans Laddi 6-tugur. Björgvin
hefur selt plötur sínar í tæpum
tuttugu þúsund eintökum og
haldið sex tónleika í Laugardals-
höll fyrir níu þúsund manns. Þótt
þeir fái ekki nema hluta af
veltunni í eigin vasa ættu þeir að
eiga fyrir salti í jólagrautinn og
rúmlega það.
Sjá síðu 66 / -fb
Laddi og Björgvin vinsælastir:
Velta 385 millj-
ónum á árinu
Ég veit vel að Hann heyrir
SIGURBJÖRN EINARSSON BISKUP SEGIR AÐ SANNLEIKUR JÓLA-
BOÐSKAPARINS SÉ ENN ÓHAGGANLEGUR.
26
Gleðileg jól!
Topp tíu
listinn
klár
Nú er ljóst
hvaða tíu íþróttamenn
urðu efstir í kjöri
Íþróttamanns ársins
2007.
ÍÞRÓTTIR 58
Boltaleikur fyrir Maríu
FALLEG JÓLASAGA FYRIR UNGA SEM ALDNA EFTIR RITHÖFUND-
INN PAULO COELHO
30
HJÁLPARSTARF „Fólki þykir afskaplega gott að geta
gefið jólagjöf sem gefur af sér,“ segir Jónas Þórir
Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkj-
unnar. Tæpar fimm milljónir króna hafa safnast á
sölu sérstakra gjafabréfa fyrir jólin, sem nýtast
bágstöddum meðal annars í Úganda og á Indlandi.
„Gjafabréf upp á geitur eru mjög vinsæl þessi jól.
Fólk er líka að gefa vatn, grænmetisgarða og
skóglendi. Svo er hægt að kaupa gjafabréf upp á að
barn verði leyst úr skuldaánauð,“ segir Jónas.
Auk hagnaðs af sölu gjafabréfa hafa safnast um
sextán milljónir í hefðbundinni söfnun Hjálpar-
starfsins, sem stendur fram í janúar. En Jónas er
sérstaklega ánægður með gjafabréfin, sem fólk
getur meðal annars keypt á vefnum www.gjofsem-
gefur.is.
„Fólk getur keypt kamra, uxa, hjól, saumavélar
og hvað sem það kann að vera,“ segir Jónas. „Hér
koma heilu fjölskyldurnar að kaupa gjafabréf,
annað hvort til að láta fylgja með jólapakkanum eða
til að gefa ömmu og afa eða einhverjum sem á allt.“
- sgj
Tæpar fimm milljónir hafa safnast við sölu sérstakra gjafabréfa Hjálparstarfsins:
Geitur vinsælastar fyrir jólin
STREKKINGUR VESTAN TIL
- Í dag verður sunnan strekkingur
vestan til, annars hægari. Snjó- eða
slydduél sunnan til og vestan en
bjart með köflum norðanlands og
austan. Frostlaust með ströndum
sunnan og vestan til, annars frost.
VEÐUR 4 F
R
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var settur út úr byrjunarliði
Barcelona fyrir leikinn á móti
Real Madrid og fékk ekkert að
koma við sögu í risaleik spænska
boltans í gærkvöldi.
Barcelona tapaði leiknum 0-1 á
heimavelli og er nú sjö stigum á
eftir erkifjendum sínum frá
Madríd. - óój / Sjá íþróttir bls. 60
El Clásico á Spáni í gærkvöldi:
Eiður Smári sat
á bekknum