Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 35
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Linda Bachmann Ívarsdóttir er þriggja ára dugleg dama sem segist vera stór og þykir Grýla fyndin en Leppalúði hræðilegur. Allt er þá þrennt er og nú er Linda að fara að upplifa sín þriðju jól en hún varð þriggja ára í október. Við ætluðum að fá hana til að spjalla aðeins um jólin við okkur en hún er ekkert sérstaklega áhugasöm um það til að byrja með og sýnir nýju Barbídúkkuna sína. Henni er þó Grýla ofarlega í huga þar sem hún er nýbúin að heimsækja leikskólann. „Grýla sagði að ég væri með kind á húfunni minni. Hún burstar ekki tennurnar, bara ég. Svo var hún með bólu á nefinu með hári og öskraði alltaf hátt,“ segir Linda og grettir sig. „Jólasveinarnir voru bara að leika sér. Þeir eiga heima í fjöllunum langt í burtu,“ útskýrir Linda og litar með litunum sem Stúfur gaf henni í skóinn. „Jólasveinninn kann ekki að fara í strætó en við fórum einu sinni í strætó að gefa önd- unum brauð,“ segir Linda brosandi og bætir við: „En öndin fær ekki Barbí í jólagjöf og ekki strákurinn. Hann vill bara Súpermann,“ og þarna á Linda við ljósmyndarann sem smellti af henni þessari fínu mynd fyrir viðtalið. Auk þess fræðir hún okkur um að Jesús eigi heima í kirkjunni, jólasveinninn hafi fæðst á jólunum og að englarnir geri ekki neitt. En hver er uppáhalds jólasveinninn? „Ég veit það ekki. Þeir eru bara allir góðir.“ Þegar Linda er spurð hvort hún hafi fengið mikið í skóinn segir hún „Júbb!“. Það svar kemur nokkrum sinnum aftur ásamt hinu góða svari „neibb“. Blaðamanni þykir það dálítið fyndið en þá biður litla daman vinsamlega um að ekki sé hlegið að sér, enda háalvarlegt viðtal hér á ferð. Linda segist ekki borða neitt á jólunum en það þykir okkur ólíklegt og á endanum viðurkennir hún að sér þyki gott að fá nammi. „Piparkökur eru líka góðar en ég baka þær með ömmu. Ég kann líka að elda jólakjöt,“ segir Linda og ljóst er að hér er fram- takssöm lítil dama á ferð. hrefna@frettabladid.is Júbb, jebb og neibb Linda veltir fyrir sér jólunum dreymin á svip. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Uppruni kerta er óljós en vísbendingar eru um að býflugnavax hafi verið notað í Egyptalandi og Krít allt aftur til um 3000 fyrir Krist. Býflugnavaxið varð að flytja inn frá útlöndum og var það mjög dýrt en ein mörk af vaxi kostaði sama og þrjár lambs- gærur. Fram undan eru jólalegar stundir í Hallgrímskirkju. Í dag, aðfangadag, verður aftansöngur klukkan 18.00 og jólaguðsþjónusta klukkan 23.30. Á morgun, jóladag, verður hátíðar- guðsþjónusta kl. 14.00 og á annan í jólum verður fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 14.00. Jólasveinn nokkur sem lengi hefur haldið til í verslunarmiðstöð í Edinborg hefur ákveðið að leggja sitt lóð á vogar skálarnar í baráttunni gegn offitu barna. Hann neitar að bera púða innanklæða til að virðast feitari og segir börnum sem spyrja að jólasveinninn hafi einfaldlega farið í megrun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.