Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 44
40 24. desember 2007 MÁNUDAGUR Jólahald hjá gæludýrunum Hreindýralifur, túnfiskur og hunangsstangir eru dæmi um hvað gæludýr fá í matinn á aðfangadagskvöld þegar gæludýraeigend- urnir gæða sér á hamborgarhrygg, kalkún, rjúpum og fleiru. Dýrin þola þó ekki allt og árlega skapast annir á dýraspítölum milli jóla og nýárs vegna magaveikra dýra. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir ræddi við dýraeigendur og dýralækni um jólahald dýra. Hundurinn Funi, sem verður þriggja ára í mars, heldur nú fyrstu jólin sín með nýjum eigendum. Þar sem Funi er alltaf á sérstöku fæði vegna ofnæmis fær hann einnig sér- stakan jólamat. „Ég eldaði fyrir hann hreindýralifur sem hann fær að gæða sér á ásamt þurrmatnum meðan við borðum jólamatinn klukkan sex á aðfangadagskvöld,“ segir eigandi hans, Inger Anna Lena Þórðardóttir Ericson. Funi mun einnig gæða sér á sérstöku jólaofnæmiskexi sem Inger keypti í Bandaríkjunum og flutti með sér í handfarangri til að það bærist heilt yfir Atlantshafið. Eins og aðrir fjölskyldumeðlimir fær Funi innpakkaðar jólagjafir sem hann fær að rífa upp sjálfur. „Ég keypti handa honum bæði hundaól og hálsól í felulitum og sérstakt ofnæmisnagbein. Svo fær hann líka nýtt bæli og hundanámskeið í jólagjöf.“ Inger segir Funa ekki fá nein sérstök jólaföt. „Ég er ekki mikið fyrir dýraklæðnað. Hann verður í mesta lagi með jólasveinahúfu ef hann vill vera með hana.“ Kötturinn Tommy fær alltaf nóg að borða um jólin og fær sérstakan rétt á sama tíma og aðrir fjölskyldumeðlimir fá jólamatinn á aðfangadagskvöld að sögn eigandans, Magnúsar Sævars Magnússonar. „Uppáhaldsmaturinn hennar er túnfiskur og gæðir hún sér á honum meðan við gæðum okkur á jólamatnum. Það má segja að tún- fiskur sé rjúpur kattanna og fær Tommy hann reglulega þessa daga. Síðan er alltaf passað að hún hafi nóg að borða og þurfi aldrei að sníkja yfir jólin.“ Þegar aðrir í fjölskyldunni klæða sig upp í jólafötin fær Tommy sérstakan jólabúning. Í stað ólarinnar sem hún ber venjulega fær hún rauða jólaslaufu sem hún hefur yfir jólin. Tommy, sem er tveggja ára gömul, fær iðulega jólagjafir og þá ekki bara frá eigendum sínum að sögn Magnúsar. „Móðir mín á hund og um næstsíðustu jól fékk hún jólapakka frá honum sem vakti mikla lukku. Við höfum líka gefið henni jólagjafir sem eru yfirleitt litlar gervimýs eða litlir boltar sem hún hleypur með út um allt. Og svo vill þetta týnast undir sófanum og kemur síðan í ljós seinna í hreingerningum við gífurlega gleði hennar.“ Kanínan Bowie fær svipaðan mat um jólin og hún fær allan ársins hring þar sem litlu er við það að bæta, segir eigandi Bowie, Valgerður Valgeirsdóttir. Valgerður eignaðist Bowie, sem er nefndur eftir söngvaranum David Bowie vegna þess að hann er með hálft auga brúnt og og hálft blátt, fyrir einu og hálfu ári. Eru þetta því önnur jól þeirra saman. „Um jólin borðar hann eins og venjulega hey, þurrfóður, sætar kartöflur, ferskt grænmeti á borð við brokkólí, gulrætur og sykurbaunir. Ég hef reyndar gert vel við hann með því að gefa honum hunangsstangir. Þannig fær hann aðeins meira sælgæti yfir jólin. En besta jólagjöfin væri ef hann gæti fengið ferskt gras og fíflablöð eins og hann borðar á sumrin, það er í uppáhaldi ásamt sætum kartöflum.“ Valgerður segir suma kanínueigendur gefa kanínum sínum dót til að leika sér með en það eigi ekki upp á pallborðið hjá Bowie. „Honum finnst ekkert gaman að henda boltum til og frá. En ég mun mögulega bara gefa honum hunangsdropa sem eru nammi eða einhvers konar stangir með kornum.“ Bowie fær engin jólaföt enda tíðkast það ekki að klæða kanínur í föt að sögn Valgerðar. „Ég veit allavega ekki til þess að svo sé og vona eiginlega ekki.“ Valgerður á einnig froska en segir ansi erfitt að ætla að reyna að gera jólin hjá þeim eitthvað hátíðleg. „Það er helst að þeir fái rækjur úr rækjubrauðtertunni hennar mömmu.“ Annatími er hjá dýralæknum milli jóla og nýárs þegar gæludýraeigendur koma með dýr sem hafa fengið í magann eftir að borða nýstárlegan jólamat að sögn Ólafar Loftsdóttur, dýralæknis á Dýraspítalanum í Víðidal. „Við biðjum fólk að vera ekki of gott við dýrin sín þar sem það fer illa í dýrin að fá mat sem þau eru ekki vön. Það þarf að halda sig frá reyktum og mikið unnum mat. Svínaham- borgarhryggurinn og hangikjötið er dæmi um reyktan mat. Við biðjum fólk því um að sýna aðgát hvað þetta varðar.“ Ólöf bendir á að vilji fólk gera sérstaklega vel við dýrin sín í mat umfram venjubundið fæði geti það gefið þeim kjúklingakjöt eða einhvers konar ókryddaðan mat. „Margir sem eiga ketti gefa þeim til dæmis rækjur á jólum. Fiskur er líka fínn. Fólk verður bara að hafa það í huga að ef dýr fá skyndilega eitthvað sem þau eru ekki vön fá þau í magann.“ Ólöf segir mikið að gera á dýraspítalanum milli jóla og nýárs þegar fólk komi með gæludýr sem eru með uppköst og niðurgang eftir jóla- mat sem þau hafa ekki þolað. „Ég man líka eftir einu tilviki í fljótu bragði þar sem komið var með drukkinn kött eftir að honum var gefin koníaksbætt fiskisúpa. Þannig að fólk ætti að sleppa því að gefa dýrum sínum þann rétt.“ Magaveiki er þó ekki það eina sem hrjáir dýr sem koma veik inn á milli jóla og nýárs. „Við höfum verið að vara sérstaklega við því að köttum þykir mjög gaman að leika sér að svokölluðum krulluböndum sem eru oft sett utan um jólapakkana. Fólk þarf að passa að þeir geri það ekki þar sem við höfum nokkrum sinnum þurft að gera aðgerðir á köttum sem hafa gleypt svona krullubönd og sækja þau í þarmana. Þangað komin þræðast krullubönd- in upp á þarmana og verða eins og hnífar þarna inni. Þannig að þó að krulluböndin séu spennandi þarf að passa að kettir séu ekki að leika sér með þau. Þeir eru fljótir að byrja að tyggja þau og ef þau komast ofan í maga er voðinn vís.“ Annað sem Ólöf varar sérstaklega við er að hundum sé gefið súkkulaði. „Súkkulaði, og sér- staklega dökkt súkkulaði, er eitrað fyrir hunda og geta þeir orðið fárveikir af neyslu þess.“ Hvað jólagjafir varðar bendir Ólöf á að flestar dýraverslanir selji jólasokka með alls konar gæludýranammi. Það sé sniðug gjöf handa dýrunum því það sé eitthvað sem þau eiga að þola nema við sérstakar aðstæður, til dæmis ef dýrin eru með ofnæmi. Ólöf hvetur gæludýraeigendur til að verja tíma með dýrunum sínum um jólin þar sem góður tími gefst til þess. „Fólk ætti bara að nýta fríið sem tilheyrir jólunum til að fara út að ganga með hundunum og hrista af sér jólakúluna. Jólin ættu meira að snúast um að verja tíma með þeim heldur en að gefa þeim of mikinn jólamat.“ Ekki vera of góð við dýrin Jólahátíðin gengur nú í garð með tilheyrandi matarveislum og gjafaflóði. Margir gæludýraeig- endur vilja gera vel við dýrin sín yfir jólin og færa þeim sérstakan mat og jólagjafir og klæða þau jafnvel upp á. Dýralæknar vara þó eindregið við því að fólk gangi of langt í velgjörðinni þar sem mörg dýr þoli illa skyndi- legar breytingar á mataræði. Tommy Funi Bowie
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.