Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Gleðilega hátí ð H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 7 – 2 1 3 6 Í dag er mánudagurinn 24. desember, 358. dagur ársins. 11.22 13.27 15.32 11.38 13.12 14.45 Hallóhalló, öllsömul þarna úti í geimnum og fyrir handan, uppi og niðri og allt um kring! Við ætlum að halda jólin að þessu sinni á smáeyju sem heitir Ísland og er rétt fyrir neðan það sem eftir er af Norðurheimskautinu. Hér er lítið af ferðamönnum á þessum árs- tíma og engin hætta á að barnshaf- andi konum sé vísað til sængur í gripahúsum ef þær eru með Mast- er eða Visa. Ekki samt svo að skilja að frúin sé ólétt :-). HÉRNA Á ÍSLANDI væri ábyggilega margt að sjá ef það væri ekki þreifandi myrkur mest- allan sólarhringinn á þessum árs- tíma. Ljós punktur í öllum sortan- um er þó sterkur lampi sem varpar ljósi út í geiminn. Út af honum gengur ljóssúla sem sjá má langt að og táknar ósk um frið og ljós í veröld átaka og myrkurs. Það voru þó ekki Íslendingar sem áttu þessa hugmynd heldur var það kona frá Japans-eyjum sem fattaði að hér er ódýrt rafmagn sem Íslendingar nota annars mestan part til að framleiða mengun. ÍSLENDINGAR eru upp til hópa sómafólk, friðsamir, óáleitnir og duglegir að bjarga sér. Samt eru gikkir innan um og saman við sem hugsa ekkert um hvernig þeir geti unnið þjóð sinni gagn. Þeir pæla eingöngu í því hvernig hægt sé að komast til valda, græða á náung- anum og ota sínum tota og ætt- menna sinna og jábræðra. Manni finnst auðvitað skrýtið að svoleið- is pakk skuli ekki vera gert brott- rækt úr þessari norðlægu Paradís en Íslendingar sýna frekjuhund- um mikið langlundargeð sem ber vott um gott hjartalag eða langvar- andi skort á B6, B12 og D-fjörefn- um. AUK ÍSLENDINGA býr hérna mýgrútur af huldufólki, draugum, tröllum og jólaveinum. Flest af því liði forðast sem mest að eiga samskipti við mannfólkið nema einstöku huldumenn sem vinna svart við lækningastörf og fáeinir draugar sem eru eftirsóttir uppi- standarar á miðilsfundum. Matar- æðið hérna er fremur einhæft, kjöt eða fiskur, pitsur og hamborg- arar. Eva er soldið skúffuð yfir því hvað ávextirnir hérna eru dýrir og lélegir, einkum eplin, en það kann að stafa af því að Íslendingar eru yngsta þjóð í Evrópu og hafa ekki enn komist almennilega upp á lag með að láta skilningstréð bera ávöxt sér til matar. Bestu óskir um gleðileg jól! Ykkar Eva, Adam og börnin Jólakort frá Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.