Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.12.2007, Blaðsíða 16
16 24. desember 2007 MÁNUDAGUR M ikil vegferð stendur fyrir dyrum – fólks- flutningar úr sveitum í borg- ir eru meiri en nokkru sinni fyrr. Við erum á vendipunkti. Í júní 2007 spáðu Sameinuðu þjóðirnar að á næsta ári munu fleiri búa í borgum – 3,3 milljarðar – en í dreifbýli í fyrsta sinn í sögunni. Í Kína einu saman flytja átján milljónir í þéttbýlið á ári hverju. Við erum á barmi þess að verða borgartegund. Hvers konar heimur verður það? Hvern- ig breytir það okkur? Talið er að fimm milljarðar jarð- arbúa muni búa í borgum árið 2030 og að 81 prósent borgarbúa heims búi í þróunarlöndum. Fólksflutn- ingar og fólksfjölgun verður til þess að fjöldi borgarbúa tvöfald- ast í Afríku og Asíu frá 2000 til 2030. Og það er himinn og haf á milli lífskjara í borg og sveit. Alþjóðabankinn telur að 75 pró- sent fátækra í þróunarlöndum búi í dreifbýli. Íbúar í dreifbýli eru hins vegar aðeins 58 prósent íbúa þróunarlanda. Gluggi að heimi hinna ríku Fyrr á öldum kýldu hinir ríku vömbina í hallarsölum fjarri sveit- unum og lifðu lífi sem var baðað dýrðlegum ljóma og utan seilingar almúgans. Nú hefur vefurinn og sjónvarpið opnað glugga að heimi hinna ríku. Meðan nefið á þorpsbú- um er límt við skjáinn læðist sú til- finning að þeim að þeir geti líka eignast tískuföt og hraðskreiða bíla ef þeir aðeins flytja. Hlýnun jarðar hnykkir enn frekar á þessari þróun; flóttinn úr sveitum hrjáðum af þurrki og flóðum gæti breyst í ör tröð. Fólksflutningar þessir eiga eftir að valda feikimiklum pólitískum vandamálum í mörgum löndum þegar þau reyna að aðlagast breytt- um aðstæðum. Í Kína þarf sveita- fólk sérstakt leyfi frá yfirvöldum til að flytja í þéttbýlið. Slík leyfi eru af skornum skammti. Í borgum á borð við Sjanghæ, Peking og Shenzen er því fjöldinn allur af ólöglegum innflytjendum, sem hír- ast í skugga nýrisinna stórhýsa. Ef yfirvöld um allan heim ákveða að vísa ólöglegum innflytjendum úr landi er mikil hætta á félagslegum glundroða. Víða um Evrópu sækja hægri öfgaflokkar í sig veðrið. Þeir þrífast aðallega á útlendingaandúð, sérstaklega í garð arabískra, afr- ískra og austur-evrópskra innflytj- enda, sem flestir koma frá fátæk- um sveitahéruðum heimalands síns. Eitt sinn sagði arkitekt í Múmbaí mér að það væri vita gagnslaust að reyna að skipuleggja borgina. Væri borgin gerð vistlegri með því að fjölga vegum, lestarteinum og húsakosti laðaði það aðeins fleira fólk að úr nærliggjandi sveitum sem áður en langt um liði myndi fylla lestirnar, vegina og húsin. Eina varanlega lausnin er að gera það að fýsilegum kosti fyrir bænd- ur að vera um kyrrt á býlum sínum. Að leysa vandamál dreifbýlisins hefur þau ánægjulegu aukaáhrif að leysa vandamál borganna. Og vandamálin verða ekki leyst fyrr en landbúnaður verður hag- kvæmur í þróunarlöndum; það ger- ist ekki nema með auknu jafnræði í tollum og í alþjóðlegri verslun með landbúnaðarvörur. Árið 2005 styrktu OECD-ríkin bændur um ríflega sautján þúsund milljarða króna. Frá því á 9. ára- tugnum hafa styrkirnir hækkað um tæplega tvö þúsund milljarða króna, þrátt fyrir mótmæli þróun- arríkja. Þegar heimsmarkaðsverð á ind- verskri og afrískri bómull er hærra en á bandarískri bómull – því bandarísk yfirvöld styrkja bómull- arframleiðendur um 130 milljarða króna – segja indverskir og afrískir bændur sonum sínum að flytja í borgina, finna sér vinnu (oft við ömurlegar aðstæður) og senda fjöl- skyldunni pening heim. Árið 2005 styttu sautján þúsund bændur sér aldur á Indlandi, að sögn stjórn- valda þar í landi. Margir buguðust undan landbúnaðarlánum, sem sífellt fleiri bændur þurfa að taka því verð á erfðabreyttum fræjum og vinnuvélum er orðið hærra en þeir ráða við. Hví flytur fólk? Sama hvar við búum eigum við öll mikið undir því að koma íbúum risaborga á borð við Múmbaí til hjálpar. Örbirgðin í fátækrahverf- um þróunarlanda getur haft bein áhrif á efnahagsleg og pólitísk afdrif í New York og París. Inn- flytjendurnir sem streyma til þess- ara borga flytja með sér menningu, metnað og togstreitu að heiman. Það er jafn mikilvægt fyrir London að skilja Múmbaí og það er fyrir Múmbaí að skilja London, þótt ekki sé nema af þeirri ástæðu einni að næsta kynslóð Lundúnabúa fæðist í Múmbaí. Og miðað við hinn ótrú- lega hagvöxt í Indlandi – sem var næstum tíu prósent í ár – er jafn líklegt að næsta kynslóð Múmbaí- búa fæðist í London. Hví skyldi nokkur vilja búa í risaborgum þróunarlanda? Hver dagur er eins og árás á skilningar- vitin. Útblásturinn er svo mikill að andrúmsloftið sýður eins og súpu- pottur og göturnar troðnar fólki. Þótt maður búi í hafnarborg kemst maður ekki að sjónum nema kannski á skítuga strönd í klukku- stund á sunnudagskvöldi. Ekki batnar ástandið á nóttunni, þegar glæpagengin fara á stjá og moskít- ó flugurnar, sem bera með sér mal- aríu úr mýrunum. Í þorpinu átti maður þó ef til vill steinhús, með tveimur mangótrjám í garðinum og hafði útsýni yfir fjöllin. Hví að yfir- gefa það fyrir borgina? Því dag einn getur elsti sonur manns keypt litla kytru í jaðri borg- arinnar. Sá yngri nær kannski enn lengra, jafnvel til Evrópu eða Ameríku. Óþægindin sem maður leggur á sig eru fjárfesting. Rétt eins og í maurabúi eru íbúar fátækrahverfanna reiðubúnir til að fórna eigin þægindum í þágu fjöl- skyldunnar. Elsti sonurinn vinnur kannski og sér fyrir hinum og fyll- ist djúpri gleði yfir að bróðursonur hans hefur áhuga á tölvum og fer líklega til Bandaríkjanna í nám. Borgir eru knúnar áfram af ósýni- legu stoðneti. Í fátækrahverfunum eru engir einstaklingar, aðeins gangvirkið. Kostir borgarvæðingar Þrátt fyrir fylgifiska á borð við eyðingu skóga og mengun hefur borgarvæðing heimsins sína kosti. Þegar fólk flytur í borgina hækka tekjur á mann í kjölfarið. Þeir sem flytja á milli landa eru staðráðnir í að komast áfram; þeir hafa meira að vinna og tapa en innfæddir. Margt bendir til þess að fólks- flutningar milli landa séu eitt áhrifaríkasta vopnið í baráttunni gegn fátækt í heiminum. Talið er að þær 150 milljónir innflytjenda sem unnu í ríkum löndum árið 2006 hafi sent nítján þúsund milljarða króna heim. Það er hærri upphæð en samanlagðir erlendir fjárstyrkir og fjárfest- ingar auðugu ríkjanna í þróunar- löndum sama ár. Í sumum löndum renna tveir þriðju hlutar þess fjár sem er sendur heim til sveitahér- aðanna – frábært dæmi um hvern- ig hinir fátæku hjálpa sér sjálfir. Sá sem hefur vaxið úr grasi í þorpi þar sem kvöldskemmtunin felst yfirleitt í alþýðuleikhúsi eða kirkjusamkomum lætur freistast af glaumi borgarinnar, rétt eins og New York-borg freistar unglinga í smábæjum Bandaríkjanna. Leigu- bílstjóri í Múmbaí sagði mér eitt sinn hvers vegna hann byggi í borginni. „Lata Mangeshkar fékk far hjá mér! Hún sat þar sem þú situr!“ Þegar hann sagði fólkinu í þorpinu hans að Lata Mangeshkar, „næturgalinn í Bollywood“, hafði heiðrað hann og litlu Fiat-bifreið- ina hans með nærveru sinni, hélt það að hann væri að skrökva. Dás- amleg augnablik á borð við þetta hvetja ófáa farandverkamenn til dáða. Gæfunnar freistað Það er því ekki að ástæðulausu sem fólk vill flytja til borga á borð við Múmbaí, þrátt fyrir öll vanda- málin sem að þeim steðja. Maður úr fátækrahverfi, sem hafði misst bróður sinn í skotárás og bjó í kofa án rennandi vatns og klósetts, sagði eitt sinn við mig. „Múmbaí er fugl úr gulli.“ Gylltur lævirki: Gríptu hann ef þú getur. Hann er snar í snúningum og elt- ingaleikurinn verður erfiður en festi maður hönd á honum er gæfan vís. Þetta er ástæðan fyrir því að bændur kveðja víðátturnar og trén og halda á vit borgarinnar með öllum hennar glæpum, ólofti og mengaða vatni. Í borginni skipt- ir stétt manns og uppruni litlu máli, þar getur kona setið ein á veitingahúsi án þess að verða fyrir áreitni, þar sem fólk ræður hverj- um það giftist. Í hugum ungra þorpsbúa í Kína, Indlandi og Afr- íku snúast fyrirheit borgarinnar ekki aðeins um peninga. Þau snú- ast um frelsi. Borgríkið: Veröld sem verður Á næsta ári mun meira en helmingur jarðarbúa búa í þéttbýli. Suketu Mehta útskýrir hvers vegna fátækrahverfin í heimaborg hans Múmbaí og öðrum risaborgum eru vonarglæta fyrir fólk sem streymir þangað úr sveitunum. Hann segir að ef styrkir til bænda í þróuðum ríkjum væru afnumdir myndi það hvetja ungt fólk í þróunarlöndum til að snúa vörn í sókn í sveitunum. REYNT AÐ TROÐAST Í GEGN UM MANNÞRÖNGINA Þrátt fyrir þrengslin kýs fólk að búa í borgum. Þegar fólk flytur í borgina hækka tekjur á mann í kjölfarið. MYND/RICHARD PERRY MÚMBAÍ Í INDLANDI Í þessari stóru borg er munurinn á milli fátækrahverfanna og betur megandi hverfa afar áberandi. Hví skyldi nokkur vilja búa í risaborgum þróunarlanda? Hver dagur er eins og árás á skilningarvitin. Útblásturinn er svo mikill að andrúmsloftið sýður eins og súpupottur og göturnar troðnar fólki. ERLENDIR VENDIPUNKTAR 2007 Suketu Mehta we höfundur bókarinnar „Maximum City: Bombay Lost and Found“ er fæddur á Indlandi, ólst þar upp og í New York, þar sem hann býr nú. Hann skrifar meðal annars um fólksflutninga, innflytjendur og fjölmenningu. Hann hefur skrifað í Time, National Geographic, Granta og fleiri rit. Erlendir vendipunktar 2007 Líkt og fyrri ár birtir Fréttablaðið greinar eftir erlenda höfunda, í samstarfi við New York Times Syndicate, um markverða atburði þessa árs. Allar greinarnar eiga það sameiginlegt að fjalla um vendipunkta, nýja þróun sem á eftir að hafa veruleg áhrif á alþjóðasamfélagið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.