Fréttablaðið - 24.12.2007, Síða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Gleðilega hátí
ð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
7
–
2
1
3
6
Í dag er mánudagurinn 24.
desember, 358. dagur ársins.
11.22 13.27 15.32
11.38 13.12 14.45
Hallóhalló, öllsömul þarna úti í geimnum og fyrir handan,
uppi og niðri og allt um kring! Við
ætlum að halda jólin að þessu sinni
á smáeyju sem heitir Ísland og er
rétt fyrir neðan það sem eftir er af
Norðurheimskautinu. Hér er lítið
af ferðamönnum á þessum árs-
tíma og engin hætta á að barnshaf-
andi konum sé vísað til sængur í
gripahúsum ef þær eru með Mast-
er eða Visa. Ekki samt svo að skilja
að frúin sé ólétt :-).
HÉRNA Á ÍSLANDI væri
ábyggilega margt að sjá ef það
væri ekki þreifandi myrkur mest-
allan sólarhringinn á þessum árs-
tíma. Ljós punktur í öllum sortan-
um er þó sterkur lampi sem varpar
ljósi út í geiminn. Út af honum
gengur ljóssúla sem sjá má langt
að og táknar ósk um frið og ljós í
veröld átaka og myrkurs. Það voru
þó ekki Íslendingar sem áttu þessa
hugmynd heldur var það kona frá
Japans-eyjum sem fattaði að hér
er ódýrt rafmagn sem Íslendingar
nota annars mestan part til að
framleiða mengun.
ÍSLENDINGAR eru upp til hópa
sómafólk, friðsamir, óáleitnir og
duglegir að bjarga sér. Samt eru
gikkir innan um og saman við sem
hugsa ekkert um hvernig þeir geti
unnið þjóð sinni gagn. Þeir pæla
eingöngu í því hvernig hægt sé að
komast til valda, græða á náung-
anum og ota sínum tota og ætt-
menna sinna og jábræðra. Manni
finnst auðvitað skrýtið að svoleið-
is pakk skuli ekki vera gert brott-
rækt úr þessari norðlægu Paradís
en Íslendingar sýna frekjuhund-
um mikið langlundargeð sem ber
vott um gott hjartalag eða langvar-
andi skort á B6, B12 og D-fjörefn-
um.
AUK ÍSLENDINGA býr hérna
mýgrútur af huldufólki, draugum,
tröllum og jólaveinum. Flest af
því liði forðast sem mest að eiga
samskipti við mannfólkið nema
einstöku huldumenn sem vinna
svart við lækningastörf og fáeinir
draugar sem eru eftirsóttir uppi-
standarar á miðilsfundum. Matar-
æðið hérna er fremur einhæft,
kjöt eða fiskur, pitsur og hamborg-
arar. Eva er soldið skúffuð yfir því
hvað ávextirnir hérna eru dýrir og
lélegir, einkum eplin, en það kann
að stafa af því að Íslendingar eru
yngsta þjóð í Evrópu og hafa ekki
enn komist almennilega upp á lag
með að láta skilningstréð bera
ávöxt sér til matar.
Bestu óskir um gleðileg jól!
Ykkar Eva, Adam og börnin
Jólakort frá
Íslandi