Fréttablaðið - 24.12.2007, Síða 22
22 24. desember 2007 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Heimir Sindrason, tannlæknir, fædd-
ist 24. desember árið 1944.
Hann kveðst aðspurður aldrei hafa
liðið fyrir að eiga afmæli á aðfanga-
dag. „Ég hef bara gaman af því þegar
fólk segir: „Áttu afmæli á jólunum?“
þegar það sér kennitöluna mína. Sér-
staklega þótti mér skemmtilegt að
vera spurður um afmælisdaginn
þegar ég var lítill. Aðfangadagurinn
er sérstakur og enginn annar afmæl-
isdagur, nema kannski 17. júní, vekur
jafn mikla athygli. Mér þykir mjög
vænt um þennan dag. En það verður
varla sagt að ég hafi fengið mikla trú-
rækni í vöggugjöf þó ég hafi fæðst á
aðfangadag. Samt má alls ekki túlka
orð mín svo að ég vilji berjast móti
kristninni.“
Kafnaði ekki afmælishaldið í jóla-
haldinu þegar þú varst lítill?
„Jú, biddu fyrir þér, en mér var
alveg sama. Ég er svo mikið jólabarn.
Svo var ég svo heppinn að Einar móð-
urbróðir minn átti afmæli 25. desem-
ber og hann vissi hvernig var að
eiga afmæli á jólum. Ég var því ör-
uggur um að fá eina afmælisgjöf frá
mömmu og pabba og aðra frá Einari.
Þau sáu til þess að ég gleymdist ekki
og það dugði mér. Ég fékk alltaf tvo
pakka umfram það sem hinir strák-
arnir fengu.“
En hefur þú getað haldið upp á af-
mælið þitt sjálfur?
„Nei, nei. Ég gerði það til gamans
þegar fimmtugsafmælið nálgaðist að
senda boðskort til vinafólks og bjóða í
afmælisveislu milli fimm og sjö á að-
fangadag. Tók samt fram neðanmáls
að þetta væri djók. En mamma hafði
hálfgerðar áhyggjur af því á sínum
tíma að ég fengi aldrei að halda upp
á afmælið mitt þannig að hún ákvað
einu sinni að slá því saman við af-
mæli Einars bróður míns sem er 24.
mars. Ég man enn eftir þeim degi því
það var þrumuský yfir Einari. Ég var
ánægður og kátur en ekki hann og
mamma reyndi þetta bara einu sinni.
Enda þurfti hún ekki að bæta mér
neitt upp.“
En veistu eitthvað um aðstæðurnar
þegar fæðingu þína bar að?
„Fjölskyldan bjó þá í kjallara-
íbúð á Bollagötunni og samkvæmt
upplýsingum frá móður minni voru
hún og föðuramma mín að spóka sig
á Laugaveginum á Þorláksmessu
þegar mamma fór að fá verki. Hún
sagði ömmu frá þeim þegar þær voru
komnar niður á Lækjartorg og þær
drifu sig í strætó vestur á Gríms-
staðaholt til móðurömmu minnar.
Ég fæddist svo á fæðingardeildinni
undir morgun á aðfangadegi. Ég geri
ráð fyrir að mamma hafi legið inni í
að minnsta kosti viku. Það var siður
þá. Ég hef spurt hana hvort ég hafi
ekki eyðilagt fyrir henni jólin en hún
þvertekur fyrir það. Mér skilst það
hafi verið dekrað við hana á spítal-
anum og hún minnist þess að yfir-
læknir deildarinnar hafi gengið um í
spari fötunum á aðfangadagskvöld og
óskað öllum gleðilegra jóla.
Mér finnst ég hafa fæðst undir
heillastjörnu. Hef verið svo lánssam-
ur í lífinu og aftur og aftur tekið réttu
beygjuna án þess að hafa hugmynd
um það þá. Þetta hugsa ég oft um á
jólum og er þakklátur fyrir.“
gun@frettabladid.is
HEIMIR SINDRASON TANNLÆKNIR: Á AFMÆLI Á AÐFANGADAG
Fæddur undir heillastjörnu
JÓLABARNIÐ HEIMIR Bauð í afmælisveislu milli fimm og sjö á aðfangadag - en bara í djóki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI.
MERKISATBURÐIR
1812 Stríði Breta og Bandaríkja-
manna lýkur með friðar-
samningi sem gerður var í
Belgíu.
1871 Óperan Aida eftir Giu-
seppe Verdi er frumsýnd í
Kaíró í Egyptalandi í tilefni
af opnun Súesskurðarins.
1893 Henry Ford lýkur við smíði
fyrstu bensínvélar sinnar.
Hann og eiginkonan prófa
hana í eldhúsinu þennan
aðfangadag.
1920 Óperusöngvarinn Enrico
Caruso syngur í síðasta
sinn opinberlega í Metr-
opolitan óperunni í New
York.
1934 Jólakveðjur eru lesnar í
fyrsta sinn í Ríkisútvarp-
inu, klukkan 20.30.
Á aðfangadag árið 1956 komu 52 flóttamenn
til Íslands frá Ungverjalandi. Þeir voru af báðum
kynjum og aðeins sjö yfir þrítugu. Fimm hjón
voru í hópnum, þar af
ein með tvö ung börn.
Fyrsti áfangastaður
flóttafólksins var Mela-
skólinn. Þar var það
skoðað af hjúkrun-
arfólki og nýjan fatn-
að og var síðan flutt í
samkomuhúsið Hlé-
garð í Mosfellssveit þar
sem það dvaldi fram á
nýársdag 1957.
Ástæða flótta ung-
versku þjóðarinnar til annarra landa var sú að
blóðug átök höfðu brotist út í landinu eftir að
stúdentar felldu Stalínsstyttu af stalli í október
1956 til að mótmæla yfirráðum Sovétríkjanna.
Leitað var til Sameinuðu þjóðanna og Rauða
krossins. Í byrjun desember 1956 ákvað íslenska
ríkisstjórnin að taka við
50 til 60 flóttamönn-
um og framkvæmda-
ráð Rauða krossins á
Íslandi var sama sinnis.
Ungversku karlmönn-
unum gekk greiðlega
að fá vinnu þrátt fyrir
tungumálaörðugleika
flestra. Nanna Snæ-
land var ráðin í hluta-
starf hjá Rauða kross-
inum við að aðstoða
flóttafólkið. Hún átti ungverskan mann og þau
hjón reyndust hópnum ómetanlegir tengilið-
ir frá byrjun.
ÞETTA GERÐIST 24. DESEMBER 1956
Ungverskt flóttafólk til Íslands
VALBORG BENTSDÓTTIR
SKRIFSTOFUSTJÓRI FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1911.
„Ég gekk á vit þess
draums sem fjarlægðin
gerði fagran.“
Valborg var kvenréttinda-
kona og skáld.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðfinna Lárusdóttir,
Miðtúni 72, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Laugarneskirkju fimmtudaginn
27. desember kl. 13.00.
Inga Gunnarsdóttir Gylfi Gíslason
Gunnar Gunnarsson Gerður Helgadóttir
börn og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðríður Þórðardóttir
Heiðargerði 17, Vogum, Vatnsleysuströnd,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. desember. Útförin
fer fram frá Kálfatjarnarkirkju fimmtudaginn
27. desember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Minningarsjóð Kálfatjarnarkirkju.
Guðmundur Í. Ágústsson
Þórunn K. Guðmundsdóttir John Hill,
Lilja J. Guðmundsdóttir Jón Ögmundur Þormóðsson,
Andrés Ágúst Guðmundsson Sædís Guðmundsdóttir
Þórður K. Guðmundsson María Gunnarsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Stefán Jóhann Jónatansson
Bifreiðasmíðameistari, Vallargerði 40,
varð bráðkvaddur að heimili sínu að kvöldi föstu-
dagsins 14. desember. Útförin fer fram í Háteigskirkju
fimmtudaginn 27. desember kl. 13.00.
Ása Benediktsdóttir
Sigrún Stefánsdóttir Steinar Þór Kristinsson
Sigurður B. Stefánsson Anna Rósa Böðvarsdóttir
Svanhvít Stefánsdóttir Jón Þórðarson
og barnabörnin Stefán Kristinn, Guðrún Katrín og
Hlynur Kári.
Óskum öllum vinum og vandamönnum
fjær og nær
gleðilegra jóla
og
góðs nýs árs.
Jólakveðja frá Spáni,
Hrefna og Gulli.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað-
ir og afi,
Jóhann Ragnarsson
læknir,
sem lést að heimili sínu, Laufásvegi 62, mánudaginn
17. desember verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 27. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Hanna Gunnarsdóttir,
Anna Jóhannsdóttir, Ástráður Eysteinsson,
Heiða Jóhannsdóttir, Björn Þór Vilhjálmsson,
Magnús Jóhannsson, María Björg Sigurðardóttir,
Stefán Þorri Magnússon,
Jóhann Ástráðsson,
Anna María Magnúsdóttir,
Eyja Ástráðsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Kristinn Enok Guðmundsson,
Dengsi,
fyrrv. starfsm. Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
áður Lindargötu 57, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 27. desember kl. 13.00.
Guðmundur Hanning Kristinsson Eyrún Þorsteinsdóttir
Magnús Birgir Kristinsson Jónfríður Loftsdóttir
Sigrún Ásta Kristinsdóttir Ragnar Wiencke
Sigurður Kristinsson Anna Jónsdóttir,
Ingólfur Kristinsson Jóhanna Ellen Valgeirsdóttir
Anna Guðrún Kristinsdóttir Jóhann Snorri Jóhannesson
barnabörn, og barnabarnabörn.