Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN
H A U S
27. DESEMBER 2007 FIMMTUDAGUR6
V I Ð Á R A M Ó T
Ísland
Færeyjar
Svíþjóð
Danmörk
Bretland
Þýskaland
Monakó
Rúanda
Indland
Bandaríkin
S T I K L U R H J Á B A U G I 2 0 0 7
Það var mikið að gera hjá Baugsfólki á árinu, bæði hér á landi sem víða um heim. Hér er stiklað á stóru í umsvifum Baugs Group á árinu:
Ertu meira á Íslandi en erlendis?
Nei, ætli ég sé ekki þrjá til fjóra
daga á Íslandi í hverjum mánuði.
Við erum nú í raun flutt til New
York þar sem okkar heimili er.
Gerðum það í september. Fram-
an af var ég mikið þar þang-
að til umrótið varð á mörkuð-
um. Við stefnum að því að vera
þar á næsta ári. Aðalviðskiptin
okkar eru svo í London. Svo skýst
maður yfir til Danmerkur.
Af hverju New York? Er það merki
um aukin umsvif þar vestra eða
langaði þig bara að búa þar?
Mig hefur alltaf langað til að búa
í New York. Mér finnst hún mjög
skemmtileg og mikill kraftur í
henni. Krafturinn í New York
er frábær til að efla hugmynda-
flæðið. Ingibjörg lærði þar líka
og vildi fara aftur út. Við erum
mjög ánægð þar og segjum okkar
fyrsta heimili vera í New York.
Hvernig heldur þú utan um allt
sem þið eruð að vesenast?
Ég nota einnar blaðsíðu kerfið.
Ég set niður hugmyndir og mark-
mið á eitt blað og treysti svo
öðrum fyrir að koma þeim í fram-
kvæmd.
Ann-
ars yrði
ég bara
geðveik-
ur. Með
þessu fyr-
irkomu-
lagi er alltaf auðvelt að koma
að verkefnum aftur og spyrja
hvernig gengur miðað við þau
markmið sem við settum niður
á blaðsíðuna. Það er mjög mik-
ilvægt að tína sér ekki í þúsund-
um smáatriða heldur spyrja hvar
við erum stödd miðað við það
sem við ætluðum okkur. Þannig
höfum við getað gert þetta og
uppleggið er það sama og gilti
upphaflega í Bónus. Við gerum
hlutina einfalda og þá virkar
þetta.
Og þú ert þá duglegur að miðla
verkefnum til annarra?
Já, ég er með mjög gott fólk í
kringum mig. Það skiptir gríð-
arlegu máli að geta treyst fólki
til að stýra skútunni og það felst
mikið frelsi í því.
Fólst mikil breyting í því að þú
hættir sem forstjóri og varðst
starfandi stjórnarformaður? Var
það liður í að deila ábyrgð frekar?
Það fólst heilmikil breyting í því.
Það er alveg vel fullt starf fyrir
Gunnar [Sigurðsson] að vera for-
stjóri. Ég stríði honum stund-
um á því að hann er kominn
með meiri Bauga en ég á þessu
öllu saman. Þetta gaf mér meira
frelsi. Ég ætlaði alltaf að fá svig-
rúm til að skoða nýja markaði og
plana til lengri tíma en næstu átta
vikna hvert við ætlum að fara. Ég
hef farið úr því að stýra breið-
um hópi fólks í það að hringja
kannski bara í einn mann. Ég er
mjög sáttur við breytinguna.
Í úttekt Sirkuss var sagt að þú
ættir hundrað milljarða. Er það
rétt?
Veistu, ég er löngu hættur að
telja.
Ertu mikill bíladellukall?
Jájá. Ég er sjúkur bílaáhugamað-
ur.
Hvernig bíl áttu í New York?
Geyma ekki allir flottu bílana
sína þar?
Þar er ég bara á einum gulum.
Hversu langt planar þú líf þitt
fram í tímann? Sérðu fyrir þér
hvar þú verður eftir tíu ár?
Nei, ég hef engin plön um það.
Síðustu vikur sýna hvað allt
saman getur verið hverfult.
Maður veit aldrei hvað verð-
ur. Það getur ýmislegt komið
upp og svo er að spila úr að-
stæðum. Við höfum haft það
sem reglu, framkvæmdastjórn
Baugs, að setjast niður á sex
mánaða fresti og horfa allt að
24 mánuði fram í tímann. Það
er oft gaman að sjá hvar við í
raun erum og hvað
hefur unnist. Það
sýnir hvað það eru
miklar svipting-
ar á leiðinni. Hefði
einhver sagt mér í
miðjum október að
við ættum eftir að
vera leiðandi í FL Group hefði
ég sagt að viðkomandi væri
galinn. Hvað þá að fara að spá
tíu ár fram í tímann. Það er
bara ekki í boði.
En þú hefur gaman af því sem
þú ert að gera núna?
Já, annars væri ég ekki að
standa í þessu. Þetta er meira
en níu til fimm vinna.
Þú ert ekki níu til fimm týpa og
mikið á skrifstofunni?
Nei, nei. Ég er ekki einu sinni
með skrifstofu hérna á Íslandi.
Mér var hent út og búin til
fundaraðstaða þar sem skrif-
stofa mín var. Eini staðurinn
þar sem ég á smáhorn er í Lond-
on. Og ég er undir smá pressu
þar. Annars finnst mér ágætt
að geta sest niður í fundarher-
bergjunum og unnið þar.
Ingibjörg kvartar lítið en auðvitað vill maður eyða meiri tíma með fjölskyld-
unni. Ég reyni að finna jafnvægið þarna á milli. Nú er maður kvæntur maður
og verður að taka tillit til þess og standa sig.
D Ó M N E F N D M A R K A Ð A R I N S
Við val á viðskiptamanni ársins leitaði ritstjórn Markaðarins til tuttugu einstaklinga sem vel þekkja til í viðskiptalífinu. Hver og einn hafði kost á að tilnefna þrjá einstaklinga. Sá sem var í fyrsta sæti fékk þrjú stig, tvö
stig fengust fyrir annað sætið og eitt stig fyrir þriðja sætið. Að auki völdu sömu einstaklingar bestu viðskipti ársins og verstu viðskipti ársins. Eftirtaldir voru í dómnefnd Markaðarins: Ingólfur Bender, forstöðumaður
greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestinga-
banka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði
Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR,
Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.
Janúar:
■ Baugur lýsir andstöðu við hvalveiðar Íslendinga.
■ Skipulagi Baugs Group breytt. Félagið skiptist í
smásölu, eignasvið og fjárfestingar, fjölmiðla og
upplýsingatækni.
Mars:
■ SOUK verslunarmiðstöðin opnuð í Stokkhólmi
– þar inni eru stærstu verslanir Top Shop og Top
Man utan Bretlands.
Apríl:
■ Baugur eignast þriðjung í Humaic, dreif-
anda á Apple-vörum á Íslandi og í
Skandinavíu.
■ Baugur og FL Group verða stærstu
hlut hafarnir í Glitni.
Maí:
■ Baugsstefna í Mónakó. Tina Turner
skemmtir og Jón Ásgeir kemur
fram í grínútgáfu X-factor.
■ Fasteignasjóður í eigu Baugs kaupir 21 einka-
rekið sjúkrahús í Bretlandi.
Júní:
■ Baugur selur hlut sinn í dönsku raftækja-
keðjunni Merlin.
■ Baugur eykur hlut sinn í
Debenhams.
■ Baugur hefur þátttöku í upp-
græðsluverkefni í Rúanda. Bill
Clinton og Tom Hunter leiða verk-
efnið.
■ Skipulagsbreytingar hjá Baugi. Jón
Ásgeir hættir sem forstjóri og verður
stjórnarformaður. Gunnar Sigurðsson verður
forstjóri Baugs Group.
■ Skýrsla Deloitte sýnir að Baugur er þriðji stærsti
smásali á Norðurlöndum og sá sem hraðast vex.
Júlí:
■ Baugur ásamt fleirum kaupir í bandarísku frétta-
veitunni NewsEdge.
Ágúst:
■ Mosaic Fashions fer í einkaeigu fjárfesta undir
forystu Baugs.
■ Fréttir um tuttugu milljarða króna hagn-
að Baugs á fyrri hluta ársins.
September:
■ Fimm Hamleys-verslanir opnaðar víðs
vegar um Bretland.
■ FL Group eignast 84 prósenta hlut í
Tryggingamiðstöðinni.
■ Stoðir eignast Keops, stærsta fasteignafélag
Danmerkur.
Október:
■ Stoðir, Keops og Atlas Ejendomme sameinast í
Landic Property.
■ Orðrómur um kaup á Saks í Bandaríkjunum.
■ Fjallað um hugsanlega útrás Baugs til
Þýskalands og Indlands í breskum fjölmiðlum.
Nóvember:
■ Leikskólinn Baugur, sem
raunar er alveg ótengdur
Baugi Group, opnaður í
Kópavogi.
Desember:
■ Hræringar í FL Group.
Hlutafé aukið með þátttöku
Baugs.
■ Baugur staðfestir orðróm um áhuga á yfirtöku á
Moss Bros Group.
■ Fréttir um að eignir Baugs í Bretlandi hafi rýrn-
að um helming á árinu.