Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 18
MARKAÐURINN 27. DESEMBER 2007 FIMMTUDAGUR18
V I Ð Á R A M Ó T
Á
rið 2007 var fyrir margra hluta
sakir athyglisvert. Íslenskt við-
skiptalíf náði hæstu hæðum á
sumarmánuðum en allnokkrum
lægðum á síðustu vikum, í það
minnsta ef horft er til úrvalsvísitölu OMX.
Þó svo að þróun hérlendis á síðari hluta
árs hafi að miklu leyti verið tengd óhag-
stæðri þróun á erlendum mörkuðum hafa
einhverjir gengið svo langt að spá enda-
lokum íslenskrar útrásar. Það er auðvitað
firra.
Það hefur verið haft fyrir satt að einn
meginstyrkleiki íslenskra stjórnenda og
fyrirtækja sé hve sveigjanleg þau eru og
snögg að bregðast við. Þessir eiginleikar
kristölluðust í viðbrögðum íslenskra fjár-
málastofnana við gagnrýni sem fram kom
á vormánuðum 2006. Á um einu og hálfu
ári var undið ofan af krosstengslum eign-
arhalds, fjármögnun bankanna bætt svo
eftir er tekið og upplýsingamiðlun einn-
ig. Þetta kemur glögglega fram í skýrslu
dr. Richard Portes og dr. Friðriks Más
Baldurssonar, sem gefin var út af Við-
skiptaráði nú í nóvember. Það sama mun
verða uppi á teningnum núna. Íslensk fyr-
irtæki, í fjármálum sem og öðrum geir-
um, munu bregðast við óróa undanfar-
inna vikna og standa sterkari á eftir. Það
er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af
íslensku viðskiptalífi né útrás þess.
Velgengni síðustu ára er fyrst og fremst
til komin vegna þess hagfellda umhverf-
is sem stjórnvöld hafa skapað fyrirtækj-
um og einstaklingum hér á landi, þar sem
flestar breytingar hafa verið í átt til frels-
is og minni hafta. Þetta er jákvæð þróun
en þó eru umtalsverð tækifæri til að gera
öflugt atvinnulíf enn samkeppnishæfara.
Þessi tækifæri voru reifuð í níutíu ára af-
mælisskýrslu Viðskiptaráðs, sem út kom
í september. Þar var meðal annars lögð
áhersla á mikilvægi langtímastefnumót-
unar, skilvirkrar stjórnsýslu og einfalds
og gagnsæs skattkerfis. Allt eru þetta
stór hagsmunamál en það er tvennt sem
ástæða er til að draga sérstaklega fram
nú um áramót.
Í fyrsta lagi er ástæða til að huga sér-
staklega að gæðum menntunar hér á landi.
Nýlegar niðurstöður PISA-könnunarinn-
ar voru mikil vonbrigði, en þar dragast
íslenskir nemendur aftur úr jafnöldrum
sínum víðsvegar um heim. Það blasir við
að þörf er á uppstokkun menntakerfis-
ins og þar horfi ég sérstaklega til grunn-
skólanna. Til að mynda er afar mikilvægt
að auka fjölbreytni í rekstrarformum og
opna enn frekar á að kraftar einkafram-
taks fái að njóta sín. Breytingar á grunn-
skólalögum frá því í fyrra eru skref í
rétta átt. Þess er vonandi skammt að bíða
að álíka þróun fari af stað í grunnskólum
landsins og átt hefur sér stað á háskólaum-
hverfinu frá stofnun Háskólans í Reykja-
vík 1998.
Í öðru lagi er þarft að skoða umhverfi
til nýsköpunar hér á landi. Viðskiptatengd
umræða síðustu missera hefur verið með
örfá íslensk fyrirtæki í brennidepli, þ.e.
þau sem mest hefur kveðið að. Þetta er
ekki óeðlilegt, en það vill gleymast að hér
á landi eru hundruð lítilla fyrirtækja sem
auðga mannlíf og íslenskt samfélag og eru
að mörgu leyti undirstaða þess að stærri
fyrirtæki þrífist. Þessu þurfum við að
halda betur á lofti, ungu fólki til hvatning-
ar um þá fjölbreyttu kosti sem það stend-
ur frammi fyrir. Það er frábært að eiga
þess kost að hefja störf hjá öflugu og al-
þjóðlegu fyrirtæki líkt og útrásarfyrir-
tækin eru orðin í dag, en að sama skapi
eru einnig kjöraðstæður til að láta að sér
kveða á ýmsum öðrum sviðum. Nýsköpun,
í formi stofnunar nýrra fyrirtækja, er og
verður mikilvægur vaxtarbroddur. Með
samstilltu átaki umræðu, réttum áhersl-
um í menntakerfi og skilvirku stoðkerfi
nýsköpunar og sprotastarfsemi tryggjum
við áframhaldandi góðan grunn atvinnu-
lífs á Íslandi.
Þrátt fyrir tímabundnar þrengingar er
ég ekki í nokkrum vafa um að framtíð ís-
lensks viðskiptalífs er björt. Sveigjan-
leiki, seigla og aðlögunarhæfni hafa ein-
kennt Íslendinga í aldanna rás og þetta eru
eiginleikar sem munu nýtast okkur vel á
næstu misserum.
Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands:
Uppstokkun í rekstri grunnskóla
F
yrir nákvæmlega ári
síðan, er enn eitt ævin-
týraárið í sögu hinna títt-
nefndu íslensku útrás-
arfyrirtækja var gert
upp, virtist engan óra fyrir þeim
sviptingum sem voru framundan
á fjármálamörkuðum. Við þessi
áramót hvarflar hugurinn óneit-
anlega að því hversu mikilli vel-
gengni íslensk fyrirtæki hafa
átt að fagna á alþjóðavettvangi
á undanförnum árum. Atburðir
ársins hafa á hinn bóginn minnt
á hinn nýja alþjóðlega veruleika
sem við búum við og á mikilvægi
þess að sótt sé fram á ný svið á
traustum grunni.
Íslenskt viðskiptaumhverfi
hefur tekið stakkaskiptum á
undanförnum árum sem skap-
að hefur tækifæri fyrir íslensk
fyrirtæki til að hasla sér völl og
ná árangri á alþjóðavettvangi.
Bakkavör Group er eitt þessara
fyrirtækja sem vaxið hafa hratt
og náð framúrskarandi árangri á
erlendri grundu. Í dag er Bakka-
vör alþjóðlegt matvælafyrirtæki,
leiðandi í framleiðslu ferskra
tilbúinna matvæla með starfsemi
í átta löndum, 20 þúsund starfs-
menn og með metnaðarfull mark-
mið um framtíðarvöxt.
AFTURHVARF TIL RAUNVERU-
LEIKANS
Alþjóðavæðing íslenskra fyrir-
tækja hefur orðið til þess að ís-
lenska hagkerfið hefur orðið
berskjaldaðra gagnvart erlend-
um áhrifum en áður. Þetta hefur
sannreynst á árinu, en útlit er
fyrir að sú lausafjárkreppa sem
steðjað hefur að og á upptök sín
í Bandaríkjunum muni hafa áhrif
á íslenskt efnahagslíf á næstu
misserum, til að mynda á fjár-
mögnun og rekstur fyrirtækja.
Undanfarin ár hefur mikið
framboð af fjármagni meðal ann-
ars haft þær afleiðingar að eign-
ir hafa verið yfirverðlagðar. Ég
tel að sú leiðrétting sem hafin er
sé mikilvægt afturhvarf til raun-
veruleikans hvað þetta varðar.
Í raun hefur þetta bakslag ýmis
tækifæri í för með sér fyrir fyr-
irtæki eins og Bakkavör, en þessi
þróun dregur meðal annars úr
harðri samkeppni við fjárfest-
ingarfélög sem verið hefur áber-
andi undanfarin misseri um kaup
á fyrirtækjum. Það er ljóst að
á tímum sem þessum eru fyrir-
tæki sem starfa á vaxandi mörk-
uðum, hafa traustan undirliggj-
andi rekstur, góða markaðsstöðu
og sterkt sjóðstreymi, hvað best
í stakk búin til að ná árangri. Í
þessu felast framtíðartækifæri
fyrir Bakkavör.
BAKKAVÖR Í LYKILSTÖÐU
Þrátt fyrir krefjandi tíma, meðal
annars vegna hækkana á hráefn-
isverði, styrkti Bakkavör Group
stöðu sína enn frekar á sviði
ferskra tilbúinna matvæla með
kaupum á fimm fyrirtækjum á
árinu, í Bretlandi, Frakklandi,
Tékklandi og í Kína. Auk þess
var félagið endurfjármagnað á
árinu á afar hagstæðum kjörum
sem skapar félaginu svigrúm til
áframhaldandi vaxtar. Við höfum
metnaðarfull áform um framtíð-
arvöxt og stefnum að því á næstu
árum að auka hlutfall starfsem-
innar utan Bretlands, aðallega í
Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum,
en um 90% starfseminnar fer
fram í Bretlandi í dag.
Eftirspurn eftir hollum, hand-
hægum matvörum sem fram-
leiddar eru úr úrvalshráefni
eykst sífellt út um allan heim.
Aukin velmegun og aukin vitund
um mikilvægi hollrar fæðu hafa
einnig orðið til þess að neytend-
ur eru tilbúnir til að borga meira
en áður fyrir matvæli sem upp-
fylla þessar kröfur. Bakkavör
hefur yfirgripsmikla reynslu og
þekkingu á framleiðslu á fersk-
um tilbúnum matvælum og með
fjárhagslegan styrk að vopni er
félagið því í lykilstöðu til að leiða
þróun og uppbyggingu þessa
markaðar.
MIKILS AÐ VÆNTA Á KOMANDI
ÁRUM
Undanfarin ár hafa verið ævin-
týri líkust og hafa fært okkur
gríðarlega reynslu og þekk-
ingu sem mun án efa nýtast í
áframhaldandi þróun íslenskra
fyrirtækja á alþjóðavettvangi.
Þær sviptingar sem verið hafa
á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum á árinu hafa hins vegar
gert okkur ljóst að sterkar
undirstöður og traustur rekstur
er það sem skiptir máli til þess
að tryggja áframhaldandi árang-
ur. Ég horfi bjartsýnn til ársins
2008 og vænti mikils af Bakka-
vör sem og íslensku atvinnulífi í
heild á komandi árum.
Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar Group:
Sóknarfæri á traustum grunni
T
eymi var stofnað og skráð á mark-
að 20. nóvember 2006, þannig að
árið 2007 er fyrsta heila rekstrar-
ár félagsins. Teymi setti sér skýr
markmið og hélt fókus á árinu þar
sem við einsettum okkur að byggja upp
sterkt félag sem veitti viðskiptavinum góða
þjónustu og skilaði góðum rekstrarárangri.
Nú í lok árs er ljóst að árangurinn er um-
fram væntingar, fyrirtækin okkar vaxa
hraðar en markaðirnir sem þau starfa á og
verðmæti félagsins hefur aukist umtals-
vert á árinu. Gengisþróun félagsins hefur
því verið jákvæðari en flestra annarra fé-
laga á árinu.
MIKILL INNRI VÖXTUR OG GÓÐ AFKOMA
Teymi er rekstrarfélag í fjarskiptum og
upplýsingatækni. Alls á Teymi ellefu fyr-
irtæki og starfsmenn þeirra eru 1.200 tals-
ins. Fyrirtækið er skráð í Kauphöll Íslands
og er eitt þeirra fyrirtækja sem mynda úr-
valsvísitöluna.
Á árinu var mikið um að vera á þeim mörk-
uðum sem okkar fyrirtæki starfa á. Nýir
keppinautar komu fram á sjónarsviðið,
ýmsar tækninýjungar settu svip á árið - til
dæmis í fjarskiptaþjónustunni - og almennt
má segja að samkeppnin hafi harðnað á
öllum sviðum. Neikvæð þróun hlutabréfa-
markaðarins á seinni hluta ársins setti auð-
vitað sterkan svip á rekstrarumhverfið en
engu að síður sýndu öll fyrirtæki Teymis
góðan innri vöxt og bæði góða og vaxandi
afkomu. Okkar fólk getur því sannarlega
verið stolt af frábærum árangri ársins, sem
er alls ekki sjálfgefinn.
SKÝRARI ÁHERSLUR
Teymi leggur áherslu á að eiga að fullu
þau fyrirtæki sem félagið fjárfestir í. Að-
eins þannig getum við stýrt félögunum á
okkar eigin forsendum og laðað það besta
fram í hverju þeirra. Í samræmi við þetta
ákváðum við að minnka eignarhlut okkar í
Hands Holding úr tæpum 50 prósentum í
14,5 prósent og eignast samhliða breyting-
unni tvö öflug fyrirtæki að fullu, HugAx
og Landsteina/Streng, sem styrktu mjög
samkeppnisstöðu okkar í upplýsingatækn-
inni. Rekstur þeirra fellur vel að öðrum
eignum Teymis á þessu sviði og við sjáum
mikil tækifæri framundan. Teymi eignað-
ist á haustmánuðum veflausnafyrirtækið
Innn, sem var sameinað Eskli og úr varð
öflugasta veflausnafyrirtæki landsins. Þá
var fyrirtækið Kerfislausnir keypt í lok
árs en allar fjárfestingarnar miða auð-
vitað að því að auka verðmætið og bjóða
upp á heildstæðari þjónustu á þeim svið-
um sem við störfum á fyrir. Að sama skapi
drógum við okkur út af öryggismarkaðn-
um þegar við í upphafi árs seldum Secu-
ritas, sem þó er mjög gott félag með ein-
staka markaðsstöðu á sínu sviði. Fyrirtæk-
ið féll ekki að okkar áætlunum auk þess
sem gott verð fékkst fyrir það. Áhersl-
ur okkar hafa því aldrei verið skýrari og
þær munu koma enn betur í ljós þegar
við hrindum í framkvæmd metnaðarfullri
stefnu næsta árs.
TILTRÚ FJÁRFESTA MIKIL
Mikil tiltrú fjárfesta á Teymi er okkur auð-
vitað mikið gleðiefni og það er greinilegt að
margir gera miklar væntingar til félagsins.
Þetta er sérlega ánægjulegt í ljósi þess að
stundum dugar góður rekstrarárangur einn
og sér ekki til að fjárfestar öðlist næga til-
trú til lengri tíma og sýni það í fjárfestingu
í viðkomandi félagi, heldur þarf fleira að
koma til. Í upphafi virtust líka einhverjir
ætla að taka okkur með fyrirvara og spáðu
Teymi erfiðu fyrsta ári en reyndin hefur
verið allt önnur. Það sást t.d. í hlutafjárút-
boðinu okkar í mars en þá höfðu fjárfest-
ar áhuga á að kaupa um það bil helmingi
meira en var til sölu.
METNAÐARFULL STEFNA TIL NÆSTU ÁRA
Þótt árangurinn á þessu ári hafi verið góður
ætlum við okkur enn stærri hluti og höfum
markað okkur afar spennandi og metnað-
arfulla stefnu fyrir næstu ár. Fyrirtæk-
in okkar eru öll með sterka stöðu á sínum
mörkuðum og tilbúin til þess að sækja
fram. Þessa stundina ríkir vissulega mikil
óvissa um almenna verðþróun í íslenska
viðskiptalífinu, eftir þann mikla óróa sem
einkenndi seinni hluta ársins, en við reikn-
um með að markaðurinn taki við sér aftur
á fyrri hluta ársins 2008. Það er mikilvægt
fyrir alla Íslendinga að þessi niðursveifla
verði ekki langvinn heldur jafni sig fljótt.
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis:
Úrvalsvísitölunni slegið við