Tíminn - 03.04.1981, Side 7
Föstudagur 3. april, 1981.
7
Rósmundur G. Ingvarsson:
Gróðurríki eða líflaust lón
Komum í veg fyrir viljandi slys
Nauðsyn Blönduvirkj-
unar
En hver er þá þörf Blöndu-
virkjunar? Helstu röksemdir
eru: Virkjunarstaðurinn er utan
eldvirkra svæða. B.virkjun ligg-
ur vel við dreifikerfi rafmagns-
veitna (enda Byggðalinan lögð
með hliðsjón af henni). Hún
skapar mikla atvinnu i fjögur
sumur. Hún eykur öryggi i raf-
magnsmálum. Þá er þvi haldið
mjög fram að virkjunin sé hag-
kvæm og að hún stuðli að iðn-
þróun á Norðurlandi o.fl. Allt er
þetta að vissu marki rétt. En
allt á það lika við um aðrar
virkjanir eins og t.d. Fljótsdals-
virkjun. Aðeins verður atvinnan
i öðru héraði og öryggi raf-
magns vitund minna á Norður-
landi. Þó er varla hugsanlegt að
Byggðalinan bili o.fl. samtimis
bæði austan frá og vestan.
Byggðalinan að vestan hefur
yfirleitt reynst mjög vel (að frá-
töldum minniháttar bilunum i
Borgarfirði) og sjaldan verið
rafmagnslaust nema stutt i
einu. Það mátti alltaf búast við
einhverjum byrjunarörðugleik-
um, en menn læra af reynslunni
og öryggið eykst. Linurnar geta
flutt 50 megawött og þegar orka
getur eins komið að austan þá
eykst öryggið stórlega. Enginn
rafmagnsskortur er á Norður-
landi vestra nema þegar bilar.
Fyrirhuguð steinullarverk-
smiðja á Sauðárkróki þarf 5 MW
og heykögglaverksmiðja i Vall-
hólmi litlu meira wo byggðalin-
an ætti að duga þeim.
íslands óhamingja
Bilanir að undanförnu hafa að
miklum meirihluta verið á
dreifilinum innan héraðanna.
En i hvert sinn sem rafmagnið
fer vegna stórviðra sem hafa
verið all tið á þessum vetri, þá
er rokið til og krafið um Blöndu-
virkjun. Hér á við það sem sagt
var forðum „Islands óhamingju
verður allt að vopni”. Þvi að
auk bilana af völdum veðra-
hams kemur fleira til svo sem
aö vatnsskortur sunnan jökla
hefur valdið rafmagnsskorti nú
i vetur, raforkuþörf hefur aukist
mjög ört siðustu árin og tiltölu-
lega fáir virkjunarkostir tilbún-
ir, hinn neikvæði áróður um
landbúnaðinn sem hellt hefur
verið yfir þjóðina siðustu árin
t.d. i Dagblaðinu birðist hafa
ótrúlega mikil áhrif á skoðanir
fólks svo þvi er ósárt um sam-
drátt i framleiðslu landbún-
aðarvara. (Fljótt er þó að koma
ramakvein ef landbúnaðarvör-
ur vantar eða ef haldið er að þær
séu á þrotum. Allt þetta og
fleira eykur hættu á að rokið
verði i Blönduvirkjun áður en
þjóðin áttar sig á hvilikt glap-
ræði eyðilegging graslendisins
er. <
Forðast ber ofstæki og
óðagot
Þau rök sem eru tilfærð til
framgangs Blönduvirkjun (með
landeyðingunni miklu) eru
harla léttvæg og geta ekki rétt-
lætt slika framkvæmd. Þeim
áformum verður að breyta.
Ekki virðist heldur liggja á að
nota þennan virkjunarkost
nema ef orku vantar til stóriðju
við Eyjaförð á næstunni. Menn
verða að gefa sér tima til að
skoða þetta stórmál frá öllum
hliðum án ofstækis og óðagots.
Grunur er um að ýmsir aðilar
þrýsihópsins sem krefur á um
Blönduvirkjun, séu að nota
þetta virkjunarmál sjálfum sér
til pólitisks framdráttar. Beina
þeir spjótum sinum að Páli
Péturssyni, og munu sumir ætla
að komast i eða koma öðrum i
plássið hans á væntanlegum
framboðslista, en aðrir eru að
skapa glundroða i Framsóknar-
flokknum i þvi skyni að hann
tapi þingsætum. En hvað hefur
Páll til saka unnið? Ekkert
nema hvað hann hefur ekki far-
ið að vilja þrýstihópsins, heldur
verið sannfæringu sinni trúr
eins og þingmönnum ber að
vera samkvæmt eiði er þeir
vinna að stjórnarskránni. Hann
hefur, einn þingmanna staðið
með bændum og náttúru-
verndarmönnum allan timann
siðan þessi landeyðingardella
komast á dagskrá. Hann hefur
þorað að standa með okkar mál-
stað, — málstað Islands. Það
mun verða virt af þjóðinni þótt
siðar verði.
Komum i veg fyrir vilj-
andi slys
Það þarf sterk bein til að þola
góða daga, segir máltækið og
vist er hætta á að græðgin og
lifsþægindasýkin verði okkar
þjóð og landinu hættuleg. Senni-
lega hefur aldrei verið meiri
þörf á þvi en einmitt nú að hugs-
andi einstaklingar og raunar
þjóðin öll haldi vöku sinni og
standi vörð um sjálfstæði þess-
arar þjóðar og hreinleika lands-
ins og verðmæti þess. Vermæti
landsins er fyrst og fremst fólg-
ið i gróðri og dýralifi i sjó og á
landi enda er það undirstaða
lifsskilyrða mannsins á jörð-
inni. Það er höfuðnauðsyn að
vernda þessi undirstöðuatriði
fyrir mengun og eyðileggingu
og er nú verið að taka það mál
föstum tökum hvað fiskimiðin
umhverfis landið varðar.
Verndun gróðurs er einnig kom-
in nokkuð á rekspöl, en þó vilja
skammsýnir menn nú fram-
kvæma við Blöndu stórfelldustu
gróðureyðingu i sögu landsins,
Síöari hluti
)
sem beinlinis verður af manna-
völdum.
Það „slys” verður að koma i
veg fyrir.
Gætið að þvi er góðir
menn segja
Þegar ég var að ljúka við
þessar linur, sá ég i Timanum
14. mars ágæta grein um þessi
mál eftir Helga Hannesson og
aðra i Morgunblaðinu 7. mars
eftir Helga Hallgrimsson og
Hörð Kristinsson. Nokkru fyrr
eða 21. febr. birtist i Dagblaðinu
grein eftir Þorvald örn Arnason
liffræðing sem einnig er mjög
athyglisverð. Um leið og ég færi
þessum ágætu mönnum þakkir,
vil ég hvetja alla til að lesa
þessar greinar, alla sem vilja
vita eitthvað um þessi mál en
ekki álpast áfram i blindu fylgi
við hinn svonefnda meirihluta i
þessu máli. Þessir höfundar
standa utan við deilur heima-
manna um virkjunarlónið og
hafa gott vit á þvi sem þeir
skrifa um. Vissulega var mál til
komið að slikir menn færu að
skrifa um málið i blöðin og
mættu fleiri fara að dæmi
þeirra.
Útblásin deila
Rétt er að taka fram að deilan
um Blönduvirkjun er mjög blás-
in út i fjölmiðlum. Hún er sögð
ver milli „litils en harðsnúins
hóps bænda sem vilja friða
landið til beitar annarsvegar, og
aðila sem telja sig hafa hag af
framkvæmdunum hinsvegar”.
Þetta kann að vera rétt að vissu
marki en náttúruverndarsjóna-
mið er stór þáttur og raunar
aðalatriði málsins. Væri miklu
eðlilegra að deilan sé milli
náttúruverndarmanna og hinna
sem vilja fórna landinu fyrir
stundarhagsmuni — milli land-
verndar — og landeyðingar-
manna — og inn á það svið þarf
vettvangur málsins að komast
meira en verið hefur.
„Litli og harðsnúni hópurinn”
er raunar stærri en menn virð-
ast halda og er verulegu leiti i
þeim sveitum sem kemur málið
veint við. Stóri og hávaðasami
hópurinn, þrýstihópurinn, er
hinsvegar að mestum hluta
skipaður mönnum úr kaupstöð-
um og kauptúnum og kemur
þeim málið i rauninni harla litið
við, nema eins og herjum öðrum
Islendingum.
Umsögn Náttúru-
verndarráðs.
Talsmenn þrýsihópsins vitna
oft i Umsögn Náttúruverndar-
ráðs um virkjun Blöndu og
segja það hafa gefið grænt ljós.
Ráðið leggst að visu ekki gegn
fyrirhugaðri virkjun, en bendir
á mörg neikvæð atriði. M.a. tel-
ur það hættu á að jarðvegsfólk
verði frá lónsstæðinu t.d. að vori
og framan af sumri og geti þaf
valdið uppblæstri á gróðurlendx,
einkum norðan lónsstæ^isins
beggja megin Blöndu. Þá varar
ráðið við landsspjöllum frá
veituskurðum og telur þá hættu-
lega skepnum. Það óttast áhrif
á veðurfar og einnig flóðahættu
neðan virkjunar vegna istrufl-
ana. Ennfremur segir Náttúru-
verndarráð orðrétt:”... ljóst er
að mjög mikil eftirsjá er að þvi
viðfeðma gróðurlendi og beitar-
landi sem fer undir vatn á stæði
hins fyrirhugaða miðlunarlóns.
Er það tilfinnanlegt vegna þess
hve stór hluti gróinna heiða-
landa i þessum landshluta fara
þannig forgörðum. Náttúru-
verndaráð bendir á, að almennt
séð er það óæskileg þróun að
sifellt er gengið á náttúruleg og
sumpart frjósöm lifkerfi með
ræktun eða i vistkerfi með litla
sem enga framleiðni eins og um
yrði að ræða i miðlunarlóni og
vatnsvegum Blönduvirkjunar”.
Ljósið er nú ekki grænna en
þetta. Alllangt er um liðið siðan
þessi umsögn varð til og er full
ástæða til að Náttúruverndaráð
gefi aðra umsögn nú, með hlið-
sjón af stöðu málsins.
Viljandi slys
Eins og fyrr er að vikið verður
að teljast með öllu ósæmilegt að
eyða þvi mikla og verðmæta
gróðurlendi sem ráðgert hefur
verið að sökkva undir „Dauða-
haf Húnvetninga” eins og einn
ágætur maður nefnir hið fyrir-
hugaða jökulvatnslón. Það yrði
núlifandi kynslóð til ævarandi
vansæmdar. Það er eflaust hægt
aö virkja Blöndu án þess að
eyða svo miklu graslendi og það
ber að gera. Rætt er um að
þrengja að lóninu með stiflu-
görðum og má segja að betri er
hálfur skaði en allur. En þá
segja sumir að virkjunin verði
dýrari og jafnvel ekki eins hag-
kvæm og hinar tvær sem teflt er
fram á móti. Nú dreg ég mjög
i efa að útreikningar
reiknistokkameistara á þessu
máli séu réttir, enda ekki tekið
tillit til minni bótagreiðslna,
minni umhverfisáhrifa og þess
að lónið verður hagkvæmara og
nýtist betur til miðlunar ef
þrengt verður að þvi. Þá hefur
verið sýnt fram á að aukakostn-
aður við stiflugarða hefur sára-
litil áhrif á verð raforku i land-
inu eða minna en hálfs eyris
hækkun á KWS (Mér skilst aö
raforkuverðið til almennrar
notkunarsé nú 44.14aurar). Það
getur ekki talist hár skattur til
að bjarga úrvals graslendi og
má minnast þess að miklum
fjármunum er árlega varið til
að græða upp land.
Fleiri möguleikar hljóta aö
koma til greina svo sem til-
færsla lónsins. Svo virðist aö
það hljóti að vera hægt að koma
miðlunarlónum fyrir á gróöur-
lausum svæðum, sem vissulega
er nóg til af á þessu landi, m.a.
ekki langt frá Blöndu. Það ber
að gera. Hjá Fljótsdalsvirkjun
mun hugmyndin að leiða vatnið
25 km. leið frá miðlunarlóni til
virkjunar, svo vegalengdir virð-
ast ekki stórt vandamál.
Einhver komst svo að orði i
umsögn um fyrirhugaða
Blönduvirkjun að eyð-
ing gróðurlendiMns kunni að
verða talið slys, annar laldi
þessa eyðingu vera landráö. Ég
vil aðlokum biðja þá sem nenna
aðlesa þessar linur aðhugleiða,
hvort ekki er réttara fyrir núlif-
andi kynslóð að koma i veg fyrir
viljandi slys og verða ekki
dæmd fyrir landráð. Framtiðin
mun dæma i málinu.
Ilólí, 21. mars 1981
Rósmundur G. Ingvarsson
Verkfræði- og raunvisindadeild H.í.
Kynnir almenningi
starfsemi sína
nk. sunnudag frá kl. 10-18
AB — „Við, og raunar allar deild-
ir Háskólans, höfum legið undir
þvi ámæli að vera eins konar fila-
beinsturn, lokaður öllum almenn-
ingi. Þvi er markmið þessarar
kynningar okkar aö kynna al-
menningi starfsemi þá sem fer
fram i deild okkar, bæði hvað
varðar kennslu og rannsóknir,”
sagði Ragnar Ingimarsson, for-
seti Verkfræði- og raunvisinda-
deildar H.l. þegar blaðamönnum
var greint frá kynningardegi
deildarinnar sem verður nk.
sunnudag.
Sagði Ragnar jafnframt, að
þeir i deildinni vonuðust eftir þvi
að þessi kynning gæti orðið sú
fyrsta af kynningum, sem siðan
yrðu reglulega á þriggja ára
fresti, þannig að öllum fram-
haldsskólanemendum gæfist
kostur á að koma i slika kynningu
einu sinni á meðan þeir stunduðu
nám sitt i framhaldsskólum.
Kynningin fer fram i öllum
húsakynnum deildarinnar, og þar
að auki verður miðstöð kynning-
arinnar i anddyri Háskólabiós.
Húsakynni deildarinnar eru hús
Verkfræði- og raunvisindadeildar
á horni Hjarðarhaga og Suður-
götu, Raunvisindastofnun háskól-
ans við Dunhaga, Gamla Loft-
skeytastööin við Suöurgötu, Jarð-
fræðihúsið, sem er næsta hús við
aðalbyggingu háskólans og
Grensásvegur 12, en þar er lif-
fræðiskor til húsa.
A milli Háskólabiós og Grens-
ásvegar verða reglulegar strætis-
vagnaferðir allan sunnudaginn,
þannig að fólk eigi þess kost að
skoða allt svæðið og starfsemina,
þó það hafi ekki yfir bil að ráða.
Sagði Ragnar að allir væru vel-
komnir á þessa kynningu, og ekki
hvað sist þeir, sem stunda nám á
framhaldsskólastigi og hafa
hugsanlega háskólanám i hyggju.
Miðstöö kynningarinnar verður
i anddyri Háskólabiós. Þar verð-
ur yfirlit yfir helstu námsgreinar
og ýmis rannsóknaverkefni, sem
verða kynnt á vinnustöðum deild-
arinnar. landdyrinu verða einnig
afhent kort af svæðinu.
Röð stuttra fyrirlestra verður i
Háskólabió milli kl.14 og i6.Einn-
ig verða fyrirlestrar i einstökum
byggingum deildarinnar.
Kvikmyndasýningar og sér-
stakir gjörningar efnafræðinga
verða á nokkrum stöðum yfir
daginn.
Rannsóknatæki verða kynnt og
notkun þeirra sýnd. Gestum
verða gefin tækifæri til að gera
vissar tilraunir.
Þá verður tölva háskólans i
notkun og gefst gestum tækifæri
til að kynna sér hvernig hún vinn-
ur og jafnframt að prófa notkun
hennar viðleikog störf. Til dæmis
verðurhægtaðtefla við hana, eða
spjalla við hana um daginn og
veginn á enskri tungu.
Fjölmörg rannsóknaverkefni
veröa kynnt á hinum ýmsu rann-
sóknastofum deildarinnar. Hægt
verður að skoða berg i smásjá,
eða kynnast þvi hvernig þykktar-
mælingar jökla fara fram.
Liffræðiskorin við Grensásveg
mun sýna hvaö helst er að sjá i
lifrikinu á þessum árstima i
Reykjavik og nágrenni. Hægt
verður að fylgjast með sveiflu-
mælingum ýmiss konar hjá eðlis-
fræðiskorogsvomætti lengi telja.
Nemendur Verkfræði- og raun-
visindadeildar munu verða til
staðar og kynna nám við deildina.
Þeir munu einnig annast veit-
ingasölu i anddyri Háskólabiós, i
jarðfræðihúsi, i húsakynnum lif-
fræðinga við Grensásveg og i húsi
Verkfræði- og raunvisindadeildar
á horni Suðurgötu og Hjarðar-
haea.
Fulltrúar Verkfræöi- og raunvfs-
indadeildar, sem kynntu blaöa-
mönnum dagskrá kynningardags
son deildarforseti situr fyrir
miöju, en honum á vinstri hönd
eru þeir Siguröur Steinþórsson
(Jarðfræöiskor) og Sigmundur
Guöbjarnason (Eölis- og efna-
fræöiskor). Ilagnari á hægri hönd
eru þeir Porgeir Pálsson (Verk-
fræöisk--r) og Gisli Már (Lff-
fræðiskor).
Timamynd —G.E.
Aðgangur að sýningunni verður
ókeypis.
Mönnum til glöggvunar, þá
verður dagskrá sýningarinnar i
heild birt i blaðinu á morgun.