Tíminn - 03.04.1981, Blaðsíða 13

Tíminn - 03.04.1981, Blaðsíða 13
Föstudagur 3. aprll, 1981. 17 Ferðalög Sunnud. 3.4. kl.13 Kræklingafjara við Hvalfjörð, steikt á staðnum, fararstj. Jón I. Bjarnason eða Evrarfiall. Fritt f. börn m. fullorðnum. Farið frá B.S.Í. vestanverðu. Myndakvöld að Freyjugötu 27 n.k. þriðjudagskvöld, Hallur og Oli sýna, kaffi og meö þvi. Páskaferðir: Snæfellsnes, gist á Lýsuhóli, sundlaug. Fimmvörðuháls.gengið upp frá Skógum, og niður i Bása. Útivist. Dagsferðir sunnudaginn 5. april: 1. kl. 10.30 Skiðagönguferð yfir Kjöl. Gengið frá Hvalfirði að Stiflisdal. Fararstjóri: bor- steinn Bjarnar 2. kl. 13. Skfðaganga i nágrenni Geitafells 3. kl. 13. Þorlákshöfn og strönd- in i vestur. Farið frá Umferðamiðstöðinni. Farmiðar seldir v/bil Ferðir um páskana: 16.-20. april kl. 08: Hlöðuvellir skiöaferð (5 dagar) 16.-20 april kl. 08: Þórsmörk (5 dagar) 16.-20. april kl. 08: Snæfellsnes (5 dagar) 18.-20. april kl. 08: Þórsmörk (3 dagar) Dagsferðir i vikunni fyrir páska og páskadagana: 16. april kl. 13 Vifilsfell 17. april kl. 13 Gálgahraun — Alftanes 18. april kl. 13 Keilisnes — Staðarborg 19. april kl. 13 Gengið með Elliðaám 20. april kl. 13 Húsfell Allar upplýsingar á skrifstof- unni, öldugötu 3. S. 19533 og 11798. Ferðafélag Islands Félagslíf Nemendur Löngumýrarskóla veturinn 1951. Halld skólasvstur. Eigum við að hittast aftur i vor eða sumar? 1 tilefni af 30 ára út- skrift okkar. Þær sem hafa áhuga og vilja hittast aftur, hafi samband við Didi S-82931 — Disu s-50774 — Petru 97-1173 — Ástu Valdim. 96-41317 — Mariu Hermanns 95-5243 — Rósu Helgad. 92-2145. Kvennadeild Eyfirðinga-félags- ins verður meö kökubasar að Hallveigarstöðum n.k. sunnu- dag 5. febrúar kl. 2. Kvennadeild Barð- strendingafélagsins heldur fund i Domus Medica, þriðjudaginn 7. april kl. 20.30. Fundarefni: Skirdagsskemmt- un eldra fólksins undirbúin. Stjórnin Frá Sálarrannsóknarfélaginu i Hafnarfirði. Aðalfundur félagsins verður n.k. miðvikudag 8. april i Góðtemplarahúsinu kl. 20.30. Stjórnin. Dómkirkjan: Laugardag kl.10:30 barnasamkoma i Vest- urbæjarskóla v/öldugötu. Séra Hjalti Guðmundsson. Kvenfélag Háteigssóknar fund- ur verður þriðjudaginn 7. april kl.20:30 i Sjómannaskólanum. Gestur fundarins verður Mar- grét Hróbjartsdóttir, þá verður tiskusýning. Mætið vel og stund- vislega. Kökubasar til ágóða fyrir kirkjubyggingasjóð Langholts- kirkju verður laugardaginn 4. april kl. 15. i Safnaðarheimilinu. Kvenfélag Langholtssóknar. Aðalfundur Neytenda- samtakanna. Aðalfundur Neytendasamtak- anna verður haldinn að Hótel Esju laugardaginn 4. april kl. 13.00. A dagskrá fundarins eru venju- leg aðalfundarstörf, kosning stjórnar og önnur mál. Stjórnin. Fundur um hugmynd Borgarskipulags Framfarafélag Seláss- og Ar- bæjarhverfa boðar til fundar meðal ibúa þessara hverfa laugardaginn 4. april n.k. kl. 14.00 i samkomusal Árbæjar- skóla. Aðalumræðuefni fundar- ins verður hugmynd Borgar- skipulags Reykjavikur um að nýta landræmuna milli Bæjar- háls og Hraunbæjar að nokkru leyti fyrir atvinnuhúsnæði, eins og fram kemur i tillögu að aðal- skipulagi Reykjavikur, sem nú er til umfjöllunar hjá borgar- stjórn. Tónleikar Sunnudaginn 5. april, verða haldnir tónleikar i Hveragerðis- kirkju, og hefjast þeir klukkan 16:00. Þar munu Sigurður Pétur Bragason, tenorsöngvari, Arni Sighvatsson, baritonsöngvari, Haraldur Arni Haraldsson, básúnuleikari, og Úlrik Ölason, orgelleikari, flytja verk eftir ýmsa höfunda, bæði innlenda og erlenda. 47 norrænar konur sýna á Kjarvalsstöðum KL — Nk. laugardag veröur opnuö á Kjarvalsstöðum sýn- ingin „Norrænar konur”. Sýn- ingin er farandsýning og eiga 47 konur frá Norðurlöndunum yfir 250 verk á henni. Ekki verður þó unnt að sýna öll verkin hér sök- um plássleysis. 6 islenskar listakonur eiga verk á sýningunni. Hér sitja 4 þeirra i þungum þönkum, t.f.v. Bergljót Ragnars, Valgerður Bergsdótt- ir, Edda Jónsdóttir og Borghild- ur óskarsdóttir. Auk þeirra taka þátt i sýningunni Björg Þorsteinsdóttir og Sigriöur Björnsdóttir. (TimamyndGE) Það var fyrir 3 árum, aö sú hugmynd vaknaði með listakon- unum Marianne Agren og Berg- ljótu Ragnars að koma upp farandsýningu með verkum „núlifandi teiknara og málara meöal kvenna á Norðurlöndun- um.” Er þær höfðu orðið sér úti um loforð Konsthallen i Málmey um að taka aö sér uppsetningu sýningarinnar og sýningar- skrár, lögðu þær fram umsókn til Norræna menningarmála- sjóðsins um fjárstuöning. Veitti sjóðurinn þeim 100.000 danskar krónur til að standa straum af söfnun verka, flutningi og tryggingum. Aö auki veitti sjóðurinn sérstakan styrk, d. kr. 30.000, til að senda sýninguna til tslands. 1 samráði viö aðrar listakonur á Noröurlöndunum voru valdar 47 konur til þátttöku i sýning- unni, og var þá haft til hliðsjón- ar að hún gæfi sem fjölbreyti- legasta mynd af þróun og til- hneigingum, sem fram kom i list kvenna. Sýningin var siðan opnuö i Málmey 13. júni i fyrra og stóð þar fram i ágúst. Þaðan fór hún til Abo-og Jyvasl^yla i Finnlandi og Moss i 'Noregi./A Kjarvals- stöðum mun húp standa til 26. júni, en héðán fer hún til Árósa. lOOdansarar, börn og fuilorðnir, koma fram i sýningunni Danssýning Þjóð- dansafélags Reykja- vikur Þjóðdansafélag Reykjavikur efnir til nemendasýningar i Há- skólabiói laugardaginn 4. april kl. 14.00. Sýndir verða dansar frá ýms- um löndum svo sem Ameriku, Italiu, Rússlandi, Balkanlönd- um, Islandi o.fl. 1 sýningunni koma fram um lOOdansarar, börn og fullorðnir. Undir stjórn Kolfinnu Sigur- vinsdóttur hópar barna og ung- linga, undir stjórn Helgu Þórarinsdóttur hópar úr gömlu dansa námskeiði og úr þjóö- dansaflokki og undir stjórn Svavars Guðmundssonar hópur úr þjóödansaflokki. Undir- leikarar á sýningum verða þau Maria Einarsdóttir, Þorleifur Finnsson og Þorvaldur Björns- son, en verulegur hluti tónlistar er þó fluttur af tónböndum. Um- sjón með búningum hefur Asta Guðmunddóttir. Kynnir verður Guðmundur Guðbrandsson. Þjóðdansafélagið hefur á undanförnum árum komið sér upp verulegu safni af innlendum og erlendum þjóðbúningum og lagt sérstaka áherslu á að hafa þá sem upprunalegasta að allri gerð. Sýningar félagsins eru byggð- ar á þjóðlegri tónlist, skrautleg- um búningum og dansi, sem að sjálfsögðu takmarkast af þvi hve nemendur eru mislangt komnir i dansins list. Vart mun fyrirfinnast i heiminum þjóðdansafélag sem hefur gert jafn mikið af þvi að færa upp erlenda dansa og Þjóð- dansafélag Reykjavikur. Flest- ir þjóðdansahópar erlendis sýna nær eingöngu dansa sins heima- lands. Með von um góða skemmtun býður Þjóðdansafélagið áhuga- mönnum um dans og þjóðlega menningu velkomna i Háskóla- bió laugardaginn 4. april kl. 14.00. Samsöngur Samkór Selfoss og Arnesinga- kórinn i Reykjavik halda sam- eiginlega tónleika i Selfossbió laugardaginn 4. april n.k. kl. 17. Samkórinn og Arnesingakór- inn hófu samstarf á siöastliðnu ári, og sungu þá saman i ‘ Reykjavik. Kórarnir eru báöir meölimir i Landssambandi blandaðra kóra, sem hefur þaö m.a. á stefnuskrá sinni að kórar i hin- um ýmsu byggðum landsins efli meö sér samstarf. Tónleikarnir hefjast sem fyrr segir laugardaginn 4. april kl. 17, og syngja kórarnir bæði hvor fyrir sig og sameiginlega. Á söngskrá eru lög eftir erlenda og innlenda höfunda. Söngstjóri Samkórs Selfoss er Björgvin Valdimarsson en Ar- nesingakórsins er Guömundur Ómar Óskarsson. UndiMeikarar eru Geirþrúður Bogadóttir og Hafdis Kristinsd. Háskólatónleikar Sjöttu Há skóla tónleikar vetrarins verða i Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut laugar- daginn 4. april 1981, kl. 17.00. Flytjendur eru Camilla Söderberg, Helga Ingólfsdóttir og Ólöf Sesselja óskarsdóttir og leika þær á blokkflautu, sembal og bassagigju. Þær Camilla og Helga leika á blokkflautu og sembal sem eru eftirlikingar af 18. aldar hljóðfærum. Efnisskráin samanstendur af itölskum og frönskum tónverk- um frá barokktimanum og lýsir velhinum sérstæða ogólika tón- listarstil þessara tveggja þjóða á 18. öld. Flutt verða tónverk eftir Paolo B. Bellinzani, Jacques M. Hotteterre, Monsieur Ravet, Charles Dieupart, Joseph B. de Boismortier og Francesco Barsanti. Tómasarkynning t tilefni af áttræðisafmæli Tóm- asar Guðmundsonar 6. janúar siðast liðinn efnir Norræna fé- lagið i Reykjavik til samkomu i Norræna húsinu næstkomandi sunnudag kl.3 síðdegis, en Tóm- as Guðmundsson hefur sem kunnugt er ort fögur ljóð um Reykjavik og verið nefndur Reykjavikurskáld. Nemendur i 3. bakk Leiklistar- skóla Islands munu þar flytja dagskrá, sem þeir nefna „Tóm- as og við”, undir stjórn skóla- stjórans Péturs Einarssonar. Munu leikaraefnin sumpart flytja og sumpart syngja ljóð eftir Tómas Guðmundsson, sem þau hafa valið sjálf. Fjóla Ól- afsdóttir æfði söngvana, en und- irleik annast Inga Huld Markan. Það er athyglisvert, hvaða ljóö Tómasar Guðmundssonar þessi unga kynslóð leikaraefna telur eiga brýnast erindi til sin og annarra. Tómas Guðmundsson veröur viðstaddur samkomuna. Ollum er heimill aðgangur. Norræna félagið I Reykjavik. Frá Norræna húsinu: Hér á landi er nú staddur danski rithöfundurinn og ljóöskáldið VAGN STEEN. Vagn Steen er fæddur 1928 i Holbæk. Hann kom fyrst fram 1964 sem ljóðskáld með ljóðasafninu „Digte?”, siðan komu út „riv selv” og „skriv selv” 1965. 1 „riv selv” getur lesandinn rifið út þau ljóö, sem hann ekki skilur eða likar og i „skriv selv” eru auðar siður, þar sem lesandinn getur skrifað sin eigin ljóö. A árunum 1972-1978 komu út ár- lega ljóðabækur, þar sem höf- undurinn slær á persónulega strengi. Siöasta ljóðabók Vagns Steens kom út nú fyrir skömmu og heitir „52 ár” og hefur hún hlotið einróma lof gagnrýnenda. Vagn Steen mun segja frá þess- ari nýjustu ljóðabók sinni og lesa upp mánudagskvöldið 6. april kl.20:30 i Norræna húsinu. Auk ljóöabóka sinna hefur Vagn Steen verið afkastamikill rithöf- undur, skrifaö barnabækur, bækur um mannleg tengsl i i- búðarhverfum og skólum, skrif- að gagnrýni auk smásagnasafns „Da kunsten kom til Grená”, sem kom út 1979. Frá 1978 hefur hann starfað við danska útvarpið, auk þess sem hann hefur skrifað greinar i blöð. Einnig hefur hann verið ráðgjafi fyrir byggingarfélög og sveitafélög. Vagn Steen hefur ferðast mikið og haldið fyrirlestra um nútima ljóðlist á Norðurlöndunum og i Bandarikjunum. Fyrir skömmu skrifaði hann yfirlit um ljóða- gerð kvenna i Danmörku. Hann er félagi i hóp, sem kallar sig Digter-Scenen, en sá hópur kemur fram 20 sinnum á ári og fær til þess rikisstyrk eins og leikhópar fá i Danmörku. Afmæli 60 ára er i dag Asmundur Ei- riksson oddviti og bóndi að As- garði, Grimsnesi, Arnessýslu. Asmundur tekur á móti gestum að félagsheimilinu Borg, Grimsnesi eftir kl. 20 laugar- daginn 4. april. 1 dag föstudaginn 3. april er Björg Arnadóttir fyrrverandi húsfrú á Stóra-Hofi 75 ára. A morgun laugardaginn 4. apríl verðúr hún stödd á Akraseli 27 hjá syni 'sinum og tengdadóttur og tekur þar á móti gestum eftir kl.2.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.