Fréttablaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 23.01.2008, Blaðsíða 21
MARKAÐURINN 13MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 V I Ð T A L F Ó L K Á F E R L I V ið sjáum fyrir okkur útrás,“ segir Sólveig Eiríksdóttir, athafna- kona og einn eigenda Himneskrar hollustu, þegar hún er spurð út í hvað framtíðin beri í skauti sér fyrir fyrirtæki hennar. Í ár segir hún áhersluna hins vegar lagða á að samþætta rekstur heilsu- fyrirtækjanna þriggja sem runnu saman um áramótin, en það eru Himnesk hollusta og Maður lifandi, auk Græns kosts, sem bættist í hópinn á síðustu metrum nýliðins árs. Þarna er því orðið til nokk- uð öflugt fyrirtæki á heilsu- markaði þar sem til stendur að nýta sérstöðu hvers og eins, öfl- uga heildsölu og smásölu, auk veitingareksturs. Eigendahópur heilsusamstæðunnar er nokkuð dreifður. Salt Investments, fjár- festingarfélag Róberts Wess- mans, kemur þar að með fjár- mögnun, en að auki eru þar Hjördís Ásberg sem stofnaði Mann lifandi og hjónin Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmunds- son, sem er framkvæmdastjóri Himneskrar hollustu. Þá var í eigendahópi Himneskrar holl- ustu Wilhelm Wessman, faðir Róberts. Sólveig stofnaði fyrirtækið Grænan kost árið 1994 og hefur í tali manna oft verið kennd við þann stað, Solla á Grænum kosti. Hún seldi reksturinn Hjördísi Gísladóttur, meðeiganda sínum, fyrir tæpum fjórum árum, en sló til og keypti sig aftur inn í reksturinn í desember þegar óvænt gafst tækifæri til þess. „Næsta mál á dagskrá er að finna húsnæði undir þetta allt saman,“ segir hún og telur mikil samlegðaráhrif með fyrirtækj- unum þremur. Himnesk hollusta og Maður lifandi, sem rekur heilsubúðir með matsölu, eru sambærileg að stærð og Grænn kostur svo heldur minni. Hjördís Ásberg stofnaði Mann lifandi fyrir um þremur árum í Borgartúni í Reykjavík og hefur sú starfsemi dafnað mjög síðan þá. Elías Guðmundsson skýt- ur á að velta hafi tvöfaldast hjá báðum fyrirtækjum síðustu tvö ár. Núna stendur starfsemin þannig að Maður lifandi er með vöru- og veitingasölu, Grænn kostur er með matsölu og heim- sendingu, en þar stendur til að fjölga útsölustöðum, og svo er Himnesk hollusta með innflutn- ing á vörum sem dreift er hér í verslanir. Sólveig og Elías segj- ast líta svo á að matsölustaðirn- ir séu nokkurs konar uppeldis- stöðvar þar sem fólk geti kynnst mataræðinu og nálgast svo hrá- efnið í matargerðina á auðveld- an máta í almennum matsölu- verslununum. Þá komi jafnvel til greina að taka upp fram- leiðslu á tilbúnum réttum, svo sem vefjum og samlokum, sem fólk geti keypt úti í búð. Áhugi á heilsufæði segir Sól- veig að fari stöðugt vaxandi, en það segir hún bæði mega merkja af auknu umfangi rekstursins og því hversu mikið sé að gera hjá henni í margvíslegu fræðslu- starfi tengdu heilsufæðinu. „Í þessu fer nefnilega saman bæði hugsjón og viðskipti,“ segir hún og telur að þannig þurfi þetta að vera. Viðskiptaþáttinn segir hún reyndar stöðugt sækja á í þessum geira. Fyrir bara fimm til sex árum var þorri þeirra sem sóttu alþjóðlegar sölusýn- ingar hugsjónafólk. „Maður leit á fótabúnað fólksins og velti fyrir sér hvort viðkomandi hafi búið skóna til sjálfur,“ segir hún svona til að draga upp mynd af manngerðinni og hlær. „Á síðasta ári var kannski tíundi partur í þessum hópi. Núna eru komnir inn viðskiptamennirnir og svo hugsjónafólk sem hefur viðskiptavætt sig, auk svo þess- ara gömlu sem verða náttúrlega að vera með.“ Áhugi á heilsufæði segir Sól- veig að hafi gengið í bylgjum sem sífellt hafi undið upp á sig. Þannig segir hún að hafi til dæmis verið mikill áhugi á slíku í Evrópu skömmu fyrir fyrra stríð. „Allt fer þetta í hringi og styttist alltaf á milli.“ Árið 1994 segir hún svo hafa verið hárréttan tíma til að opna Grænan kost. Sjálf hafði hún breytt um mataræði árið 1980, sumpart tilneydd vegna ofnæm- is fyrir sumum dýraafurðum. Sólveig þekkti hins vegar vel til heilsufæðis því amma henn- ar kynntist slíku fæði í Kaup- mannahöfn þegar hún var þar ung kona í hjúkrunarnámi og bjó hjá fólki sem aðhylltist hrá fæði. Þekkinguna hafði hún með sér heim. „Það var sko hráfæði, ekki bara eitthvert grænmetis- fæði,“ segir Sólveig, og bætir við að um 1950 hafi aftur komið dálítil bylgja í heilsufæðinu. „Þá kom út bókin Lifandi fæði, en af henni átti amma eintak og arfleiddi mig að. Svo kom aftur svona bylgja með 68-kyn- slóðinni og það eru leifarnar af henni sem ég næ í sjálf þegar ég flyt til Kaupmannahafnar árið 1978.“ Sólveig segir fræðslu skipa stóran sess í starfi hennar og í raun lykilatriði í að vinna að framgangi og eflingu vitund- ar fólks um mikilvægi matar- æðis. „Alls staðar er verið að tala um velmegunar- og lífs- stílssjúkdóma og hvergi orðið sett spurningarmerki við að tengja þá mataræði,“ segir hún, en bætir um leið við að ekki dugi að vera með neinn ein- strengingshátt í að kynna nýtt mataræði. „Fólk er líka farið að átta sig á að þetta þarf ekki að vera annaðhvort eða. Það er alveg hægt að fá sér æðislegt grænmetis salat í hádeginu og drekka græna djúsa yfir dag- inn, en fá sér svo bara bjúgu um kvöldið ef mann langar í. Bjúgu og hráfæði geta farið saman,“ segir Sólveig og skellihlær. Framtíðarsýnin segir hún svo ganga út á að nýta styrk sam- einaðs fyrirtækis til að efla og auka úrval í heilsuvarningi og vinna að aðgengi allra að slík- um vörum. Síðan geti líka komið til útrásar og segir Sólveig þar nærtækt að horfa til Skand- inavíu, en í Evrópu segir hún rekstur heilsufyrirtækja brota- kenndari en hér og hvergi til viðlíka fyrirtæki og sameinað fyrirtæki Himneskrar hollustu og Manns lifandi. Hún segir því sóknarfæri í að færa þá þekk- ingu sem orðið hefur til hér til útlanda. „Markaðurinn hér er nefnilega nokkuð langt kom- inn. Kannski helst að Kalifornía standi okkur framar.“ SÓLVEIG EIRÍKSDÓTTIR Himnesk hollusta, Maður lifandi og Grænn kostur mynda núna heilsusamstæðu þar sem saman fer bæði heildsala og smásala heilsuvarnings, auk veitinga- reksturs og matsölu. MARKAÐURINN/VALLI Hráfæði og bjúgu geta farið saman Sólveig Eiríksdóttir, athafnakona og einn eigenda Himneskrar hollustu, hefur verið hér fremst í flokki við að kynna og koma á framfæri heilsufæði hvers konar. Óli Kristján Ármannsson tók hana tali en um þessar mundir er að því unnið að samþætta rekstur Himneskrar hollustu, Manns lifandi og Græns kosts sem runnu saman um áramót. Valgeir Baldursson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra fjárhags- sviðs SPRON og tekur við starfinu af Hörpu Gunnarsdóttur, sem gegnt hefur stöðunni frá nóvember 2006 samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs. Harpa mun gegna síð- arnefnda starfinu áfram. Valgeir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk MBA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007. Hann hefur gegnt starfi framkvæmda- stjóra fjárfestinga hjá SPRON síðan í október á síðasta ári. - jsk VALGEIR Á FJÁRHAGSSVIÐIÐ Tveir nýir hlutabréfamiðlarar hafa verið ráðnir til starfa hjá Straumi fjárfest- ingarbanka, þeir Bjarni Eyvinds Þrastarson og Arnar Freyr Ólafsson. Bjarni verður hlutabréfa- miðlari hjá mark- aðsviðskiptasviði. Hann hefur áður starfað hjá MP fjárfestingarbanka og Spron, og er með BBA-gráðu í viðskiptafræði frá George Washington- háskóla í Bandaríkjunum. Arnar Freyr starfaði áður hjá greining- ardeildum Glitnis og Landsbankans, var þar áður yfirmaður verðbréfaviðskipta hjá Landsbankanum á Norðurlandi. Hann lauk gráðu í alþjóðafjármálafræði frá háskólanum í Alabama árið 1998. - jsk NÝIR MIÐLARAR HJÁ STRAUMI BJARNI EYVINDS ÞRASTARSON Ólafur Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar- lausna Skýrr í stað Þorvaldar E. Sigurðssonar sem hverfur til annarra starfa. Árið 2006 tók Ólafur sæti í framkvæmdastjórn Skýrr sem for- stöðumaður verk- efnastofu. Hann hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2001. Ólafur lauk meistaragráðu í rafmagns- verkfræði frá Háskólanum í Álaborg árið 1989 og starfaði áður hjá Reiknistofu bankanna, Íslenska járnblendifélaginu og Tölvumiðstöð sparisjóðanna. - jsk NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI HJÁ SKÝRR ÓLAFUR HALLDÓRSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.